Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 71
Amish-konurnar vilja
sjaldnast að eldri börn
þeirra viti að þær séu
að fara að fæða barn,
né að barn sé á leið-
inni, svo stundum
koma þær á klíníkina
til að fæða.
Stúlkukappar
í minnstu stærð-
unum til sölu í
Amish-verslun.
Amish-hlaupahjólin eru sérstök með þessi stóru dekk.
Hér má sjá svokallaðan símaklefa við eitt heimilanna
auk þvottar á snúru sem sést við öll heimili.
við á konu um miðja nótt sem var að
fara af stað í fæðingu og hún sagði:
„Klukkan að verða fjögur, jæja, nú
fara börnin að vakna,“ rifjar hún
upp og segist auðvitað hafa verið
steinhissa. „En þau fara snemma að
sofa.“
Hestvagnar eða hlaupahjól
Kristbjörg segir konurnar hafa
verið kornungar. „Þær eru að giftast
í kringum 19 ára og eru kannski
að eignast fjórða barn 26-27 ára
gamlar. Það er „wedding season“,
eftir uppskeru í október, nóvember.
Þau fara á „courting“ þegar þau eru
komin með aldur,“ segir Kristbjörg
en þá fá þau að kynnast hinu kyn-
inu og velja sér maka.
„Amish-fólkið keyrir ekki sjálft,
en er tilbúið til að borga einhverjum
fyrir að keyra sig eða ferðast á hest-
vögnum eða sérstökum Amish-
hlaupahjólum sem eru með extra
stórum dekkjum. Þau sem eru
ógift mega ekki ferðast í lokuðum
hestvagni því það þarf að sjást í
þau. Börnin eru alveg of boðslega
kurteis og vel upp alin og augljóst
að þau hjálpa hvert öðru og innan
heimilisins.“
Þótt Amish-fólkið loki sig af
innan síns samfélags fær unga fólkið
að kynnast lífinu annars staðar.
„Þegar þau eru 16 ára fara þau í það
sem þau kalla „rumspringa“ og fara
út af heimilinu í upp undir ár til að
kynnast heiminum og fá að vera
unglingar. Flestir koma aftur.“
Allir tvítyngdir
Kristbjörg bendir jafnframt á að
allir séu tvítyngdir, tali bæði „Penn-
sylvania Dutch“, sem er í raun þýska
en þó þeirra mállýska, og svo læra
þau ensku í skóla.
„Börnin fara ekki í leikskóla
heldur eru bara inni á heimilinu
þangað til í fyrsta bekk grunnskóla.
Skólarnir eru bara eitt herbergi sem
kallað er „One-room schoolhouse“.
Konurnar eru oft með börnin lengi
á brjósti, oft eitt ár, jafnvel lengur.
Sumar eiga þá kjóla með smellum
að framan fyrir brjóstagjöf en aðrar
festa þá saman með títuprjónum.
Svuntan er alltaf fest með títuprjón-
um. Þarna eru nokkrar litlar versl-
anir, auk búðar á býli, þar eru auð-
vitað engin rafmagnsljós, en til sölu
eru til dæmis efni, prjónar í hárið,
enda konurnar alltaf með sérstakan
snúð, eldhúsvörur, hvítir kappar
allt niður í stærðir fyrir nýfædda,
en börnin eru klædd í svipuð föt og
fullorðna fólkið. Nýburar eru oftast
í kjólum en börnin eru svo komin í
hefðbundin föt í kringum eins árs.“
Flestar getnaðarvarnir bannaðar
Kristbjörg er aftur á leið út í næsta
mánuði og segist hlakka til að sjá
margar þessara kvenna í sex vikna
skoðuninni.
„Mér er sagt að þegar maður er
einu sinni búinn að fara geti maður
ekki hætt – fari alltaf aftur.“
Aðspurð hvað hún hafi helst lært
á veru sinni svarar Kristbjörg: „Ég
lærði æðruleysi. Ég sjálf hef svo sem
aldrei haft miklar áhyggjur af því að
konur eigi mörg börn, en meðal heil-
brigðisstarfsfólks er algengt að hafa
áhyggjur af konum í fæðingu sem
eru búnar að fæða mörg börn. Þarna
úti hlotnaðist mér sá heiður að vera
tvisvar viðstödd þegar tíunda barn
fæddist og þetta er alltaf eins.“
Flestar getnaðarvarnir eru bann-
aðar hjá Amish-fólkinu en Krist-
björg segir Diane hjálpa konunum
töluvert með að reikna út tíðahring-
inn, fylgjast með slími við legháls
og útvega þeim hettuna og sæðis-
drepandi krem.
„Konurnar vilja kannski geta
stjórnað betur hversu langt er á
milli barna,“ segir Kristbjörg, sem
fannst lífið í Amish-samfélaginu
minna öðruvísi en hún bjóst við. ■
Fjárfesting í vellíðan
Smiðjuvegi 11 s. 571 3770, pall@sauna.is, sauna.is
Velkomin í sýningarsalinn
að Smiðjuvegi 11
Tryggðu þér saunatunnu, saunaklefa eða tunnupott úr sedrusviði í tíma!
Sumarpöntun!
OFN FYLGIR OFN FYLGIR
OFN FYLGIROFN FYLGIR
Í Sauna Spa færðu vandaða gufuklefa og tunnupotta
úr sedrusviði sem reynst hafa sérlega vel á Íslandi.
Veldu gæði!
Þú finnur verðlistann og nánari upplýsingar á sauna.is
Panorama sedrus saunatunna
Tunnupottur úr sedrusviði
Saunatunna úr sedrusviði
Pure Cube útisauna úr sedrusviði
Luna útisauna úr sedrusviði
Helgin 31LAUGARDAGUR 12. febrúar 2022 FRÉTTABLAÐIÐ