Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is „Við ætlum að reyna að skapa góðan anda í skólanum á hverjum degi og vinna með það sem við höfum,“ segir Kári Freyr Kristinsson, forseti nem- endafélags Verzlunarskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið um fé- lagslíf á tíma farsóttar. Kári, sem er á sínu þriðja og síð- asta ári, hefur einungis farið á þrjú böll á menntaskólagöngu sinni en við venjulegar aðstæður væru haldin u.þ.b. þrjú böll á önn. Hann segir draum sinn að fara á eitt menntaskólaball í viðbót en hann fór síðast á ball á sínu fyrsta ári í Versló. „Strax og nýju takmarkanirnar voru kynntar fór- um við á fund með skólastjórn- endum. Við erum að íhuga böll með hraðprófum og skipta skólanum upp í tvennt en þessar hugmyndir eru bara á frumstigi,“ segir Kári. Nemendafélagið hefur nú þegar haldið einn streymisviðburð á þessu skólaári og til skoðunar er að halda fleiri. Þá fengu þau formenn stjórn- málaflokka til að koma og ræða mál- in og streymdu umræðunum inn í skólastofur. Ljóst er að með gildandi takmörkunum getur félagið einnig haldið sitjandi viðburði. Stefnt er á að setja upp leiksýninguna The Dev- il Wears Prada í nóvember en aðrir viðburðir hafa ekki verið skipulagð- ir. Þá er einnig stefnt á tvær út- landaferðir með skólanum. Mögu- lega taka unglingarnir bara djammið erlendis. Vilja koma nýnemum inn í félagslífið Kári segir planið núna að taka vel á móti nýnemum og koma þeim inn í félagslífið. Margir nemendur á þriðja ári séu líka núna fyrst að taka þátt í félagslífinu sem þeir hefðu undir venjulegum aðstæðum gert á sínu fyrsta ári og því sé mikilvægt að koma nemendum úr öllum árgöng- um skólans inn í nefndir. Spurður um námsárangur nem- enda segir hann metnaðinn ekki þann sama en brottfall sé þó ekki mikið. Kári segir ekki stefna í hefð- bundið skólaár en vonar að nem- endafélagið geti haldið eitt innan- skólaball fyrir að minnsta kosti 1.000 manns. Ef ekki segir hann félagið alltaf geta reddað sér og þau hugsi í lausnum. Draumurinn að fá eitt menntaskólaball - Íhuga tvískipt böll með hraðprófum - Þriðja árs nemar að taka sín fyrstu skref í félagslífinu Kári Freyr Kristinsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nítján mál hafa borist félagsdómi til meðferðar það sem af er ári. Er fjöldinn orðinn jafn mikill eða meiri en verið hefur á ári frá 2016, að árinu 2020 undanskildu. Það ár bárust 22 mál allt árið en miðað við þróunina það sem af er þessu ári má búast við að fjöldinn verði í árslok orðinn meiri en það. Óvíst er þó að mála- fjöldinn verði sá sami og á árinu 2015 þegar 29 mál bárust félagsdómi. Af þeim 19 málum sem borist hafa í ár er sjö lokið með dómi eða sátt, samkvæmt upplýsingum frá félags- dómi. Er því 12 málum ólokið og eru þau ýmist í gagnaöflunarfresti eða á dagskrá til aðalmeðferðar. Enn er ólokið tveimur málum frá árinu 2020 og eru þau bæði á dagskrá til aðal- meðferðar. Í báðum hefur félags- dómur kveðið upp úrskurði þar sem kröfum um frávísun hefur verið hafnað að hluta. Málin í ár hafa borist jafnt og þétt yfir árið, yfirleitt um tvö á mánuði, nema hvað maímánuður sker sig úr en þá fékk félagsdómur sjö mál til meðferðar. Félagsdómur lýkur málum yfir- leitt með dómi en stundum næst sátt eða málum er vísað frá. Sem dæmi má nefna að á síðasta ári, 2020, lauk 13 af 22 málum með dómi, fjórir úr- skurðir gengu um frávísun, tveimur málum lauk með sátt og eitt var fellt niður. Þá eru ótalin þau tvö mál sem enn eru til meðferðar. Mörg mál á dagskrá Ekki fást upplýsingar um máls- meðferðartíma hjá félagsdómi þar sem tölfræði um það hefur ekki verið tekin saman á vegum dómsins. Síðasti dómur félagsdóms sem birtur er á vef dómsins er frá 8. júlí en ljóst að annir eru hjá dómnum á næstunni. Næskomandi þriðjudag er á dagskrá aðalmeðferð í máli Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna gegn Samtökum atvinnulífsins vegna málefna Bláfugls en það er mál sem margir bíða eftir. Málið snýst um, að því er fram kom í frétt- um á sínum tíma, hvort uppsagnir félagsmanna FÍA hafi verið löglegar á meðan á kjaraviðræðum stóð sem og ráðning flugmanna með verk- takasamningum. Fyrirtökur eru í þremur málum viku seinna og viku eftir það eru tvær fyrirtökur og aðal- meðferð í einu máli. Lengra nær dagskrá félagsdóms sem birt er á netinu ekki. Ágreiningur á vinnumarkaði Félagsdómur er sérdómstóll sem starfar á grundvelli laga um stétt- arfélög og vinnudeilur. Hlutverk hans er að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins. Félagsdóm- ur hefur aðsetur í dómhúsi Lands- réttar í Kópavogi. Arnfríður Einars- dóttir landsréttardómari er forseti dómsins. Fleiri mál til meðferðar en undanfarin ár - Nítján mál komið til félagsdóms Annir hjá Félagsdómi Fjöldi mála í Félagsdómi 2012-2021* 30 25 20 15 10 5 0 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 Heimild: Félagsdómur 12 12 11 29 16 11 12 19 22 19 *Það sem af er árs 2021 12 þeirra mála sem hafa borist í ár er ólokið og teimurmálum frá 2020 Morgunblaðið/Árni Sæberg Félagsdómur Oft er deilt um gildi verkfalla. Eflingarfólk fagnar hér niðurstöðu í máli á árinu 2019.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.