Morgunblaðið - 28.08.2021, Side 22
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Reynir Grétarsson var í vikunni ráð-
inn forstjóri greiðslumiðlunarfyrir-
tækisins SaltPay á Íslandi, sem áður
hét Borgun. Fyrirtækið er í eigu al-
þjóðlegs fjárfestingafyrirtækis.
Eins og Reynir útskýrir í samtali
við Morgunblaðið er þetta í fyrsta
skipti síðan hann útskrifaðist úr há-
skóla sem hann vinnur hjá öðrum en
sjálfum sér. Reynir stofnaði fjár-
tæknifyrirtækið Creditinfo fyrir tutt-
ugu og fjórum árum og stjórnaði því í
yfir 20 ár. Eftir að hann lét af störfum
tók hann þátt í stofnun tveggja
sprotafyrirtækja,
fjártæknifyrirtækisins Two Birds og
stafræna markaðssetningarfyrirtæk-
isins Svartagaldurs.
„Vinur minn er stjórnarformaður
SaltPay og hann hefur reynst mér
mjög vel. Fráfarandi forstjórar, þeir
Eduardo Pontes og Marcos Nunes,
ætluðu aldrei að vera forstjórar á Ís-
landi til lengri tíma. Markmiðið var að
einhver Íslendingur myndi á endan-
um setjast í forstjórastólinn. Hjá
Creditinfo vann fólk sig upp innan
fyrirtækisins og það má segja að þar
sem ég hef setið í stjórn SaltPay und-
anfarin ár hafi ég verið orðinn hálf-
gerður innanbúðarmaður. Ég kem
því inn í þetta starf með svipuðum
hætti og tíðkaðist hjá mínu gamla
fyrirtæki,“ segir Reynir.
Þörf á gömlum hundi
Hann segir að í gegnum tuttugu
ára starf innan Creditinfo, sem er
með útibú í meira en 20 löndum, búi
hann að góðri reynslu af að vinna með
alþjóðlegum hópi starfsmanna þar
sem margir menningarheimar mæt-
ast. „Mér fannst vanta forstjóra sem
gæti hjálpað íslensku starfsmönnun-
um að skilja útlensku starfsmennina
og öfugt. Það var þörf á svona göml-
um hundi eins og mér sem getur sagt
hlutina eins og þeir eru,“ segir Reynir
og brosir. „Það er mitt starf að reyna
að hjálpa þessu fyrirtæki að verða
hluti af samfélaginu sem það starfar
í.“
Reynir segir ýmsar áskoranir blasa
við í umhverfi fyrirtækisins. Hann
segir að frétt ViðskiptaMoggans á
dögunum um að innan íslenska
stjórnkerfisins væru áhyggjur af því
greiðsluinnviðir í landinu væru að
færast í erlenda eigu, hafi hreyft við
sér, en bæði SaltPay og Valitor eru
komin í erlenda eigu. Var það sam-
kvæmt fréttinni talin ógn við þjóðar-
öryggi og var jafnvel viðraður sá
möguleiki að ríkið kæmi á fót opin-
berri greiðslumiðlun til að bregðast
við ástandinu.
„Ég skil bara ekki hvaðan þessi ótti
kemur, en ég er til í að hlusta á hann.
Það hljómar illa í mín eyru ef fólk er
að hugsa um að þjóðnýta bransa bara
af því að hann er kominn í eigu út-
lendinga. Ég vona að enginn sé að
hugsa um það því þá erum við að
missa nauðsynlega erlenda fjárfest-
ingu úr landinu. Hennar er ekki hvað
síst þörf í þekkingargeira eins og
þeim sem við erum í. SaltPay er að
koma með fullt af fjármagni og þekk-
ingu inn í landið. Hér er fjöldi fólks að
störfum sem á eftir að búa til mikil
verðmæti fyrir samfélagið. Ég veit
ekki af hverju menn hafa áhyggjur,
en ég veit að þær eru ástæðulausar.“
Gjörbreytt fyrirtæki
Reynir segir að SaltPay sé gjör-
breytt frá því þegar hann kom fyrst
inn í stjórn fyrirtækisins, þegar það
var enn í eigu Íslandsbanka. „Það er
búið að skipta út mörgu fólki hér og
breyta ferlum. Ég er ekki að segja að
fólkið hafi verið slæmir starfsmenn,
heldur þurfti bara öðruvísi fólk í öðru-
vísi störf. Hér hefur orkunni allri ver-
ið beitt inn á við í þjálfun. Hjá félaginu
er hörkulið, fólk með mikla þekkingu
og fullt af eldmóði.“
Spurður um næstu skref í rekstri
SaltPay hér á landi segir Reynir að
kapphlaup sé fram undan. „Hér áður
fyrr voru þessi greiðslumiðlunarfyrir-
tæki svolítið að þrífast á því að þjón-
usta viðskiptavini sem voru sumir of
áhættusamir. Svo hættu menn því og
þá varð reksturinn erfiður. Ofan á
þetta bættist að tölvukerfin voru orð-
in gömul og það var orðin þörf á að fá
inn erlenda fjárfesta með fé og þekk-
ingu til að endurnýja þessi fyrirtæki.
Það eru frábærar fréttir fyrir Ísland
að það hafi tekist. Nú eru menn bara
að stilla upp sínum liðum í komandi
samkeppni og ég ætla að sjá til þess
að mitt lið sé klárt.“
Bylting fram undan
Spurður nánar um þýðingu fyrir
viðskiptavini SaltPay, kaupmennina,
segir Reynir að þeir muni uppskera
meðal annars í bættum kjörum. Það
smitist svo vonandi út til þeirra við-
skiptavina.
„Stefnan hjá SaltPay er að leggja
áherslu á minni aðilana á markaðn-
um. Auk greiðslumiðlunar munum við
bjóða upp á tryggðarkerfi og annað
sem tengist fjármögnun m.a. Það er
bylting fram undan á þessum mark-
aði sem mun skila mikilli hagræðingu
og sparnaði.“
Ástæðulausar áhyggjur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fjártækni Reynir
Grétarsson segir að hjá
Salt Pay starfi hörkulið,
fólk með mikla þekkingu
og sé fullt af eldmóði.
- Nýr forstjóri SaltPay segir það hljóma illa í sín eyru ef fólk vilji þjóðnýta atvinnu-
grein bara af því að hún er komin í eigu útlendinga - Breytingar skila betri kjörum
Hirðing
» Salt Pay var rekið með 1,2
milljarða króna tapi á síðasta
ári.
» Eignir félagsins nema rúm-
um sautján milljörðum króna.
» Salt Pay hét áður Borgun og
hefur sinnt greiðslumiðlun á
Íslandi í 35 ár.
Nú kveður hins vegar við allt
annan tón og safnið fært upp um
hvorki meira né minna en 3,9
milljarða. Stendur því matsbreyt-
ingin hjá félaginu undir 45% af
virðisbreytingum félaganna
þriggja í heild, sem nema 8,7 millj-
örðum.
Gríðarlegar hækkanir
Batnandi horfur um hvernig ís-
lensku hagkerfi muni reiða af í
kjölfar heimsfaraldurs kórónuveir-
unnar valda því að hlutabréfaverð
félaganna þriggja hefur hækkað
gríðarlega síðustu tólf mánuði.
Mesta hækkunin var þó strax tek-
in út fyrir áramót. Þannig hafa
hlutabréf Eikar hækkað um
96,72% síðastliðna 12 mánuði og
um 23,09% frá áramótum. Reitir
hafa hækkað um 78,71% síðastliðið
ár og um 5% frá áramótum og
Reginn hefur hækkað mest eða um
114,18% síðastliðna 12 mánuði og
um 28,95% frá áramótum.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fyrri hluti ársins 2021 reyndist
fasteignafélögunum þremur, sem
skráð eru í Kauphöll Íslands,
nokkuð hagfelldur.
Birtist það helst í þeirri stað-
reynd að matsbreytingar fjárfest-
ingareigna voru jákvæðar svo um
munaði. Er það viðsnúningur frá
fyrra ári þegar félögin færðu öll
niður eignasöfn sín á fyrri hluta
ársins.
Sýnu mest breytist staðan hjá
Reitum en þar er sveiflan tæpir
4,4 milljarðar króna. Matsbreyt-
ingarnar eru jákvæðar um 2,3
milljarða en voru neikvæðar um
2,1 milljarð yfir sama tímabil fyrra
árs. Eik færir nú í bækur sínar
uppfærslu safnsins um 2,5 millj-
arða króna en hafði fært það niður
um 815 milljónir í fyrra.
Reginn hafði brugðist við heims-
faraldri kórónuveirunnar af meiri
ró en hin félögin tvö og því voru
matsbreytingarnar aðeins nei-
kvæðar sem nam 62 milljónum á
fyrri hluta árs í fyrra.
Fasteignafélögin ná vopn-
um sínum eftir bakslag
- Matsbreytingar jákvæðar um 8,7 milljarða á fyrri hluta árs
Eik Reginn Reitir
2020 2021 2020 2021 2020 2021
Leigutekjur 3.743 3.789 4.446 4.910 5.441 5.571
Matsbreyting fjárfestingareigna -815 2.535 -62 3.914 -2.115 2.256
Rekstrarhagnaður 1.433 5.232 2.967 7.556 1.532 5.838
Hagnaður -439 2.306 95 3.241 -1.223 1.856
Afkoma fasteignafélaganna
Fyrri árshelmingur
2020 og 2021
Heimild: Árshlutareikningar
félaganna
Milljónir kr.
28. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.26
Sterlingspund 173.35
Kanadadalur 100.13
Dönsk króna 19.983
Norsk króna 14.344
Sænsk króna 14.509
Svissn. franki 137.73
Japanskt jen 1.1466
SDR 179.37
Evra 148.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.463
« Súkkulaðigerðin Omnom skilaði
tæplega 30 milljóna króna hagnaði í
fyrra eftir að hafa tapað tæpum 12
milljónum á rekstrarárinu 2019. Þetta
kemur fram í ársreikningi félagsins.
Þar má sjá að vörusala nam tæpum
439 milljónum króna á árinu og jókst
hún um 95 milljónir á milli ára.
Athygli vekur að launakostnaður
lækkar milli ára og nemur 149,4 millj-
ónum, samanborið við 156,3 milljónir
árið 2019. Hins vegar jókst kostnaður
við markaðssetningu, flutningsgjöld og
vöruþróun verulega. Fór úr 24,9 millj-
ónum í 66,3 milljónir króna. Eignir
fyrirtækisins námu 309,5 milljónum í
árslok 2020 og höfðu aukist um 43,8
milljónir milli ára. Skuldir námu 180
milljónum og jukust um rúmar 14
milljónir. Eigið fé stóð því í 129,6 millj-
ónum um áramót. Omnom var stofnað
árið 2013 og hóf framleiðslu á súkku-
laðivörum á Austurströnd á Seltjarn-
arnesi í húsnæði sem áður hýsti elds-
neytisafgreiðslu Skeljungs. Fyrirtækið
flutti síðar á Hólmaslóð á Granda þar
sem framleiðslugeta þess margfald-
aðist.
Mikil sigling á súkku-
laðiframleiðslunni
Vinsælt Súkkulaðið selst afar vel.
STUTT
« Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands
hefur stækkað um jafnvirði 55,4 millj-
arða króna í kjölfar þess að Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn (AGS) úthlutaði
forðaeign í sérstökum dráttarréttindum
(SDR) til aðildarlanda sjóðsins 23.
ágúst. Heildarúthlutun sjóðsins til að-
ildarríkjanna nemur 650 milljörðum
dollara og dreift til aðildarlandanna í
réttu hlutfalli við kvóta þeirra. Eru þeir
ákvarðaðir út frá stöðu ríkjanna í
heimshagkerfinu og mynda grunninn
að útlánagetu sjóðsins. Úthlutunin er
sú stærsta í sögu AGS og á m.a. rætur
að rekja til þeirra þrenginga sem mörg
lönd hafa gengið í gegnum vegna
heimsfaraldurs kórónuveirunnar.
Forðaeign Íslands í SDR fyrir út-
hlutun var tæplega 184 milljónir SDR en
hún jókst um ríflega 308 milljónir SDR
við hana. Gjaldeyrisforðinn stækkar því
úr því að svara til 29% af vergri lands-
framleiðslu í 31%. Hlutdeild SDR af
forðanum fer úr 4% í 10%.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gjaldeyrisvaraforðinn
stækkar talsvert