Strandapósturinn - 01.06.1983, Page 55
rosknu fé er víða lítið sem ekkert búið að gefa, hér á bæ er komin
tveggja vikna innistæða að öllu samanlögðu. Fréttst hefur báts-
tapi vestan að og drukknuðu fjórir menn. Formaðurinn hét
Bæring og var Bæringsson. Og maður varð úti á Svínadal, mið-
vikudaginn 17. desember, hann var frá Hvítadal og var á
heimieið úr meðalaferð, veður var norðan hvass og mold kafald
um kvöldið, tveir hundar voru með honum og kom annar heim
þegar verið var að fara á stað að leita piltsins, hinn lá upp yfir
honum nærri fenntur og fannst hann (Pilturinn) af því að þeir
sem leituðu fóru að siga og gelti þá hundurinn sem lá hjá þeim
dauða, frost var þennan dag 3 til 5 stig á Reaumur, maðurinn
hét Sveinn.
Dáin er Guðrún kona Jóns Hannessonar á Kveingrjóti i
Saurbæ, líka dó barn hér í Arnkötludal á Nýársdagsmorgun úr
kvefveikinni sem hér gengur núna og mörg börn eru veik af.
Á mánudaginn 29. desember sást hér lítill vígahnöttur og fór
hann frá norðri til suðurs eftir loftinu.
Haustið 1890 var aflalitið á Gjögri og ógæftasamt nema þeir
sem fóru fyrir leitir höfðu dálitið og mun hlutur hafa orðið
eitthundrað og níutiu af ráfisk en það vænsta var saltað og sett
inn til Thorarensens og var hlutur úr því 17 krónur, ekki fór
nema einn bátur hér innanað norður fyrir leitir og gerði það að
þá stóð yfir heyskapartími og margir áttu talsvert hey úti því
óþerrar gengu þá að undanfömu, formaður á bátnum hér
innanað var Pétur Jónsson frá Heiðarbæ og var þetta hjá honum
til hlutar þó hafði hann veikt lið og gat ekki farið á sjó nema í
góðu, hann var fjórar vikur í fyrra skiptið á Gjögri.
Dalbúinn 2. árg. 1. blað.
Tíðarfar og fréttir.
Sumarið 1891 spruttu tún ágætlega vel og engjar í góðu
meðallagi og nýting hin besta til enda heyskapartímans. Flestir
munu hér um pláss hafa hætt heyskap í 21. viku sumars og hafa
allir hér heyjað ágætlega.
Heimtur á fé hafa ekki verið góðar hjá mörgum þó einstaka
maður hafi alheimt og í haust fór fé víða eftir leitir vegna þess að
53