Morgunblaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Óðinn Viðskiptablaðsins fjallaði
um opinber útgjöld og op-
inber störf í pistli í vikunni og
benti á að kórónuveiran hefði
valdið dýpstu kreppu í heila öld á
Íslandi. Samdráttur í landsfram-
leiðslu í fyrra
hafi numið 6,6%
og atvinnuleysi
í júlí hafi verið
6,1%. Í pistl-
inum er rakið
hvernig ýmis
lönd brugðust
við fjármálakreppunni fyrir rúm-
um áratug með því að lækka laun
opinberra starfsmanna og segir
svo: „Ef einhvern tímann síðustu
eitt hundrað árin hefði verið
ástæða til að lækka laun opin-
berra starfsmanna á Íslandi þá er
það einmitt við þessar aðstæður.
- - -
En í stað þess hafa laun hækk-
að um 14,5% hjá sveit-
arfélögunum, sem flest kvarta
hástöfum yfir erfiðum rekstri, og
10,7% hjá ríkinu.“ Þetta er ríf-
lega tvöföld sú hækkun sem
launamenn á almenna mark-
aðnum fengu, sem var 5,8% og er
í raun gríðarlega mikil hækkun,
jafnvel við blússandi góðæri, að
ekki sé talað um kreppu og
heimsfaraldur.
- - -
Eins og Óðinn bendir á glímir
hið opinbera á Íslandi ekki
við tekjuvanda, heldur út-
gjaldavanda. Fram kemur að árið
2015 hafi opinber útgjöld á hvern
mann numið 3,1 milljón króna,
aðeins fimm árum síðar hafi þau
verið orðin fjórar milljónir króna,
sem er nær þriðjungs hækkun.
- - -
Rekstur hins opinbera er kom-
inn úr böndum, sérstaklega
hjá sveitarfélögunum en einnig
hjá ríkinu. Þau mál þarf að ræða
vegna kosninganna sem fram
undan eru, og ekki síður vegna
kosninganna á næsta ári.
14,5% hækkun
launa sveitarfélaga
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Hagkvæmni verður leiðarljós við
byggingu nýrrar Ölfusárbrúar, svo
veggjöld geti orðið sem lægst,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra. Bygging brúar ofan
við Selfoss verður boðin út í haust og
að því leyti er málið komið á rekspöl.
Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdina er rúmir sex milljarðar
króna, og fjármögnun verður með
veggjöldum sem innheimt verða af
notendum. Verður þetta samvinnu-
verkefni ríkis, verktaka og fjármála-
fyrirtækja. Gjaldheimtu lýkur þegar
mannvirkið er uppgreitt. Yfir núver-
andi Ölfusárbrú fara í dag að jafnaði
13.000 bílar á dag. Vegagerðin reikn-
ar með að tæplega helmingur þess-
arar umferðar færist yfir á nýju
brúna; verði um 6.000 ökutæki á dag.
„Samkvæmt umferðarspám, áætl-
uðum kostnaði og að lán greiðist upp
á 20 árum þarf gjaldið að vera 350-
450 krónur hver stök ferð,“ segir
ráðherra.
Í Morgunblaðinu sl. þriðjudag
var vitnað til samtala Sigurðar
Inga við almenning þar sem spurt
var hvað fólk gæti hugsað sér að
borga fyrir betri leið með nýrri brú.
Viðmælendur nefndu þar allt að 700
krónur, en eins og að framan greinir
miðast forsendur við allt að helmingi
lægri tölu. sbs@mbl.is
Brúargjaldið 350 til 450 krónur
- Ölfusárbrú í undirbúningi - For-
sendur útboðs ljósar - 6 milljarðar kr.
Tölvumynd/Vegagerðin
Ölfusárbrú Svona mun mannvirkið
nýja líta út. Útboð er í undirbúningi.
„Við erum ánægð að geta loks mætt
þeirri eftirspurn að bjóða alla þjón-
ustu okkar á kerfi Gagnaveitunnar,
mörg heimili hafa beðið lengi eftir
þessu og við fögnum því að geta
boðið fleiri heimilum fjarskipta- og
sjónvarpsþjónustu Símans,“ segir
Orri Hauksson, forstjóri Símans.
Tilkynnt var í gær að Síminn sé
kominn inn á kerfi Gagnaveitu
Reykjavíkur. Lengi vel hefur víð-
feðmt kerfi Gagnaveitu Reykjavík-
ur verið það eina sem Síminn hefur
ekki boðið þjónustu sína yfir, þang-
að til nú. Samið var um það fyrir
rúmu ári að Síminn leigi aðgang að
ljósleiðarakerfi Gagnaveitunnar en
tafir hafa orðið á framkvæmdinni.
Íslensk heimili hafa með þessu
enn meira val um hvernig þau haga
sinni fjarskipta- og sjónvarpsþjón-
ustu en þjónusta Símans er nú í
boði yfir öll ljósleiðarakerfi lands-
ins.
Heimili Ellenar Ýrar Aðalsteins-
dóttur var fyrsta heimilið sem notar
þjónustu Símans yfir kerfi Gagna-
veitunnar en heimili hennar var
tengt fyrr í vikunni. Ellen þekkir
bæði félögin vel enda starfsmaður
Símans til margra ára en starfar nú
hjá móðurfélagi Gagnaveitunnar,
Orkuveitu Reykjavíkur.
„Við erum bjartsýn á að neyt-
endur muni taka vel í innkomu okk-
ar á ljósleiðarakerfi Gagnaveit-
unnar,“ sagði Orri Hauksson enn
fremur. „Nú geta yfir 100 þúsund
heimili pantað þjónustu Símans yfir
Ljósleiðarann, sem eykur sam-
keppni og val neytenda til fram-
tíðar. Það var virkilega skemmtilegt
að sjá fyrsta viðskiptavin Símans
tengjast um Ljósleiðarann,“ er haft
eftir Erlingi Frey Guðmundssyni,
framkvæmdastjóra Gagnaveitu
Reykjavíkur, í tilkynningu.
Þjónusta Símans í
boði á ljósleiðara GR
- Kerfi GR nær til
100 þúsund heimila
- Aukin samkeppni
Tenging Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir
fékk blóm frá Orra Haukssyni þeg-
ar hún tengdist kerfi GR í vikunni.
Betra verð
11.790.000 kr.
Ásett verð kr. 12.990.000,-
Seljandi skoðar skipti á ódýrara
RX 450H EXE HYBRIDLEXUS
www.notadir.toyotakauptuni.isBetri notaðir bílar
Raðnúmer 415050
Nýskráður 2/2021
Akstur 4 þ.km.
Hybrid
307 hestöfl
Sjálfskipting
Fjórhjóladrif
Skoðun 2025
Bakkmyndavél
Fjarlægðarskynjarar
Bluetooth
Hiti í fram- og aftursætum
Kæling í framsætum
Akreinavari
Blindsvæðisvörn
Sjálfvirk há/lág aðalljós
Skynvæddur hraðastillir
Litað gler
Hiti í stýri
Rafdrifið lok farangursrýmis
Umferðarskiltanemi
Leiðsögukerfi
Rafstillanlegt stýri
Glertopplúga