Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 11
Rafrænn aðalfundur
Marel hf. 2022
Drög að dagskrá:
1. Fundarsetning. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
3. Skýrsla forstjóra
4. Ársreikningar félagsins fyrir starfsárið 2021 lagðir fram til staðfestingar (kosning)
5. Ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað fyrir starfsárið 2021 (kosning)
6. Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu félagsins
7. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins (kosning)
8. Tillaga um kaupréttarkerfi félagsins (kosning)
9. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna árið 2022 (kosning)
10. Ákvörðun um greiðslu til endurskoðanda fyrir liðið starfsár (kosning)
11. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins:
11.1. Tillaga um breytingu á grein 5.1. í samþykktum félagsins (kosning)
Stjórn félagsins leggur til að aðalfundur félagsins kjósi árlega 7 (sjö) menn til setu í stjórn félagsins í stað 5 til 7 (fimm til sjö) manna.
11.2. Tillaga um endurnýjun á heimild í grein 15.2. í samþykktum félagsins (kosning)
Greinin heimilar stjórn félagsins að hækka hlutafé um allt að 75 milljónir að nafnvirði sem nota má í tengslum við fyrirtækjakaup.
12. Kosning stjórnar félagsins
12.1 Tillaga um að kjósa sjö menn til setu í stjórn félagsins (kosning)
12.2 Tillaga að tilnefningum stjórnarmeðlima
12.2.1 Ann Elizabeth Savage (kosning)
12.2.2 Arnar Þór Másson (kosning)
12.2.3 Ástvaldur Jóhannsson (kosning)
12.2.4 Lillie Li Valeur (kosning)
12.2.5 Ólafur Steinn Guðmundsson (kosning)
12.2.6 Svafa Grönfeldt (kosning)
12.2.7 Ton van der Laan (kosning)
13. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis (kosning)
14. Tillaga um að endurnýja heimild félagsins til að kaupa eigin hlutabréf (kosning)
15. Önnur mál löglega upp borin og fundarslit
Aðalfundurinn verður aðeins haldinn með rafrænum hætti og allir hluthafar þurfa að skrá þátttöku sína fyrir fundinn. Hluthafar eiga rétt
á að tilnefna umboðsmann til að mæta og kjósa fyrir sína hönd. Hluthafar eru hvattir til að skrá sig tímanlega á fundinn. Skráning á fundinn og
kosning fyrir fundinn hefst kl. 9 þriðjudaginn 15. febrúar og lýkur skráningu og kosningu fyrir fundinn kl. 12 á hádegi á fundardegi. Kosning bæði
fyrir og á meðan aðalfundi stendur mun eingöngu fara fram með rafrænum hætti.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni í Amsterdam sem óska eftir því að mæta og kjósa fyrir eða á meðan aðalfundi
stendur þurfa að tryggja tímanlega að vörsluaðili hlutabréfa þeirra hafi skráð mætingu á fundinn og hvernig þeir vilja kjósa, í gegnum vefgátt ABN
AMRO. Þetta gildir um alla hluthafa, innlenda og erlenda, sem eiga hlutabréf skráð í Euronext kauphöllinni, einnig þá sem eiga líka hlutabréf skráð á
Nasdaq á Íslandi.
Hluthafar sem eiga hlutabréf skráð á Nasdaq á Íslandi skrá þátttöku á aðalfundinum og kjósa fyrir eða á meðan aðalfundi stendur í gegnum
vefgátt LUMI AGM á lumiconnect.com/meeting/marel
Framboð til setu í stjórn félagsins skulu berast skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti 14 dögum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16
miðvikudaginn 2. mars.
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar.
Tillögum og fylgiskjölum skal skilað til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir aðalfundinn, þ.e. í síðasta lagi fyrir kl. 16 sunnudaginn 6. mars,
á netfangið agm@marel.com
Fundarstörf munu fara fram á ensku. Á aðalfundarvef félagsins, marel.com/agm er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn,
þ.m.t. upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, tillögur stjórnar
félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2021, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu þann 11. febrúar 2022, reglur um
rafræna kosningu og frekari upplýsingar um skráningu og atkvæðagreiðslu.
Dagskrá fundarins og endanlegar tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum 14 dögum fyrir fundinn á marel.com/agm
Stjórn Marel hf.
Rafrænn aðalfundur Marel hf.
verður haldinn miðvikudaginn
16. mars nk. kl. 16:00