Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 16

Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 16
VIÐTAL Atli Vigfússon Laxamýri Nýja skógræktarsvæðið í Víðiholti í Reykjahverfi S-Þingeyjarsýslu er þakið af trjáplöntum sem nú eru farnar að teygja sig hærra og hærra. Árssprotarnir þetta sumarið lofa góðu um framhaldið. Ef fer sem horfir verður þetta fallegur gróð- urreitur og mikil bæjarprýði. Það eru Jón Helgi Jóhannsson og kona hans, Unnur Sigríður Káradóttir, bændur í Víðiholti, sem hafa frá árinu 2013 plantað skógi á jörð sinni í samvinnu við Norðurlandsskóga og hafa klætt rúmlega 26 hektara með trjám og nú þegar má sjá falleg tré þótt ekki séu liðin nema átta ár frá því þau hófust handa. Gott aðgengi að skóginum Þetta hefur verið mikil vinna því sjálf hafa þau staðið í því að planta trjánum þótt stundum hafi þau fengið sér aðstoð inn á milli. Alls hafa þau sett niður rúmlega 73 þús- und plöntur og ber þar mest á rússa- lerki og stafafuru og ekki er að sjá annað en að báðar tegundirnar þríf- ist vel. Fleira hefur verið sett niður og má þar nefna lerkiblending, alaskaösp, reynivið, blágreni, birki, hengibirki og gráelri. Þá hafa þau lagað og endurnýjað girðingar á jörðinni sem liggja að skógræktarsvæðinu því svæðið þarf að vera alfriðað fyrir beit. Einnig hafa þau búið til vegslóða um allt skógarumhverfið til þess að aðgengi sé betra og er hægt að keyra eftir þessum vegslóðum sem kemur sér vel þegar verið er að vinna í ákveðnum reitum og tól og tæki þá oft með í för. Þessir vegslóðar voru gerðir með dráttarvél og tætara en það tók ekki sérstaklega langan tíma því landið er auðunnið. Þessir veg- slóðar eru einnig góðir fyrir þá sem vilja ganga um svæðið sem verður gaman þegar skógurinn er orðinn hærri og meiri. Það var árið 2012 sem þau Jón og Unnur ákváðu að sækja um hjá Norðurlandsskógum að gerast skóg- arbændur og í framhaldi af umsókn- inni var gerð úttekt á svæðinu og síð- an var gerður skógræktarsamn- ingur. Eftir það var svæðið kortlagt og gerð skógræktaráætlun til margra ára. Kálflagið orðið að birkiskógi Einnig þurftu þau að sækja grunn- námskeið í skógrækt. Áður en þau gerðust skógarbændur voru þau mjólkurframleiðendur og voru með stórt fjós í áratugi, en með skógrækt- inni hefur nýting jarðarinnar breyst nokkuð og má til gamans nefna að gamalt kálflag er nú orðið að sjálf- vöxnum birki- og víðiskógi. Víða er land Víðiholts viði vaxið með langri friðun. Þar virðast hafa verið til í jörðinni trjáplöntur sem með tímanum hafa orðið að stórum runnum og trjám. Jón man eftir því þegar grafnir voru skurðir, suður af bænum, að upp komu stórir lurkar af birki úr jarveginum sem höfðu varð- veist þar ef til vill um aldir og frá tím- um þegar loftslag var hlýrra. Og hver veit hvað skógurinn verður hár í framtíðinni? Þeim hjónum, Jóni og Unni, finnst skógræktin skemmtileg og eins og Jón hafði við orð: „Það er svo gaman að sjá þetta vaxa.“ Og sannarlega hafa þau klætt jörð sína nýju lífi. Skógrækt skemmtileg búgrein Morgunblaðið/Atli Vigfússon Skógrækt Átta árum eftir að hjónin í Víðiholti hófu skógrækt eru komnir myndarlegir skógarlundir á jörðinni, sem þekja alls um 26 hektara. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Skógarbændur Jón Helgi Jóhannsson og kona hans, Unnur Sigríður Kára- dóttir, eru bændur í Víðiholti í Reykjahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu. - Jón Helgi Jóhannsson og Unnur Sigríður Káradóttir tóku sig til árið 2013 og plöntuðu trjám á jörð sinni, Víðiholti í S-Þingeyjarsýslu - Hafa sett niður 73 þúsund plöntur - 26 hektarar þaktir trjám Norðurlandsskógar voru stofnaðir árið 2000. Starfssvæði þeirra er frá Hrútafirði austur á Langa- nes. Upphafleg starfsáætlun Norðurlandsskóga var gerð til 40 ára og markmiðið var að klæða skógi á þeim tíma 5% láglendis undir 400 metra hæð yfir sjó. Fjölbreytni er eitt af einkennum Norðurlands- skóga og er áhersla lögð á að blanda saman teg- undum til þess að skapa fjölbreytt vistkerfi en tals- verð áhersla er einnig á skjólbeltarækt. Eftir sameiningu skógræktarstofnana 2016 heyrir skóg- rækt á lögbýlum undir skógarauðlindasvið Skóg- ræktarinnar. Eftir sameininguna hefur gefist gott tækifæri til samræmingar og samvinnu auk þess sem þekking starfsfólks og reynsla nýtist betur hvarvetna um landið. Allir starfsmenn eru fagmenntaðir á sviði skóg- ræktar og er hlutverk þeirra að leiðbeina skóg- arbændum við verklegar framkvæmdir og aðstoða við áætlana- og skipulagsgerð. Markmiðið að klæða skógi á́ 5% láglendis NORÐURLANDSSKÓGAR STOFNAÐIR UM SÍÐUSTU ALDAMÓT Morgunblaðið/Árni Sæberg Tré Skógræktinni hefur vaxið fiskur um hrygg víða um land. 16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.