Strandapósturinn - 01.06.1982, Blaðsíða 96
og hlúði að þeim eftir föngum um kvöldið. Næsta dag var komið
gott veður og héldu þær þá áfram ferð sinni heim að Skálholtsvík
og hefur þeim efalaust verið vel fagnað þegar heim kom.
Þegar ég hafði skilað telpunum í bæinn fór ég út í smíðahús tii
pabba og sagði honum frá þessu ferðalagi mínu, og að ég hefði
lent niðri í Nestá og vantaði hjálp til að setja bátinn hærra upp.
Hann sagði ekki orð, en ég sá að hann var hýr á svip og lét sér vel
líka. Hann var maður mikilla átaka en fárra orða. Málskrúð var
honum ekki lagið, en handtök hans voru í öllum tilvikum betri
en annarra manna. Það var sama, hvort við þurfti krafta, hand-
lagni eða flýtis allt fór það honum betur úr hendi en öðrum
mönnum sem ég hefi þekkt. Jafnvel ljósmóðurstörf léku í sigg-
grónum höndum hans, ef á þurfti að halda. Eg er ekki réttur
maður til að tala mikið um föður minn, en mig langar til að vitna
í grein, sem Asgeir Jónsson frá Gottorp skrifaði um hann látinn,
en þeir kynntust nokkuð á seinustu árum beggja. En þar segir svo
meðal annars: „Ég laðaðist meir og meir að þessari yfirlætislausu
hetju, sem gædd var fjölhæfum mannkostum, sem að sér drógu
allra athygli, sem þekktu hann og afrek hans og nytjastörf á sjó
og landi. Þó var góðfýsi hans trúmennska og fórnfýsi sterkustu
öflin í skapgerð þessa sterka manns.“
Þessi fáu orð segja mikið, en ég fæ ekki séð að neitt af því sé
of-sagt.
Við fengum nú fleiri menn til liðs við okkur og héldum til
sjávar að koma bátnum í öruggt skjól. Á Broddanesi var á
þessum árum alltaf mikill mannafli og samhjálp með sérstökum
ágætum. Mátti segja að allir væru sem einn maður, þótt býlin
væru fjögur, enda mörg störf sem þurfti að vinna í sameiningu á
svo stórri hlunnindajörð.
Mörgum árum seinna sátum við Elín systir mín saman á
heimili hennar í Reykjavík og rifjuðum upp gamlar minningar.
Hún spyr mig þá, hvort ég muni ekki eftir því, þegar ég kom yfir
fjörðinn með telpumar í vestan rokinu.
„O-jú, jú, það gleymist nú kannske nokkuð seint“, svaraði ég.
Hún sagði mér þá, að mamma hefði lítið sem ekkert talað þetta
94