Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 42

Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 42
40 sem best voru ríðandi komu á Borðeyrina. Mælt er að ein brúð- urin, Anna Ísleifsdóttir, hafi látið þau orð falla að þessi truflun á veislunni, er menn ruku í burtu í ofboði, boðaði óhamingju í hjónabandinu. Það væri gömul þjóðtrú. Anna missti mann sinn í sjóinn eftir átta ára sambúð. Það er einnig í frásögur fært að Jón kammerráð á Melum sendi skipsmönnum vel alið naut sem þakk- lætisvott fyrir áræði og dugnað og hefðu þeir vel fagnað óvæntri gjöf. Næsta sumar kom engin sigling til Borðeyrar en árið 1850 kom þangað Hildebrandt frá Hólanesi á skipinu Fortuna. Sama ár kom einnig Jacobsen, kaupmaður frá Skagaströnd, á skipi sínu Experiment og var maður að nafni Riis skipstjóri, faðir Richards P. Riis er síðar varð kaupmaður á Borðeyri. Clausen sendi einnig Sörensen skipstjóra sinn en nú á stærra skipi er Meta hét og var 70 lestir. Nú voru skipin lestuð erlendis en ekki send með vöru- leifar.8 Um þessar mundir bjó á Kolbeinsá eyfirskur maður, Ólafur Gíslason. Hann var mikill sægarpur og hákarlaveiðimaður. Sótti jagt til Kaupmannahafnar veturinn 1859. Ólafur var hafnsögu- maður í Hrútafirði er siglingar hófust að nýju og allan þann tíma er lausakaupmenn eða spekúlantar sigldu til Borðeyrar. Lóðsaði hann mörg af þeim skipum er komu í Hrútafjörð en fyrir kom að hann var í hákarlalegu er skip komu inn og urðu þau þá að sigla leiðsögulaust. Stundum var það einnig gert af sparnaðarástæðum því að hafnsögumaður var nokkuð dýr, 28 dali kostaði að leið- beina skipi inn en 16 dali út. Lausakaupmenn komu venjulega um fardaga og máttu versla í mánuð en urðu annars fyrir útgjöld- um. Pantaðar vörur mátti þó afgreiða eftir þann tíma. Ýmsir kaupmenn sigldu til Borðeyrar um þetta leyti og komu tveir til þrír eða fleiri á hverju vori. Oftast er nefndur Bjarni Sand- holt, mágur Hans Clausens, og Valdimar Bryde, einnig Carl Fred- rik Glad frá Kjöge sem talinn var helsti keppinautur hinna. Þótti hann gefa betri kjör og vera liprari. Í því sambandi má nefna frá- 8 Í Brandsstaða annál Björns Bjarnasonar (Reykjavík 1941) er öðruvísi sagt frá upphafi verslunar á Borðeyri. Árið 1849 segir: „Nú byrjaði Borðeyrarhöndlun. Fóru 2 skip frá Höfðakaupstöðum þangað, og lausakaupmaður kom þar með það þriðja“ (bls. 167). Hann segir einnig að þrjú skip hafi komið 1850 og 1851 og þá hafi verið orðin mikil verslun á Borðeyri: „Sóttu þangað lestir sunnan yfir heiði og vestan úr Dölum og all- ur Miðfjörður“ (bls. 177).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.