Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 32
FLUGHRÆÐSLA
Skelfingu
Að fljúga er mun öruggara en að
ferðast í bíl eða með jámbrautarlest.
Þú hefur örugglega heyrt að líkumar
á því að lenda í flugslysi séu mjög
litlar. Samt finnurðu til hræðslu...
Þú sefur sennilega illa síðustu næt-
umar fyrir flug. Þegar þú kemur á
flugvöllinn ertu uppspenntur og
hræddur. Þér finnst allt eitthvað svo
erfitt og mikið mas við að ganga frá
farseðlinum og öllu sem fylgir því að
fljúga.
Þegar þú ert svo kominn um borð í
flugvélina langar þig mest til að hætta
við allt saman og fara út. Þegar hér er
komið sögu þjáistu ekki bara af flug-
hræðslunni heldur ertu líka með alls
Ertu flughræddur?
Færðu á tilfinninguna
að eitthvað hræðilegt
muni gerast í hvert
skipti sem þú festir á þig
öryggisbeltið? Þú ert
ekki einn um það. Fyrir
marga er það að fljúga
líkast martröð. En, til
eru leiðir til þess að
losna við
flughræðsluna!
konar hræðslueinkenni eins og öran
hjartslátt, þú svitnar og þig svimar
jafiivel.
Óttinn heldur þér í greipum sínum
allan tönan meðan þú ert í flugferð-
inni. Alls konar torkennileg hljóð
heyrast og gera þér ókleift að slappa
af. Hvaða hljóð er þetta? Á þetta að
vera svona? Það er ábyggilega eitt-
hvað að... Hafi Guð ætlað okkur að
fljúga hefði hann látið okkur vera með
vængi...
Þegar flugvélin er lent á áfangastað
ertu gjörsamlega örmagna. Þér finnst
þú vera eins og undin tuska.
Fyrir fjölmarga er flugferðin í senn þægileg og afslappandi. Viðkomandi getur setið rólegur með bros á vör, lesið
tímarit, notið matarins og fengið sér áhyggjulausan blund.
rr> • ■ : . ■ mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
32