Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 76
74
og þvottur á haustull því að þá voru margar gærur rakaðar, bjór-
arnir hengdir upp á rár í eldhúsinu til þurrkunar og herslu [en]
síðar voru þeir notaðir í skófatnað og sjóklæði er saumuð voru á
vetrum. Einnig voru þarna þvegnir stórþvottar og fleira. Móhlaði
var við annan hliðarvegginn en keytuker við hinn. Var henni
safnað til ullarþvottarins. Eitthvað af kjöti var oft reykt í eldhús-
inu, helst smærri stykki, magálar, bringur og bógar, en annars var
sérstakur reykingarkofi úti á túninu sem aðallega var reykt í.
Er þá komið að skemmuhúsinu. Það var alfarið úr timbri, klætt
tjörupappa yst. Ris var á húsinu jafnhátt og á hinum húsunum.
Framstafn í beinni línu af stöfnum hinna húsanna, hinn endi
þess náði því skemur er nam bakveggsþykkt þeirra. Gangur var
þvert í gegnum húsið eins og áður var getið og dyr á norðaustur-
hlið þess er vissi að sjónum. Fremri hluti gangsins var allbreiður
en sá innri mjór því þar til hægri var gengið frá bæjardyrahúsi,
afþiljuð smá kompa í honum. Í suðausturenda hússins var tveggja
stafgólfa stofa með tveimur sex rúða gluggum á stafnþili. Gengið
var í stofuna frá nefndum gangi. Í suðausturhorni gangsins var
stigi upp á loftið. Norðvesturendi hússins var til margs konar
nytja. Meðal annars var þar stórviði flett í fjalir með langviðarsög.
Voru hafðar 3–4 fjalir lausar í loftinu er voru lagðar til hliðar
þegar saga skyldi og raftarnir lagðir á þverslár yfir opinu. Tveir
menn söguðu og stóð annar uppi og hafði staurinn milli fóta sér
en hinn maðurinn var niðri. Áður en sögun hófst hafði minnst
einn sléttur flötur verið högginn á raftinn svo að hann gæti legið
stöðugur á honum meðan sagað var, einnig hafði hann verið sag-
aður sléttur fyrir báða enda og þræddur. Þræðingin var þannig
framkvæmd að bandþráður var sótborinn og bleyttur, síðan lagð-
ur á raftinn endilangan og strekktur, lyft upp um miðjuna og
sleppt. Varð þá beint sótstrik eftir á staurnum. Einnig voru báðir
endar trésins þræddir og var þá lóð fest í þráðarenda og þræðin-
um þrýst með fingri að viðnum. Staurinn varð að þræða bæði
ofan og neðan því eftir þráðarstrikunum urðu sögunarmennirnir
að stýra söginni. Bil milli þræðinga var sama og nema skyldi þykkt
borðanna. Sögunin var mjög erfitt og vandasamt verk ef vel skyldi
unnið. Þetta hús, sem venjulega var kallað Skemma og stofan í því
Gamlastofa, mun hafa verið byggt nokkrum árum áður en sjálfur
bærinn og mun þarna hafa verið sagaður allur borðviður í hann,