Morgunblaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 7
Akraneskaupstaður Sveitarfélagið Árborg Sveitarfélagið Ölfus Hella Reykjanesbær Suðurnesjabær Sandgerði Mýrdalshreppur Sveitarfélagið Hornafjörður Kópavogur MosfellsbærReykjavíkurborg Garðabær Hafnarfjarðarkaupstaður Blönduós Sveitarfélagið Skagafjörður Dalvíkurbyggð Sveitarfélagið Norðurþing Dalabyggð Reykhólahreppur Ísafjarðarbær Tálknafjarðarhreppur Húnaþing vestra Borgarfjarðarhreppur Vopnafjarðarhreppur Fljótsdalshérað Akureyrarbær Þingeyjarsveit Vestmannaeyjabær Múlaþing Rangárþing ytra Seltjarnarnes Snæfellsbær Strandarbyggð Vesturbyggð Fjölgum íbúðum fyrir tekju- og eignalága Stofnframlög Opið fyrir umsóknir um stofnframlög hms.isBorgartúni 21, 105 Rvk - Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki Auglýst er eftir umsóknum í seinni úthlutun fyrir árið 2021 umstofnframlög ríkisins til byggingar eðakaupaáalmennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og reglugerð nr. 183/2020. Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Við mat á umsóknum er lögð sérstök áhersla á eftirfarandi þætti: • Nýbyggingar og fjölgun leiguíbúða. • Íbúðir á svæðum þar sem þörf er fyrir leiguíbúðir fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Auk þess verður lögð áhersla á: • Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergjafjölda varðar. • Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað. • Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa á hverju svæði. • Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og félagslegri blöndun. Umsóknarfrestur: 24. október 2021 Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Til þess að hægt sé að meta umsókn þurfa öll gögn skv. 14. gr. reglugerðar nr. 183/2020 að skila sér innan umsóknarfrests. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, www.hms.is. Stofnframlögumþegar úthlutað vegna 2.899 almennra íbúða Húsnæðis- og mannvirkjastofnun úthlutar stofnframlögum til samfélagssinnaðra leigusala til að kaupa eða byggja almennar íbúðir. Markmiðið er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi eignalítilla og tekjulágra. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Almenna íbúðakerfið var sett á stofn árið 2016 og hefur nú þegar 17,3 milljörðum króna verið úthlutað til byggingar og kaupa á 2.899 íbúðum víðsvegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingu nemur um 89 milljörðum króna. Sveitarfélög þar sem veitt hefur verið stofnframlag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.