Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 28
Ástin svífur
yfir og rauð
hjörtu og
hjartalaga
kræsingar
eru í boði
víða.
Valentínusardagurinn er
helgaður ástinni og haldinn
hátíðlegur á messudegi
heilags Valentínusar þann
14. febrúar ár hvert. Blóm og
konfekt eru vinsælar gjafir,
en Una Dögg Guðmunds-
dóttir gefur hér hugmyndir að
rómantískum bakstri í tilefni
dags ástarinnar á mánudag.
Valentínusarhefðirnar
eiga uppruna sinn í
Bretlandi, Frakklandi
og Ba nda r ík ju nu m
allt aftur á 14. öld. En
umgjörðin í kringum þennan dag
ástarinnar er ávallt að verða meiri
hér á landi. Una Dögg Guðmunds-
dóttir, matgæðingur og kökublogg-
ari, er ein þeirra sem halda upp á
daginn ásamt bónda sínum.
„Mér finnst virkilega skemmti-
legt að sjá hve umgjörðin kringum
þennan dag er alltaf að verða meiri
og meiri hér á Íslandi. Ástin svífur
yfir og rauð hjörtu og hjartalaga
kræsingar eru í boði víða. Fólk hér
heima elskar tilefni og mér finnst
ávallt gaman að tengja matargerð-
ina og/eða baksturinn því sem er í
gangi í þjóðfélaginu hverju sinni,“
segir Una Dögg.
„Á mínu heimili er það bóndinn
minn sem stýrir steikingunni á
kjötinu og töfrar fram alls konar
gott meðlæti en ég fæ heiðurinn af
að sjá um eftirréttinn og kökurnar,
svona almennt. Okkur þykir frönsk
súkkulaðikaka ávallt klassísk og
góð, hún er líka einföld í fram-
kvæmd, toppuð svo smá þeyttum
rjóma og berjum. Ég ákvað að taka
smá snúning á þessari frönsku á
dögunum og stakk tveimur niður-
skornum Mars-bitum í miðjuna
áður en kakan var sett inn í ofn,
þessi útfærsla hitti beint í mark.
Svo finnst mér líka gaman að gleðja
stelpurnar mínar með smá Valent-
ínusarköku og í ár verða það súkku-
laði-bollakökur með Dumble-kara-
mellukremi. Ég fann svo hjartalaga
skraut og rauð form í búðinni til að
skreyta kökurnar á táknrænan hátt
fyrir Valentínusardaginn.“
Frönsk súkkulaðikaka
toppuð með rjóma og
ástaraldini
200 g suðusúkkulaði
200 g smjör
4 egg
1 dl hveiti
2 dl sykur
2 Mars stk. niðurskorin
1 peli rjómi
1 ástaraldin
Byrjið á þeyta saman egg og sykur.
Bræðið í potti smjör og súkkulaði
við vægan hita. Blandið hveitinu
saman við eggin og sykurinn.
Bætið súkkulaðibráðinni varlega
saman við deigið. Bakið í annað
hvort vel smurðu formi eða litlum
eldföstum formum eins og sjá má
hér á myndinni, uppskrift þessi
Frönsk súkkulaðikaka
með rómantísku ívafi
Una Dögg heldur Valentínusardaginn hátíðlegan með sínum heittelskaða og
veit fátt skemmtilegra en að baka sælkerakökur með rómantísku ívafi. Hún
gefur lesendum uppskrift að ljúfri franskri súkkulaðiköku. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Bakið í litlum
eldföstum
formum, eins
og sjá má hér á
myndinni, eða
í vel smurðum
formum eins og
á hinni mynd-
inni.
MYND/AÐSEND
Dumble-kara-
mellukremið
og bleik hjörtun
setja punktinn
yfir i-ið og
gleðja sæl-
kerana.
MYND/AÐSEND
dugar í um sex minni form. Skerið
niður Mars-súk k ulaðibit a og
stingið tveimur bitum í miðjuna á
hverri lítilli köku, ef notast er við
eitt stórt form má dreifa einu Mars-
stykki vítt og dreift yfir kökuna.
Bakið kökuna við 170°C í um 20
mínútur (best að hafa kökuna smá
blauta í miðjunni). Takið kökuna út
og berið fram með þeyttum rjóma
og/eða ís og berjum.
Ég prófaði að þeyta rjóma og skafa
aldinið innan úr einu ástaraldini og
blanda saman við rjómann. Mæli
eindregið með því, útkoman er sæl-
kerabragð með rómantísku ívafi.
Síðan skreyti ég með hjartalöguðu
skrauti og ber fram á rómantískan
hátt.
Bollakökur með
Dumble-karamellukremi
Botnar í um það bil 20 bollakökur
250 g hveiti
200 g sykur
6 msk. kakó
1 tsk. salt
1 tsk. matarsódi
3 egg
2 tsk. vanilludropar
130 ml olía
230 ml kalt vatn
Hitið ofninn í 180°C.
Sigtið saman þurrefnin og setjið
til hliðar.
Þeytið saman egg, olíu, vatn og
vanilludropa þar til það verður létt
í sér.
Bætið þurrefnunum rólega saman
við og hrærið vel saman.
Skiptið niður í um 20 bollaköku-
form og bakið við 180°C í 18-20
mínútur.
Mér finnst kökurnar verða fal-
legri ef ég set pappaformin í álform,
þannig verða kökurnar stífar upp og
leka síður niður.
Dumble-karamellukrem
250 g smjörlíki (mjúkt)
250 g flórsykur
2 tsk. vanilludropar
1 msk. kakó
1 poki Dumble-karamellur
1 dl rjómi
Sigtið saman f lórsykur og kakó.
Þeytið saman smjörlíki og flórsykur-
inn með kakóinu. Bætið smá vanillu-
dropum saman við og þeytið áfram.
Bræðið karamellurnar og rjómann
við vægan hita og hrærið vel í, kælið
aðeins og blandið svo saman við
smjörblönduna og þeytið vel saman.
Sprautið kreminu á kökurnar, passið
að leyfa kökunum að kólna aðeins
áður en kremið er sett á.
Skreytið að vild og látið hug-
myndaflugið ráða för. n
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.iss
28 Helgin 12. febrúar 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ