Morgunblaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 35
hagvangur.is Vaki fiskeldiskerfi ehf. var stofnað árið 1986 og hefur frá fyrstu tíð verið leiðandi fyrirtæki í hönnun og þróun á hátæknibúnaði fyrir fiskeldi um allan heim. Rúmlega 30 starfsmenn sinna vöruþróun, framleiðslu, sölu og þjónustu í höfuðstöðvum Vaka á Íslandi og sölu- og þjónustuaðilar eru á öllum stærstu mörkuðum erlendis. Árið 2019 keypti MSD Animal Health allt hlutafé í Vaka og nú sem hluti af MSD eru uppi spennandi áform um stækkun og eflingu fyrirtækisins. Aukin áhersla verður lögð á vöruþróun og þjónustu í nánu samstarfi við viðskiptavini og munu nýjar lausnir Vaka stuðla að framþróun fiskeldis um allan heim. Frekari upplýsingar á www.vaki.is Starfsstöð beggja starfa er í húsnæði Vaka í Kópavogi. Umsóknarfrestur er til og með 10. október nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is Við leitum að öflugum starfsmanni í framleiðslu sem sér um lokasamsetningu, prófanir og pökkun á vörum til afhendingar. Við leitum að víðsýnum og sveigjanlegum aðila sem býr yfir ríkri þjónustulund og góðri samskiptahæfni. Starfsmaður í framleiðslu heyrir undir framleiðslustjóra og tilheyrir framleiðsluteymi. Helstu verkefni • Samsetning, prófanir og pökkun á framleiðslubúnaði Vaka • Villuprófanir og viðhald á framleiðslubúnaði Vaka • Tæknileg aðstoð við undirverktaka • Fjarþjónusta við notendur og þjónustuaðila • Þátttaka í þróunarverkefnum Hæfniviðmið • Nám í rafvirkjun, vélvirkjun eða önnur sambærileg menntun • Reynsla og áhugi á tæknivinnu • Færni í bilanaprófunum vélbúnaðar og annars tæknibúnaðar • Góð enskukunnátta er skilyrði • Góð tölvukunnátta • Jákvæðni og rík þjónustulund • Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptahæfni Starfsmaður í framleiðslu Innkaupa- og birgðastjóri mun leiða innleiðingu stefnumótandi innkaupakeðju þar sem áhersla er á frammistöðu, gæði og hagkvæmni. Við leitum að aðila sem hefur reynslu af þróun innkaupa- og vörustjórnunarkerfis. Helstu verkefni • Innleiðing og stefnumótun innkaupa- og birgðastefnu • Þróa og viðhalda nauðsynlegu birgðamagni og efni til að hámarka framleiðslu • Vinna í samstarfi við sölu-, rekstrar- og þjónustudeild • Skilgreina lykilmælikvarða (KPIs) • Leggja til lausnir til úrbóta á ferlum • Val á sölu- og dreifingaraðilum í samstarfi við fjármála-, sölu-, og framleiðsluteymi • Byggja upp og viðhalda góðum tengslum við sölu- og dreifingaraðila Hæfniviðmið • Reynsla á þessu sviði æskileg, framhaldsmenntun í verkfræði eða viðskiptum er kostur • Framúrskarandi skipulagshæfni og auga fyrir smáatriðum • Góður skilningur á vörum fyrirtækisins og flutningaleiðum • Greiningarhæfni og góð hæfni til úrlausna vandamála • Kunnátta í Microsoft Office Suite eða tengdum hugbúnaði • Kunnátta á Dynamic Ax, SAP eða önnur ERP kerfi Innkaupa- og birgðastjóri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.