Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 36
Hagar leita að talnaglöggum og áreiðanlegum aðalbókara. Viðkomandi heyrir undir
framkvæmdastjóra fjármálasviðs og hefur yfirumsjón með uppgjörum, árshlutareikningum
og skattframtölum samstæðunnar.
Helstu verkefni:
• Mánaðarleg uppgjör, árshlutauppgjör og ársuppgjör samstæðu.
• Gerð skattframtala dótturfélaga.
• Samskipti við endurskoðendur félagsins.
• Ráðgjöf í bókhalds- og uppgjörsmálum við dótturfélög Haga.
• Almenn bókhaldsstörf og afstemmingar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðskiptamenntun af fjármála- eða endurskoðunarsviði eða sambærileg menntun.
• Framhaldsmenntun í reikningsskilum er kostur.
• Reynsla og sérþekking á reikningsskilum og uppgjörsvinnu er skilyrði.
• Reynsla af samstæðuuppgjörum er mikill kostur.
• Góð þekking af notkun fjárhagskerfisins Navision er kostur.
• Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
• Metnaður og áreiðanleiki.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar G.
Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og Hildur
Jóna Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Aðalbókari
Hagar hf. er leiðandi verslunarfyrirtæki á
íslenskum smásölumarkaði. Meginstarfsemi
Haga er á sviði smásölu með mat-, sérvöru
og eldsneyti og tengdum rekstri vöruhúsa.
Hagar starfrækja samtals 38 matvöruverslanir
undir vörumerkjum Bónus og Hagkaups,
26 Olís þjónustustöðvar, 43 ÓB-stöðvar,
umfangsmikla vöruhúsastarfsemi,
birgðaverslun auk verslunar með sérvöru.
Hjá Högum og dótturfélögum starfa um 2.500
manns sem hafa það að markmiði að stuðla
að bættum lífskjörum viðskiptavina í gegnum
framúrskarandi verslun.
Þjóðminjasafn Íslands leitar eftir mannauðsstjóra.
Starfið er bæði umfangsmikið og krefjandi og hentar einstaklingi sem hefur áhuga á fólki og býr
yfir hæfni til að vinna að mörgum fjölbreyttum verkefnum á sama tíma. Mannauðsstjóri er hluti
af stjórnendateymi Þjóðminjasafnsins og vinnur að því að framfylgja stefnu og ná markmiðum
stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Ábyrgð á þróun og framkvæmd mannauðsstefnu.
• Ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna.
• Umsjón með starfsþróunar-, vinnuverndar- og fræðslumálum.
• Mótun ferla og innleiðing umbótaverkefna.
• Skipulagning og utanumhald ráðningarferla.
• Umsjón með launasetningu og launavinnslu.
• Árangursmælingar.
• Þátttaka í áætlunargerð og rekstri sem snýr að mannauðsmálum.
• Túlkun kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög.
• Önnur tengd verkefni.
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála er kostur.
• Þekking og marktæk reynsla á sviði mannauðsmála.
• Reynsla af umbótaverkefnum og ferlavinnu.
• Framúrskarandi hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og sveigjanleiki.
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
• Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna í teymi með öðrum.
• Gott vald á íslensku og ensku í rituðu og mæltu máli.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf
sem fyrst.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur Jóna
Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Mannauðsstjóri
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustu-
stofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja
og rannsókna á menningarsögulegum
minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka
og miðla þekkingu á menningararfi íslensku
þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á
grundvelli safna laga nr. 141/2011, lögum um
Þjóðminja safn Íslands nr. 140/2011 og lögum
um menningar minjar nr. 80/2012.