Strandapósturinn - 01.06.1983, Síða 122
ríðandi á hesti. Niðurundan Hestinum eru smástallar er nefnast
Bekkir. Rétt framan við þá er smágötuslóði er nefnist Klif.
Aðeins framar, beint í hádegisstað við þá er smágötuslóði er
nefnist Klif. Aðeins framar, beint í hádegisstað, er Kerlingar-
skarð. Þar sést sólin fyrst 8. febrúar, en aðeins i nokkrar mínútur
fyrsta daginn en smáhækkar dag frá degi. Vegur lá gegnum
skarðið yfir í Húsadal sem er sunnan við Borgirnar og liggur í
vestur upp til heiða. Eftir honum rennur Húsadalsá og skiptir
landi milli Þiðriksvalla Víðidalsár. Niðurundan Kerlingar-
skarðinu er Hlíðin alveg niður að vatni og framan við Kerling-
arskarðið eru grjóthólar, Stóri-Hjalli og Litli-Hjalli. Við höldum
fram brúnir að ofanverðu við Hjallana og staðnæmumst við
Heiðarskörðin. í suðvestri þaðan liggur vegur suður yfir Laxár-
dalsheiði til Reykhólasveitar og var oft farin hér áður fyrr. Lrá
Hlíðinni undir Hjöllunum eru smámýrardrög uns komið er að
litlu holti er nefnist Snoppa. Upp frá henni lá vegurinn í
Heiðarskörðin, ef ekki var farið gegnum Kerlingarskarð og fram
brúnir. 1 vestri liggur Nautadalurinn, eftir honum rennur
Nautadalsá og áfram niður með túngirðingunni að norðanverðu
í Dalána. Lramarlega í Nautadalnum er þúfa er ber hátt yfir,
kallast hún Hundaþúfa. Norðanverðu í Nautadalnum er
Hraunið og upp af því fell allhátt er Grímsfell heitir. Norðan við
það er annar dalur, Grímsdalur. Eftir honum rennur Grímsgil
einnig í Dalána ásamt mörgum öðrum smágiljum sem koma úr
dalbotninum, og mynda Dalána er rennur eftir miðjum dalnum
og skiptir landi milli Vatnshorns og Þiðriksvalla. Niðuraf
Hrauninu eru lynggrónar brekkur, þá Llóinn í tungunni milli
ánna. Fremst í Flóanum er allhár hóll einn sér er Stúlkuhóll
heitir. Daláin rennur í Þiðriksvallavatn, það er um tveggja kíló-
metra langt og u.þ.b. einn kílómetri, þar sem það er breiðast. Það
er mjög djúpt og kalt svo í því var engin veiði sem heitið gæti. Úr
vatninu rennur Þveráin, en hún var virkjuð fyrir Hólmavík og
sýsluna. Hún rennur niður með Smiðjuhúsaborginni að austan
og skiptir þar milli Þiðriksvalla og Skeljavíkur.
Á Þiðriksvöllum var tvíbýli er ég var að alast upp. Bæjarhúsin
stóðu svo til í miðju túni og fjárhúsin aðeins framar. Faðir minn
120