Heilsuvernd - 01.03.1994, Blaðsíða 31
FISKNEYSLA
ólmagn í blóði felur í sér aukna hættu
á hjarta- og æðasjúkdómum. Þess
vegna er mikilvægt að við reynum að
draga úr neyslu fitu. Við ættum að
forðast að borða mettaða fitu vegna
þess að hún getur leitt til mikillar
aukningar á kólesteróli í blóði. Ein-
föld, ómettuð fita er æskileg enda
hefur hún ekki áhrif á kólesterólmagn
blóðsins. Mikil fituneysla getur hins
vegar leitt til þess að við verðum of
þung.
Neysla fjölómettaðra fitusýra er
æskileg vegna þess að hún dregur úr
kólesterólmagni í blóði okkar.
Feitur fiskur er hollur
Fjölómettaða fitu er aðallega að
finna í feitum fiski, t.d. sfld, laxi og
makrfl. Þessi fita er einnig í mögrum
fiski (þorski, lýsu og rauðsprettu) en
þó ekki í eins miklum mæli og í feitum
fiski. Að sjálfsögðu er fjölómettuð fita
einnig í mörgum öðrum mat.
Á undanfömum árum hafa rann-
sóknir leitt í ljós að í fiski er mikið af
ákveðinni fjöómettaðri fitusým sem
kölluð er Omega 3. Þar er í raun um
að ræða tvær fitusýrur sem heita
þessu samheiti, en þær eru EPA og
DHA fitusýrur. Þessi fitusýra lækkar
ekki aðeins kólesterólmagnið í blóð-
inu heldur minnkar viðloðun blóð-
flagnanna við hver aðra en það dregur
úr hættu á blóðtappa.
Það skal tekið fram að ekki er mælt
með því að fólk breyti mataræði sínu
alfarið yfir í fiskneyslu til þess að
draga úr líkum á hjarta- og æðasjúk-
dómum. Nægjanlegt er að borða um
30 g af fiskmeti á dag. Slíkt magn
gefur nógu mikið af Omega 3 fitusýr-
unni, þ.e.a.s. ef feitur fiskur er borð-
aður. Kjósi fólk að borða magrar fisk-
tegundir þarf nokkuð meira en 30 g.
Æskilegt er að borða fisk þrisvar í
viku til þess að mæta þörf líkamans á
fjölómettaðri fitu. Ein fiskmáltíð í viku
er ekki nóg því 250 g af fiski einu sinni
í viku gerir ekki sama gagn og 30 g af
fiski sjö sinnum í viku. Ástæðan er
einföld: Of langt bil milli fiskmáltíða
dregur úr virkni fjölómettuðu fitusýr-
anna því þær brotna fljótt niður í
mannslíkamanum. Auðvelt ætti að
vera að borða 30 g af fiski á dag því ein
sneið af laxi eða nokkrir bitar af sfld
vega einmitt 30 g.
Niðurstaðan er einföld. Ekki borða
einungis fisk vegna þess að of einhliða
neysla á fjölómettuðum fitusýrum
hefur aukaverkanir. Gamla, góða
reglan er sígild: „Borðaðu allt í hófi.“
Matar-
tegundir
auðugar
af kóle-
steróli
Ýmsar tegundir matar inni-
halda mikið kólesteról, t.d.
egg, smjör, innmatur og skel-
fiskur. Hægt er að ímynda sér
það að neysla slíks matar
hækki kólesterólmagn blóðs-
ins en staðreyndin er önnur.
Það er í lagi að borða þennan
mat - vel að merkja sé maður
ekki með of mikið kólesteról í
blóðinu fyrir. Þá er vert að
hafa það í huga að ekki er allt
kólesteról „vont.“ Til eru
nokkrar tegundir af kólester-
óli. HDL-C er „gott“ kólester-
ól en LDL-C er „vont“ kólest-
eról. Hlutfall á milli þeirra er
mælt til að átta sig á hvort
heildarkólesterólmagn sé
„slæmt.“
31