Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 70
Eitt sinn
kíktum við
á konu um
miðja nótt
sem var að
fara af stað
í fæðingu
og hún
sagði:
Klukkan
að verða
fjögur, jæja,
nú fara
börnin að
vakna.
Þarna úti
hlotnaðist
mér sá
heiður að
vera tvisv-
ar viðstödd
þegar
tíunda
barn
fæddist og
þetta er
alltaf eins.
Kristbjörg Magnúsdóttir
ljósmóðir hefur unnið við
heimafæðingar í 16 ár og er
nýkomin frá Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum þar sem hún
aðstoðaði við að taka á móti
börnum Amish-kvenna.
Það er nóg að gera hjá
mér,“ segir Kristbjörg en
aðspurð segir hún sífellt
fleiri velja heimafæðingar,
en hlutfallið fyrir síðasta
ár var 3,3 prósent og hefur ekki
verið meira í 50 ár. Kristbjörg segir
Covid eiga stóran þátt í því. Hún
er ein níu ljósmæðra sem taka að
sér heimafæðingar á höfuðborgar-
svæðinu.
„Aðstandendur barnshafandi
kvenna eru tilbúnari til að sam-
þykkja heimafæðingar eftir Covid.
Ég var til að mynda með tvítuga
móður í byrjun Covid sem vildi
hafa bæði barnsföður og móður sína
með sér í fæðingunni og valdi því
heimafæðingu. Þetta var í byrjun
apríl 2020 þegar makinn mátti bara
koma tveimur tímum fyrir fæðingu
svo hún hefði aldrei fengið að hafa
hann með sér allan tímann. En hún
fæddi í dásamlegri heimafæðingu
með þau bæði sér við hlið.“
Langaði í meiri ljósmæðralist
Árið 2010 sótti Kristbjörg ráðstefnu
hjá grasrótarljósmæðrahreyfing-
unni Midwifery Today og kynntist
þar ljósmóðurinni Carol Gautschi.
„Ári síðar heimsótti ég hana á
vesturströnd Bandaríkjanna og
fékk að fylgja henni í tvær vikur og
meðal annars í tvær fæðingar. Ég er
með rosalega góða klíníska mennt-
un frá Háskóla Íslands en langaði í
meiri ljósmæðralist. Árið 2012 fór
ég til Pennsylvaníu á ráðstefnu að
hitta Carol og kynntist þá Diane,
ljósmóður sem vinnur með Amish-
fólki. Ég sat fyrirlestur hjá henni
þar sem hún var mikið að tala um
óhefðbundnar meðferðir og vinnu
sína með Amish-konum, ég fékk þar
innblástur og var ákveðin í að fá ein-
hvern tíma að vinna með henni.“
Í janúar var Kristbjörg laus og
langaði að gera eitthvað nýtt. „Ég
hafði samband við Carol Gautschi
til að reyna að komast að hjá Diane
sem hefur þjálfað 220 ljósmæður
og tekið á móti tíu þúsund börnum.
Lærði æðruleysi hjá Amish-fólkinu
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Kristbjörg
lærði margt á
dvöl sinni með
Amish-fólkinu
í Pennsylvaníu
og var vel tekið á
móti henni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hestvagninn bíður fyrir utan klíníkina á meðan á mæðraskoðun stendur.
Fyrstu sex árin var hún ljósmóðir
í Ohio í enn íhaldssamara Amish-
samfélagi en er búin að vera á
þessum slóðum í Pennsylvaníu í 35
ár og 85 til 90 prósent skjólstæðinga
hennar eru Amish-konur.“
Vilja ekki að eldri börnin viti
Kristbjörg fór utan í síðasta mánuði
og dvaldi í Lancaster County sem er
oft kallað „Heart of the Amish“. Þar
starfaði hún í þrjár vikur með fyrr-
nefndri Diane og aðstoðaði við 16
fæðingar, flestar hjá Amish-konum,
bæði í heimahúsum og á klíník.
„Amish-konurnar vilja oftast
ekki að eldri börn þeirra viti að þær
séu að fara að fæða barn, né að barn
sé á leiðinni, svo stundum koma
þær á klíníkina til að fæða. Þegar
við fórum að ræða við þær þá vita
elstu dæturnar þetta auðvitað. Ég
var viðstödd tvær fæðingar þar sem
konurnar voru að eiga sitt tíunda
barn, í öðru tilfellinu var elsta
barn konunnar 15 ára og í hinu 18
ára. Þær eru hörkuduglegar þessar
konur.“
Konurnar sóttu mæðravernd
á klín ík Diane en fæddu f lestar
heima. „Heimaþjónustan er mikið
minni en hér heima og yfirleitt
bara ein vitjun á þriðja degi en það
er búið að undirbúa konurnar vel
fyrir þá heimsókn. Þegar um er að
ræða fyrsta barn fá þær litla bók
um fæðinguna og fyrstu vikurnar
þar á eftir, og eru því mjög vel upp-
lýstar.“
Amman flytur inn eftir fæðingu
„Önnur amman kemur yfirleitt
þegar við ljósmæðurnar erum að
fara og er með móður og barni
fyrstu sólarhringana, mamm-
an er kölluð „mamm“, en amman
„mammi“. Það er svo vel hugsað um
konurnar eftir fæðingu að þegar
við komum í vitjun á þriðja degi
eru mæðurnar yfirleitt ekki einu
sinni búnar að skipta á barninu sínu
sjálfar. Það eru því sérstök fyrirmæli
til þeirra fyrir fyrstu vitjun að vera
búnar að fá upplýsingar frá ömm-
unni eða þeim sem eru til aðstoðar
um hvað barnið er búið að pissa og
kúka oft.“
Aðspurð segir Kristbjörg feðurna
vera hjálplega og virka í fæðingunni.
„Þeir taka börnin ef þörf er á eftir
fæðinguna en mér fannst skrítið að
ég þurfti að klæða börnin, það gerðu
þeir ekki.“
Rafmagnsleysið algert
Kristbjörg segir að sér hafi verið vel
tekið innan Amish-samfélagsins
þar sem henni leið vel. Þegar hún
er beðin að lýsa heimilunum sem
hún kom inn á nefnir hún fyrst raf-
magnsleysið sem er algert í sam-
félagi Old Order Amish.
„Á f lestum heimilum er stór
viðarofn sem kyndir húsin en á
meðan ég var þarna var allt niður
í 10 stiga frost. Það var mismikil
kynding í húsunum og oft kalt inni
á baðherbergjunum. Það kom fyrir
að maður sá kerti en allir eru með
vasaljós í vasanum. Það var gott að
geta notað ljósið frá símanum þegar
maður labbaði út í bíl um miðjar
nætur enda ekkert ljós. Heimili eru
stundum nokkur um einn síma, sem
eru þá í sérstökum skúr eða „phone
shanty“ eða að heimili sé með sinn
skúr. Einstaka eru með síma inni á
heimilinu. Þau eru með ísskápa og
frystikistur sem ganga fyrir gasi
og gamaldags opnar þvottavélar
sem ég er ekki viss um fyrir hverju
ganga.“
Allir vakna klukkan fjögur
Aðspurð segist hún aldrei hafa geng-
ið eins mikið í kjól og þessar þrjár
vikur en segir það í raun hafa verið
einu leiðbeiningarnar sem hún
fékk áður en hún fór inn á svæðið,
að það væri betra ef hún væri í pilsi
eða kjól.
„Ég hef sjálf alltaf reynt að vera
fordómalaus og kona í fæðingu er
kona í fæðingu,“ segir Kristbjörg en
munurinn liggur í ýmsu öðru.
„Unga fólkið er bara í námi út
áttunda bekk og fer þá að vinna og
hjálpa til innan og utan heimilis.
Stór hluti er með einhvers konar
búskap, ræktar maís, tóbak og
f leira. Klukkan fjögur á nóttunni,
þegar okkur finnst vera mið nótt,
er fólkið að vakna. Eitt sinn kíktum
30 Helgin 12. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ