Strandapósturinn - 01.06.1983, Side 141
mönnum sínum. Og ég veit að þær hafa allar til hópa allt viljað
fyrir hann gera. Og svo var hann frændmargur þar að auki, svo
hann hefur nú ekki verið svo einmana þó í raun og veru væri
hann alltaf frekar einrænn, það var hans lundarlag. Kristján var
heilsugóður og hraustur fram á síðustu ár. Ég heyrði sagt að
hann hafi dáið úr lungnabólgu. Til hinsta dags var hann hetja.
Það má sjá á því þegar hann, helsjúkt gamalmennið, fór einn og
án nokkrar hjálpar snemma morguns upp á sjúkrahús áður en
nokkur kom á fætur, bankar þar upp og biður um inngöngu, sem
honum var auðvitað látin í té. Þá sá gamli maðurinn að hann gat
ekki lengur verið sjálfum sér nógur. Hann var einn sér í íbúð og
frekar stutt að fara á sjúkrahúsið. Svona þrek er sjaldgæft hjá
áttræðum manni, enda þótti það. Kristján var fæddur 1858 og
hefur því verið áttatíu ára þegar hann lést 1938, en hvaða mán-
aðardag hann var fæddur veit ég ekki eða hvaða mánaðardag
hann dó, en það var í júlí. Ég man það á því að Sigríður á
Kirkjubóli frænka hans, sem fyrrer minnst á, er sögðdáin 10. júlí
og þegar við vorum við húskveðju hennar, þá er nýkeypta trillan
„Svanurinn“, fallegur og glæsilegur bátur, sem Guðbrandur á
Heydalsá átti, liggjandi þar fram á ytri víkinni og með líkkistu
Kristjáns Halldórssonar um borð. Guðbrandur hjálpaði föður
sínum Birni, sem þar var líka, að sækja líkið inn að Hólmavík og
svo voru þær við húskveðju Sigríðar. Síðan fór Guðbrandur með
báðar kisturnar út að Kollafjarðarnesi.
Björn sá náttúrlega um jarðarför bróður síns og ætlaði honum
stað við hliðina á móður þeirra í Kollafjarðarneskirkjugarði. Þau
frændsystkinin sem fyrr voru á ferð með litla barnið sem Kristján
tók í fóstur, voru nú samferða hvort í sinni líkkistu áleiðis í
kirkjugarðinn á Kollafjarðarnesi. Og þó ólíklegt þætti að Kris-
tján kæmi aftur, þegar hann fór til Ameríku, þá varð það samt
svo að hann var lagður við hliðina á móður sinni i íslenzkri mold.
Svona er margt sögulegt og skrítið að manni finnst. (Ég ætla að
geta þess hér að ég hef fengið upplýsingar um dánardægur
Kristjáns og þar er hann sagður hafa dáið 24. júlí. Það getur svo
sem vel verið rétt, en þá hefur Sigríður dáið seinna en 10. júlí.
Annað hvort hlýtur að hafa verið misritað, annars gætu þau
139