Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Steinunn Þórarinsdóttir myndlistar-
maður hefur staðið í ströngu í Dan-
mörku í vikunni við uppsetningu á
sýningum í Kaupmannahöfn og
Óðinsvéum. Eru skúlptúrarnir 27
talsins eftir Steinunni sem sýndir
eru í borgunum og verkefnið því afar
umfangsmikið.
Þegar blaðamaður nær tali af
Steinunni á mánudegi er hún á
Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn
að leggja lokahönd á uppsetningu
verka sinna þar á sýningu sem nefn-
ist Armors og förinni næst heitið til
Óðinsvéa. Þar verður sýningin
Connections haldin, í samstarfi við
SDU-háskólann.
Eitt stórt heildarverkefni
Steinunn er beðin að segja frá
sýningunum tveimur og segir hún að
líta megi á þær sem eitt stórt heild-
arverkefni. „Þannig lítum við á
þetta, ég og samstarfsmaður minn
James Rogers, prófessor við háskól-
ann í Óðinsvéum, þótt þetta séu
tvær ólíkar sýningar. Innsetningin á
Kongens Nytorv er ákveðið og sér-
stakt konsept, ég sýndi hana í New
York fyrir tveimur árum. Hún heitir
Armors og kom þannig til að ég
dvaldi í New York fyrir nokkrum ár-
um og heimsótti Metropolitan-safnið
mjög oft. Ég heillaðist af brynj-
udeild þeirra og hugmyndinni um
brynjuna sem tákn valds og stríðs,“
segir Steinunn.
Hún hafi í framhaldi átt í sam-
starfi við safnið og voru þrjár evr-
ópskar miðaldabrynjur úr safneign-
inni skannaðar í þrívídd. „Síðan bjó
ég til skúlptúra úr þessum skönn-
unum sem steyptir voru úr áli. Á
móti brynjunum eru táknrænar fíg-
úrur sem fólk kannast við úr mínum
ranni,“ útskýrir Steinunn og á þar
við mannverurnar sem hún er þekkt
fyrir.
Hún segir þarna mætast hinn
nakta, varnarlausa einstakling gegn
valdi og ógn. „Þetta er þörf manns-
ins fyrir að vera sífellt að verja sig
og konseptið tengist ástandinu í
heiminum í dag þar sem við höfum
einmitt þurft að verja okkur gegn
sameiginlegum óvini sem er veira.
Það má yfirfæra þetta symbólskt á
ýmislegt sem er að gerast í kringum
okkur.“
Brynjur frá Þýskalandi,
Ítalíu og Bretlandi
Steinunn segir áhugavert að sjá
mannverur sínar standa andspænis
brynjunum. Þær séu ekki bara varn-
arlausar heldur líka að bjóða brynj-
unum birginn. Skúlptúrarnir í Kaup-
mannahöfn eru í þremur pörum, sex
skúlptúrar og brynjurnar hver ann-
arri ólíkar, frá Ítalíu, Þýskalandi og
Bretlandi. Allar eiga þær þó upphaf
sitt í miðöldum þó svo að þær séu
núna komnar yfir á 21. öldina.
„Þær eru mjög ólíkar innbyrðis og
fígúrurnar sem á móti þeim standa
eru í sömu stellingum,“ útskýrir
Steinunn. Hún hafi beðið son sinn,
módelið sem hún vinnur með og hafi
lengi gert, að setja sig í sömu stell-
ingar og brynjurnar. Með því er
hægt að ímynda sér manneskjuna
sjálfa í brynjunni. „Þar koma fram
ákveðin hlutverkaskipti sem mér
finnst áhugavert fyrirbæri, þessi
dúalismi í okkur. Við sjálf eigum svo
marga fleti, bæði góða og vonda,
friðsama og árásargjarna.“
Sonur Steinunnar, Þórarinn Ingi,
hefur verið fyrirsæta hennar frá
fjórtán ára aldri og má því segja að
verurnar hafi elst með honum í ár-
anna rás. Nú er Steinunn farin að
nota yngri son sinn, Þórð Inga, sem
fyrirsætu og undirstrikar hún að
synir hennar tveir séu grunnur
verkanna frekar en að stytturnar
séu nákvæm afrit eða afsteypur af
þeim.
Óöryggi og átök manna
Sýningin í Óðinsvéum ber titilinn
Connections, sambönd eða tengsl,
og segir Steinunn útgangspunkt
hennar í raun nátengdan sýningunni
Armors. „James Rogers er sagn-
fræðingur og sérfræðingur í hern-
aði, „human insecurity“ og „human
conflict“. Það eru hans sérsvið og við
höfum unnið saman áður, höfum
blandað saman hans fagi og því sem
ég er að gera,“ segir Steinunn. Á
sýningunni í Óðinsvéum megi sjá
þessa grundvallarhugmynd um sam-
band og sambandsleysi mannsins.
Háskólinn og DIAS-deildin innan
hans, sem James Rogers starfar
með, hefur haft veg og vanda af
framkvæmd verkefnisins með góðri
aðstoð frá Albani-sjóðnum. Einnig
hefur gallerí Steinunnar í Kaup-
mannahöfn, Galleri Christoffer
Egelund, verið samstarfsaðili í verk-
efninu.
Háskólabyggingarnar eru klædd-
ar með hægtryðgandi kortenstáli og
því ryðgaðar líkt og verkin eftir
Steinunni sem verða sett þar upp.
Þau tengjast því mjög sterkt um-
hverfi sínu, sum þeirra innan kassa
sem er líka ákveðin vörn eða brynja,
að sögn Steinunnar. „Þau eru blanda
af abstraktformi við lífrænt form,
fígúruna. Eins og titillinn á sýning-
unni Connections ber með sér hefur
sú sýning að mörgu leyti sömu tilvís-
anir og Armors þannig að þetta
hangir allt saman,“ segir hún.
Ein innsetning til viðbótar verður
í miðborg Óðinsvéa, á einu af aðal-
torgum hennar, og verk eftir Stein-
unni má líka sjá við Norðurlanda-
húsið í borginni. Í Kaupmannahöfn
verður svo eitt verk að auki fyrir
utan íslenska sendiráðið.
Þúsund ár duga ekki til
Blaðamaður hefur orð á því að
þetta séu afar mörg verk sem Stein-
unn sýni í Danmörku og öll eru þau í
raunstærð og þurfti því að flytja þau
í 40 feta gámi til landsins. „Ég lít á
þetta sem innrás til Danmerkur,“
segir Steinunn kímin og er það þá
væntanlega innrás af jákvæðara tag-
inu. Listræn innrás.
Steinunn er spurð að því hvort
þetta sé stærsta verkefni hennar til
þessa, samanlagðar sýningar í
Kaupmannahöfn og Óðinsvéum. „Já,
ég myndi segja það. Ég var með sýn-
ingu hérna 2015 víða um Kaup-
mannahöfn. Hún var reyndar ansi
viðamikil líka en þessi hefur samt
verið flóknari af því við erum ekki
bara í Kaupmannahöfn heldur líka í
Óðinsvéum. Þannig að ég myndi
segja að þetta væri, jú, stærsta verk-
efnið mitt hingað til,“ svarar Stein-
unn.
Hún hefur unnið að hinni stóru
hugmynd um manninn í yfir 40 ár,
allt frá því hún hóf myndlistarnám.
„Þótt ég yrði þúsund ára myndi ég
ekki geta klárað þessa hugmynd,“
segir hún. Synir hennar tveir hafi
verið fyrirsæturnar og af því sam-
starfi hefur sprottið hin kynlausa
ímynd mannsins sem orðin er þekkt
víða um lönd.
Verk Steinunnar á vef Christoffer
Egelund-gallerísins má kynna sér á
slóðinni christofferegelund.dk/
armors-by-steinunn-thorarinsdottir/
og sýninguna Connections á slóðinni
danish-ias.dk/connections.
„Ég lít á þetta sem innrás“
- Steinunn Þórarinsdóttir sýnir skúlptúra sína í Kaupmannahöfn og Óðinsvéum - 27 skúlptúrar í heildina
- Stærsta verkefni listakonunnar til þessa - Hefur unnið með hugmyndina um manninn í yfir 40 ár
Í Kaupmannahöfn Steinunn við tvo af skúlptúrum innsetningar sinnar , Armors, á Kongens Nytorv í hjarta Kaupmannahafnar nú í vikunni.
Í Óðinsvéum Verkið Audience á vegg við SDU-háskólann í Óðinsvéum.