Heilsuvernd - 01.03.1994, Side 35
FLUGHRÆÐSLA
hljóti að vera það hættulegasta sem
hugsast getur. Þú ert jafnvel með
áhyggjur af því hve nákvæmlega flug-
freyjumar fara í öryggisatriði vélar-
innar. Það hlýtur að benda til þess að
þú sért í hættu!
Innilokunarkennd: Farþega-
flugvél Ktur út fyrir að vera mjög stór
- þegar við sjáum hana utanfrá - en
öðru máli gegnir þegar við erum kom-
in inn í hana. Þá virðist hún lítil og
þröng.
Ertu hikandi við að fara í lyftu?
Kýstu að ganga upp frekar en að nota
hana? Skilur þú dyr á herbergi opnar
af hræðslu við að lokast inni? Ef þú
svarar þessum spurningum játandi er
ekki skrítið að þú sért flughræddur.
Varnarleysi: Ekki er óeðlilegt að
þú finnir til hræðslu ef þér finnst þú
ekki hafa nein áhrif á framvindu mála,
áhrif á kringumstæðurnar. Þér líður
jafnvel eins og fórnarlambi og finnst
þú hjálparvana í aðstæðum þar sem
aðrir ráða ferðinni. í bíl finnst þér þú
hafa einhverja möguleika á því að
forðast slys og um borð í báti hugsar
þú sem svo að þú getir þó allavega
stokkið í sjóinn ef illa fer. Öðru máli
gegnir þegar þú situr í flugvél. Þá
fmnst þér þú eigir engra kosta völ -
óttinn nær tökum á þér.
Óþægilegar minningar: Hafir
þú einhvem tíma orðið mjög hræddur
í flugvél er mögulegt að vitund þín
tengi þá reynslu við allar aðrar flug-
ferðir sem þú ferð í og þar með tengir
þú flug og hræðslu. Einnig er mögu-
legt að þér hafi liðið illa í flugferð ein-
hvem tíma af persónulegum
ástæðum - verið spenntur og óróleg-
ur. Þú kannt að hafa kvatt einhvern
þér nákominn, verið á leið á erfitt
stefnumót, t.d. að hitta veikan vin
eða ættingja eða hafir fengið slæmar
fréttir. Tilfinningamar, sem í þér
bærðust þá, hefur þú síðan tengt flug-
ferð, jafnvel þótt málefnið hafi ekkert
með sjálfa flugferðina að gera.
Flug byggir á
náttúrulögmálunum
Hvernig geturðu losnað við flug-
hræðsluna? Svarið við því er með því
að fara eftir ráðum sérfræðinga, t.d.
sálfræðinga sem hafa sérhæft sig í
meðferð þeirra er þjást af flug-
hræðslu. Kynntu þér allt sem þú
kemst yfir um flugvélar og á hvaða
lögmálum þær byggjast. Ágætt er að
byrja á því vegna þess að hræðslan
við slys er síðan tengd hinum þáttum
flughræðslunnar.
Þér kann að finnast, þegar þú lest
þessar línur, að sennilega sé betra að
vita sem minnst og að í raun hafir þú
ekki áhuga á að vita neitt frekar.
Þetta er alrangur hugsunarháttur.
Hið sama gildir um flughræðslu og
hræðslu af öðrum toga: Hún byggir
oftast á þekkingarskorti. Algengt er
að við myndum okkur einhveijar
skoðanir án þess að þær séu á rökum
reistar og eins er það með lögmálin
sem gerir flugvél kleift að vera á lofti.
Hræðslan byggir á ranghugmyndum
og það er einmitt þess vegna sem
sumir eru hræddir við að fljúga.
Þér mun líða mun betur ef þú skilur
hvaða lögmál eru til grundvallar flug-
Hvernig í ósköpunum stendur á því að svona bákn getur haldist á lofti? Er það ekki andstætt náttúrulögmálunum?
Svar: Nei - þvert á móti byggir flugið á náttúrulögmálunum.
35