Heilsuvernd - 01.03.1994, Qupperneq 26
MJOLK
Prótein í mjólk
Mjólkurneysla er mjög mikilvæg
fyrir börn og unglinga sem eru í
vexti. Með mjókurdrykkju fá beinin
nauðsynlegt kalk til uppbyggingar.
og sterklegar tannraðir, svo mjall-
hvítar að þær voru kallaðar „tann-
skafT, tala glöggu máli úr gröfmni,
þúsundum ára síðar, meðan bein-
kramarlaus bein þeirra veðrast og
vopnin ryðga í sundur í jörðinni.“
Þegar lífskjör voru hvað verst hér á
landi um aldamótin 1700 er talið að
minnsta kosti helmingur af orkugef-
Nýmjólk Léttmjólk Undanrenna
í bók Skúla V. Guðjónssonar
„Manneldi og heilsufar í fornöld" seg-
ir: „Meðal matvæla úr dýraríkinu var
mest vert um mjólkina."
Einnig segir Hannes Finnsson
biskup í „Mannfækkun af hallærum"
árið 1770: „Hallæri mikið um allt land,
þó mest fyrir norðan... Mestur
mannfellir verður við sjávarsíðuna ...
en minnstur þar sem kjamgott fóður
til nautpenings fellur.“
Fólki við sjávarsíðuna var lífsnauð-
synlegt að hafa einhverjar mjólkur-
afurðir með fiskmetinu. Höfðu menn
ekki mysu þar til drykkjar var þeim
vistin vond. Er talið að sauðamjólkin
hafi verið helsta vörn manna gegn
skyrbjúg í þá daga.
Enn í dag heldur mjólkin hlutverki
sínu sem mikilvægur bætiefnagjafi.
Næringarfræðingar telja að þeir, sem
forðast mjólkurvörur, séu þar með að
útiloka heilan fæðuflokk og mæla
gegn slíku. Meginmarkmiðið er að fá
fjölbreytta fæðu úr öllum fjórum
fæðuflokkunum; (a) kjöti, fiski og
eggjum, (b) mjólk og sem mest úr (c)
garðávöxtum og (d) kornmeti.
Sérstaklega er talið mikilvægt fyrir
þá, sem eru að vaxa og þroskast, eins
og börn og unglinga, að borða vel.
Lýsi og mjólk eru sérlega góð
blanda. Lýsið inniheldur D-vítamín,
sem hleður upp beinin með kalki, og
A-vítamín sem losar um beinvefmn
þegar hann stækkar. Það er því engu
líkara en hér sé náttúruleg leyniupp-
skrift fyrir beinvöxt.
Áður en menningarsjúkdómar nú-
tímamanna gerðu vart við sig er tann-
heilsu víkinganna best lýst í fyrr-
nefndri bók um „Manneldi og heilsu-
far í fornöld": „Veðurbarin bein þeirra
Fjörmjólk
26