Strandapósturinn - 01.06.2013, Qupperneq 92
90
lauf) og kúpu var vinningurinn 2 bitar en fyrir að hálftapa þeim
varð að láta fylgja bitunum 3 gull. Ef kúpa tapaðist varð að greiða
1 bit fyrir hvern tapaðan slag. Vinningurinn fyrir spaðasóló og
nóló var 2 bitar og 3 gull, fyrir að hálftapa sama en altapa 3 bitar.
Ekki er ég þó alveg viss um að ég muni þetta nákvæmlega rétt þar
eð 68–70 ár eru nú liðin síðan þetta var. Áður en byrjað var að
spila lét hver maður 1 bit í borðið og eins þegar borðið tæmdist.
Væri eitthvað í borðinu þegar hætt var að spila var því skipt milli
spilara og afgangsbitar, ef voru, ásaðar út, þ.e. skipt með hlutkesti.
Notaðar voru eldspýtur fyrir bitar og spýtubrot fyrir gull. Fjögurra
manna vist var oft spiluð á helgi- og tyllidögum, einkum er gestir
voru. Spiluðu hana fullorðnir og unglingar. Var það oftast 13 aura
vist. Voru þá engar sagnir nema ef einhver sagði nóló og var vinn-
ingurinn fyrir hana 13 aurar frá hverjum hinna, sama varð hann
að greiða ef hann tapaði. Sami vinningur var ef einhver fékk alla
slagina í sagnlausu spili, þ.e. að hver hinna varð að greiða honum
13 aura. Fyrir gjaldeyri voru alltaf notaðar óbrenndar kaffibaunir.
Spilin sem yngstu krakkarnir spiluðu oftast voru marías, kasína,
fantur eða þjófur, svartipétur, hjónasæng og svo, þegar þau þrosk-
uðust meira, gosi, manni og treikort en í því spili var spilað um
það að verða kóngur, keisari og páfi, hvorki meira né minna, svo
ekki var til lítils að vinna. Treikort er þriggja manna spil og notuð
27 spil, 9 spil gefin hverjum manni. Spilaröðin er þannig, að mig
minnir: Laufadrottning hæst, þá spaðatvistur, því næst tígulkóng-
ur, hjartatvistur, spaðaátta, hjartanía, tígulnía og þar eftir ásarnir
allir jafnir, þá kóngarnir nema tígulkóngurinn, svo gosarnir, 3 sex
og 2 áttur en sjöin 4 nefnast besefar og eru þau ódræp sé þeim
spilað út en annars gildislaus. Spilið hófst á því að fyrst var spilað
um konungstignina. Náði henni sá sem fyrstur náði fyrir fram
ákveðnum slagafjölda sem samkomulag hafði orðið um hve marg-
ir skyldu vera. Er tigninni var náð mátti kóngsi kjósa sér besta spil
hjá hvorum hinna og gefa þeim lægstu spil í staðinn. Varð kóng-
urinn nú að verða á undan hinum tveimur sameiginlegum að ná
sama slagafjölda og áður til að verða keisari en tækist það ekki var
hann fallinn úr tigninni. Yrði hann keisari mátti hann kjósa sér
tvö bestu spil eða besefa hjá hvorum hinna og þannig áfram.
Næði hann að verða páfi tókst sjaldan að fella hann úr tigninni
því að þá mátti hann kjósa sér þrjú bestu spil hjá hvorum hinna.