Morgunblaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2021
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég beið spenntur eftir þess-
ari þriðju plötu Gróu því að
plöturnar tvær fram að
þessu hafa verið mjög skemmtilegar.
Þið afsakið þessa temmilega ópopp-
fræðilegu byrjun og lágmarks dokt-
orstakta en stundum – jafnvel oft –
þarf ekki að flækja hlutina mikið.
Með Gróu er alveg ljóst hvað í gangi
er frá fyrsta tóni. Hér er ástríða,
orka, sköpun, óþreyja, galsi,
skemmtan og gleði. Það er varla púls
mælanlegur í þér ef þú nemur þetta
ekki eftir ca. hálft rennsli í gegnum
eitthvert Gróulagið.
Sveitin er samstarfsverkefni
þeirra Fríðu
Bjargar Péturs-
dóttur sem spilar
á bassa, Hrafn-
hildar Ein-
arsdóttur sem
spilar á trommur
og söngkonunnar
Karólínu Einarsdóttur. Sótt er í
skapalón sígildra kvennapönksveita
eins og Slits, Raincoats og Grýlna
upp að vissu marki þó eðlilega sé
þetta ekki alveg svo einfalt. Fyrstu
tvær plöturnar innihalda hrátt og
skemmtilegt pönk, melódískt en til-
raunakennt líka. Karólína syngur og
öskrar með miklum tilþrifum, gefur
lögunum öllum mikinn karakter.
Hnyttnir textar, fíflalegir og margt
látið fljúga – og standa. Til þess að
gera eru þessar tvær fyrstu plötur
áþekkar, sú seinni þó öruggari um
marga hluti.
Nýja platan brýtur að vissu leyti
blað í sögu Gróu. Hún er lengsta
platan til þessa, tólf laga og um 43
Pönkast í ömmubuxum
Orka Gróa á Airwaves, 2019, þar sem KEXP tók upp herlegheitin.
mínútur. Það er í raun meira hisp-
ursleysi en nokkru sinni áður. Í stað
þess að þétta sig og formfesta, sem
er svo algengt, hafa þær í raun aldrei
verið villtari og hrárri. Betri – en
brjálaðri. Þetta er athyglisverð þró-
un í raun.
„Ég skal bíða eftir þér“ opnar
plötuna eftir óm og garg úr ein-
hverju áhrifshljóðstækinu. Karólína
syngur, ógnandi en prúð á sama
tíma!? Það er ákefð í þessu lagi sem
sleppir manni ekki. „Dansa uppá
þaki“ er tækifæri fyrir Fríðu og
Hrafnhildi til að láta ljós sitt skína.
Leikandi bassi og uppteknar tromm-
ur leiða lagið út í gegn. „Granny-
pants“ er líkast til uppáhaldslagið
mitt á allri plötunni og ber með sér
mikil þroskamerki. Gítaróhljóð og
-áhrif eru nýtt á mjög flotta vegu, ríf-
andi gítar sem minnir mig á Sonic
Youth í kringum EVOL eða Bad
Moon Rising. Klasturslegur gítar
Andy Gill úr Gang of Four er þarna á
svifi líka. Óhamin smíð – nánast
djamm – sem dregur mann inn.
Gróa hefur ekki áður leyft sér
svona mikinn losarabrag. „Juicy berr
í leyni“ ýjar að svipuðu hamsleysi.
Hávaðagítarar á sveimi og lagið
óstöðugt og ringlað. Frábært! Það
eru þó lög hérna sem mætti kalla frá-
kast. „Trúðu á þig trúður“ er í raun
óklárað, skissa sem hefði alveg mátt
vera utan plötu. En þetta er svona
eina dæmið eiginlega um misstig.
„Stærsta hjarta í heimi“ inniheldur
gítarspil í anda Þeysara og seinni
tíma Purrks og eins og með alla plöt-
una, það er mikið „attitjúd“ í því, lag-
ið er bæði hart og linnulaust. Það
virðist ætla að leysast upp um mið-
bikið en aftur er því lent og Karólína
syngur einfaldar textalínurnar aftur
og aftur líkt og hún sé í trans.
Stórgóð plata og í raun ekki eins
og ég átti von á. Venjulega, eins og
ég hef lýst, verða sveitir straumlínu-
lagaðri með tímanum en Gróa ætlar
ekki að láta hanka sig á neinu slíku.
Ég er forvitinn að vita hvert þetta fer
næst, hvert þær taka þetta. Þær eru
enn kornungar, margt framundan og
svo óskaplega margt í stöðunni
mætti segja.
»
Í stað þess að þétta
sig og formfesta,
sem er svo algengt,
hafa þær í raun aldrei
verið villtari og hrárri.
Betri – en brjálaðri.
Þetta er athyglisverð
þróun í raun.
What I like to do er
þriðja breiðskífa Gróu
sem verður að teljast
allnokkur árangur en
meðlimir eru enn undir
tvítugu.
Jón B.K. Ransu
opnar mynd-
listarsýningu í
dag í Listamönn-
um galleríi á
Skúlagötu 32 og
ber hún titilinn
Röðun / Se-
quencing.
Segir um hana
í tilkynningu að
austurríski mannspekingurinn
Rudolf Steiner hafi haldið því fram
að manneskjan byggi í tveimur
heimum í senn, hinum andlega og
efnislega og sænska listakonan
Hilma af Klint túlkað þessi fræði í
myndröðinni Svanir. „Fyrst túlkaði
hún heimana tvo sem svartan og
hvítan svan. En síðar gaf hún þeim
hringform sem klofnuðu í lit en
stóðu sem heil form á fletinum
miðjum,“ segir í tilkynningu og að
undanfarin ár hafi Jón B.K. Ransu
sótt innblástur í þessi verk Hilmu af
Klint sem og Edvards Munch og þá
aðallega „Ópið“. Segir að í „Ópinu“
mætist tveir heimar, hins þekkta og
óþekkta eða skynjaða og óskynjaða.
Síðustu sýningar Ransu hafa vísað
til þessara verka Munch og af Klint
og er sýningin Röðun / Sequencing
í formrænu framhaldi af þeim.
Ransu sýnir í
Listamönnum
Jón B.K. Ransu
Kristín Tryggva-
dóttir opnar sýn-
inguna Vídd í
dag kl. 14 í Gall-
eríi Göngum við
Háteigskirkju.
Verk Kristínar á
sýningunni
spegla áhuga
hennar á vídd,
fjölbreyttan
skilning tungu
og tákna með tengingu við hina
óendanlegu veröld fjarlægðar og
nálægðar, eins og segir í tilkynn-
ingu og er veröld nær og fjær túlk-
uð allt frá hinu huglæga og ósjáan-
lega til okkar fótspora. Jörð,
himingeimur, táknmyndir, jafn-
vægi og fegurð eru í verkunum.
Sýningin stendur yfir til 2. nóv-
ember.
Veröld nær og fjær
í Galleríi Göngum
Kristín
Tryggvadóttir