Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 72
Það
skemmir
ekkert
bækurnar
að það sé
gleði og
hamingja í
kringum
þær.
Unnar Geir
Það hljóp á snærið hjá íbúum
í Úlfarsárdal fyrir jól, þegar
nýtt bókasafn og sundlaug
voru opnuð í hverfinu um
miðjan desember. Nú hefur
nýtt upptökuhljóðver verið
tekið í gagnið á bókasafninu
og er það aðgengilegt öllum
handhöfum bókasafnsskír-
teinis Borgarbókasafnsins, án
endurgjalds.
Nýtt bókasafn í nýju
hverfi í Úlfarsárdal
býður upp á f jöl-
breytta þjónustu og
lengri opnunartíma
en gerist og gengur. Þar sem safnið
er í sama húsnæði og sundlaugin
er opnunartíminn frá hálf sjö á
morgnana til tíu á kvöldin. „Þetta
er nýbreytni og við bjóðum upp á
sjálfsafgreiðsluvélar. Þetta er fyrsta
skrefið í sjálfsþjónustusöfnum hjá
Borgarbókasafninu, sem er fram-
tíðarsinfónía sem okkur langar að
spila í framtíðinni,“ segir Unnar
Geir Unnarsson, sem starfar sem
deildarstjóri yfir bókasafninu.
Aðspurður hvort enginn sé þá
eftir til að sussa á háværa bóka-
safnsgesti, þegar vélbúnaður hefur
tekið við, svarar Unnar Geir að það
sé mikill misskilningur að ekki
megi hafa gaman á bókasafninu.
„Við erum ekkert að sussa á fólk, það
skemmir ekkert bækurnar að það sé
gleði og hamingja í kringum þær!“
Eitt bestta stúdíó sem borgin á
Unnar Geir segir að á bókasafninu
sé sérhannað upptökustúdíó. Upp-
tökurýmið sé herbergi inni í her-
bergi, þannig sé hljóðupptaka óháð
annarri umgengni í húsinu.
„Þetta rými er hannað frá grunni
sem stúdíó og þar er nægt rými
fyrir meðalstóra hljómsveit,“ segir
hann. „Ég get sagt að þetta er eitt
fullkomnasta stúdíó sem Reykja-
víkurborg er með á sínum vegum.“
Opnað var fyrir bókanir í stúdíó-
inu á mánudag og segir Unnar Geir
að viðtökurnar hafi verið mjög
góðar, sér í lagi miðað við að kynn-
ing á aðstöðunni sé varla hafin.
„Strax eru að detta inn pantanir,
meira en við héldum. Þetta er fólk
á öllum aldri. Fólk sem hefur verið
heima að gera eitthvað en ekki haft
rými eða græjur til að fara eitthvað
lengra með sína sköpun.“
Miðaldra karlmenn í fókus
„Svo er svona einn hópur sem við
erum svolítið skotin í og það eru
miðaldra karlmenn,“ segir Unnar
Geir. „Það er nefnilega markhópur
sem bókasafnið hefur ekki alveg
náð í. Meirihlutinn af gestunum
okkar eru konur á öllum aldri og
unglingar, en svo missum við karl-
ana eftir fjórtán til fimmtán ára.“
Hann segir karlana síðan koma inn
seinna, þegar þeir hafa stofnað fjöl-
skyldu, en þeir séu ekki endilega að
koma sem virkir þátttakendur.
Spurður um ástæðuna segir
Unnar Geir: „Við höfum svo-
lítið verið að rýna okkar starf. Við
þurfum að skoða viðburðahald
og safnkostinn í minnsta lagi með
kynjagleraugunum og hinsegin
gleraugunum.“ Niðurstöður hafi
bent til þess að þessi hópur sé
út undan og Unnar Geir segir að
bókasöfnin hafi því reynt að leggja
áherslu á að fá karlana líka inn.
Hann segir að eitt af því sem
bókasöfnin bjóði upp á, og fólk sé
að fatta núna, sé að bókasöfnin séu
þriðja rýmið. Sé fyrsta rýmið heim-
ilið og annað rýmið vinnan. „Það
vantar félagslega staðinn, bókasöfn-
in eru það og sundlaugin kannski
líka. Það er svo mikil snilld í þessu
húsi hér að það er búið að sameina
sundlaugina og bókasafnið.
Bæði við sjálf erum að fatta þetta
hlutverk okkar og gestirnir okkar.“
Bókasafnið alltaf hlutlaus staður
Bókasafnið er þá ekki bara bókasafn
lengur heldur líka menningarhús. Er
það stefnan hjá öllum söfnunum að
bókasafnið sé meira en bókasafn?
Nú er alvöru hljóð á bókasafninu
Haraldur Ernir Haraldsson, umsjónarmaður hljóðversins, og Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri yfir bókasafninu í Úlfarsárdal. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hljóðverið er í tveimur herbergjum og þar má meðal
annars finna 24 rása mixer. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Að sögn umsjónarmanns hljóðversins er húsið byggt
með starfsemina í huga og því hefur önnur umgengni í
húsinu ekki áhrif á vinnu fólks í hljóðverinu.
Hljóðverið er
búið hljóð
færum og
fullkomnum
tæknibúnaði en
að auki er fólki
velkomið að
koma með sín
eigin hljóðfæri.
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
„Það byrjaði svolítið þegar Menn-
ingarmiðstöðin í Gerðubergi og
Borgarbókasafnið voru sameinuð.
Þá byrjaði þessi hugsun,“ segir
Unnar Geir. „Af því að bókasöfnin
voru með alls konar viðburðahald
og dagskrá í gangi, en voru kannski
ekki að blása í lúðra og láta vita af
því.“
Hann segir að gestir sem þegar
hafi mætt á bókasafnið hafi þá helst
verið þeir sem sóttu viðburðina. En
með breyttum áherslum hafi hverju
og einu bókasafni tekist að finna
sína sérstöðu. „Þetta fer svolítið eftir
því hvaða fólk býr í hverfinu, hvað
þú býður upp á og hvað er vinsælt
og hvað það er sem fólk vill sækja.“
Unnar Geir segir sérstöðuna skap-
ast með samtalinu. „Í Gerðubergi er
meira fyrir unglinga og í Spönginni
eru f leiri prjónaklúbbar. Þetta fer
svolítið eftir því hverjir sækja safn-
ið.“ Hann segir tilfinninguna mjög
gefandi. „Þó að við séum borgin
og fólk hafi alls konar hugmyndir
um borgina, þá er bókasafnið alltaf
hlutlaus staður. Þetta er bara bóka-
safnið þitt.“
Fullbúið tölvuleikjaver í boði
Unnar Geir segir safnið einnig
vera með tölvuleikjaver, sem er
nýbreytni á söfnum borgarinnar.
„Þá geturðu komið inn og ef þú
átt aðgang að tölvuleikjaveitum
geturðu komið og spilað tölvuleiki.
Eða þá að við kaupum aðgang og þú
getur þá spilað tvo eða þrjá leiki,
sem við síðan skiptum út reglulega,“
útskýrir hann. Hann segir að tölvu-
leikjaverið sé starfrækt í samstarfi
við félagsmiðstöðina Fellið sem er
staðsett í húsinu. „Þau voru nýbúin
að fá styrk til að kaupa tölvuleikja-
tölvur, alveg niður í stólana – allt
fyrir tölvuleikina. Þetta eru sex
tölvur sem eru sérhannaðar fyrir
það.“ Að auki sé safnið líka með
tölvukost sem felur í sér hefðbundn-
ari heimilistölvur. „Ef á heimilum er
ekki til tölva eða ekki til peningur
til að kaupa áskrift að þessum tölvu-
leikjaveitum, þá getur fólk komið
hingað.“
Fólk á öllum aldri velkomið
Haraldur Ernir Haraldsson er
umsjónarmaður hljóðupptöku-
versins. Hann segir að til að byrja
með sé þjónustan opin tvo daga í
viku, mánudaga og þriðjudaga, frá
klukkan þrjú til sjö.
„Við ætlum að byrja á að sjá
hvernig eftirspurnin er og hugsan-
lega bæta laugardegi inn í þetta, svo
að fólk sem er fast í vinnu eigi séns
á að koma.“
Haraldur Ernir segir að hægt sé
að panta tíma í hljóðverinu á vef
bókasafnsins, tvo eða fjóra tíma í
senn. „Þú getur mætt hingað með
hljóðfærið, en annars eru einhver
hljóðfæri á staðnum. Svo er ég hérna
innan seilingar ef það vantar ein-
hverja aðstoð,“ segir hann. „Ég get
verið með fólkinu allan tímann, ef
það vantar hjálp. Ég get hleypt þeim
inn og komið þessu í gang.“
Aðspurður um aldurstakmark
í þjónustuna segir hann svo ekki
vera, en æskilegt sé að ungir krakkar
séu í fylgd með fullorðnum. „Allir
geta mætt. Það er nóg að vera með
bókasafnskort.“
Að sögn Haraldar Ernis má taka
upp fleira en tónlist. „Það er hægt að
taka upp hlaðvarp, YouTube-vídeó
eða bara hvað sem er. Svo lengi sem
það passar inn um dyrnar, þá er
Búnaðurinn í hljóðverinu
n Mac Mini M1 með 16GB
ram. Logic Pro X, Fabfilter
FX Bundle, Izotope Elem
ents og Arturia Analog Lab.
n Apogee Ensemble hljóð
kort.
n Yamaha HS7 hátalarar og
Yamaha HS 8S bassabox.
n Beyerdynamic DT1990 PRO
heyrnartól.
n Behringer PolyD hljóm
gervill og Arturia KeyLab 88
MIDI hljómborð.
n Fender Stratocaster og
Fender P Bass.
n Ampeg Rocket 110 bassa
magnari.
n Axe FX FM3 gítarmagnara
„eftirherma“ sem spilar
öll rafmagnsgítarhljóð
sögunnar.
n Úrval af hljóðnemum. Þar á
meðal Røde NT2, Senn
heiser MD 421, Slate ML 1
og Slate ML 2.
hægt að taka það upp,“ segir hann.
„Einnig er hægt að taka bara ekkert
upp, og taka í staðinn smá tónlistar-
djamm. Til dæmis gömul hljómsveit
sem vill taka æfingu en á ekki leng-
ur hljóðfæri, eða hefur ekki aðstöðu.
Eða ung bönd með léleg hljóðfæri
eða aðstöðu. Eða ef þú vilt hlusta á
lag sem þú varst að vinna heima, í
góðum græjum.“ n
32 Helgin 12. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ