Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 43
lllililll
lliiiiilii
FRETTIR
OFNÆMI
FYRIR SÆÐI
Bandarískar rannsókn-
ir hafa leitt í ljós að æ
fleiri konur hafa ofnæmi
fýrir ákveðnum prótein-
um sem eru í sæði karl-
mannsins. Ofnæmið lýsir
sér þannig að konur fá
kláða í kynfæri sín eftir
samfarir og í verstu til-
vikum getur kláðinn
breiðst út og öndunarörð-
ugleikar fylgt í kjölfarið.
Fátt virðist til ráða til
þess að vinna bug á þessu
ofnæmi en nú er verið að
þróa lyf sem vonir standa
til að geti unnið gegn um-
ræddu ofnæmi.
ONAKVÆMNII
GREININGU
Krufningar eru langná-
kvæmasta leiðin til þess
að greina nákvæmlega
hverjar dánarorsakir
fólks eru. Athuganir
breskra krufningalækna
hafa nefnilega leitt í ljós
að læknum skjátlast í
þremur tilvikum af hverj-
um tíu um raunverulega
dánarorsök. Hins vegar
leiddu kannanir í ljós að
aðstandendur hinna
látnu tóku í langflestum
tilvikum lækna trúanlega
og gerðu ekki athuga-
semdir við skráningar
þeirra.
BARIST VIÐ
BLÓÐTAPPA
Það er tiltölulega al-
gengt að aldrað fólk fái
blóðtappa í fætuma en
það hefur verið mönnum
ráðgáta hvernig á því
stendur að jafnvel fólk á
besta aldri fær slíkan
sjúkdóm. Nú hefur Björn
Dahlback, sem er pró-
fessor við læknaháskól-
ann í Lundi í Svíþjóð, sett
fram kenningar sem gætu
skýrt þetta. Hann segir
að í blóði allra manna sé
efni, sem hingað til hafi
lítt verið rannsakað, en
hlutverk þess sé m.a. að
koma í veg fyrir að blóð-
kekkir myndist. Ef lítið
er af þessu efni í blóðinu
eða ef það vantar sé fólk í
mikilli hættu að fá blóð-
tappa, jafnvel á unga
aldri. Hann segir að þegar
hafi farið fram miklar
rannsóknir á þessu blóð-
efni við Háskólann í
Lundi en þær séu samt
sem áður stutt komnar
frá byrjunarreitnum.
Þegar þeim miði áfram sé
hins vegar góðar líkur á
því að unnt verði að finna
upp lyf sem minnki vem-
lega líkur á því að fólk fái
blóðtappa.
SU GAMLA
HÆTT AÐ
REYKJA
Franska konan Jeanne
Clament hætti að reykja
fyrir tveimur ámm.
Astæðan var sú að henni
fannst sem hún væri að
verða háð reykingunum
og ekki vildi hún spilla
ágætri heilsu sinni með
slíkum ósóma. Nú væri
slíkt vart í frásögur fær-
andi nema af því að frú
Clament er orðin 119 ára
og er elsta kona í heimi.
Reykingarnar vom
reyndar ekki eini ósiður-
inn sem frú Clament lagði
á hilluna þegar hún varð
117 ára því þá hætti hún
einnig að drekka sérrí,
mest vegna þess að henni
fannst sér ekki verða gott
af því. Clament, sem
dvelst á hjúkrunarheim-
ili aldraðra í Provence, er
hins vegar enn hinn
mesti sælkeri og gerði
sér gott af miklum kon-
fektbirgðum sem henni
bámst á afmælisdaginn.
EGGJA-
STOKKAR OF
OFT
FJARLÆGÐIR?
Prófessor Bo von
Schultz við Karolinska
sjúkrahúsið í Stokkhólmi
skrifaði nýlega grein í
sænska læknablaðið þar
sem hann heldur því fram
að oft á tíðum séu eggja-
stokkar kvenna numdir
burtu að óþörfu þegar
gerðar em á þeim móður-
lífsaðgerðir og t.d. legið
tekið. Hann bendir á í
greininni að nú séu tekn-
ir eggjastokkar hjá um
45% þeirra kvenna sem
legið er tekið úr en telur
sjálfur að ekki sé raun-
vemleg þörf á að taka
eggjastokkana nema í 2%
tilvikanna. Langoftast er
legið tekið vegna þess að
í því myndast vöðvahnút-
ar, sem geta breyst í að
verða illkynja, og til þess
að fyrirbyggja að krabba-
mein myndist í móðurlíf-
inu telji margir læknar
nauðsynlegt að taka
eggjastokkana einnig.
Prófessor Bo von Schultz
bendir á það að með því að
taka eggjastokkana verði
miklar breytingar fram-
leiðslu hormóna hjá kon-
um sem hafa m.a. áhrif á
kynlífslöngun þeirra.
Eggjastokkamir fram-
leiði nefnilega einnig
karlhormón sem gegni
mikilvægu hlutverki í því
sambandi. Telur prófess-
orinn að læknar eigi að
athuga sinn gang í þess-
um málum og megi ekki
taka eggjastokkana
nema að þeir telji slíkt
bráðnauðsynlegt.
:
43