Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 29
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 12. febrúar 2022
Leikfimikennarinn Ellen Elsa Sigurðardóttir finnur mikinn mun á meltingunni eftir að hún fór að taka inn Stronger Liver frá Eylíf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heilbrigð melting og vellíðan
Líkamsræktarþjálfarinn Ellen Elsa Sigurðardóttir segist handviss um að fæðubótarefnin frá
Eylíf eigi eftir að vinna til verðlauna; svo hrein, náttúruleg og áhrifarík séu þau. 2
starri@frettabladid.is
Í tilefni af Valentínusardeginum
næsta mánudag, 14. febrúar, verður
efnt til kaffikviss, eða barsvars, í
Borgarbókasafninu í Árbæ, með
Valentínus og ýmislegt honum
tengt sem þema.
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkur
viðburður er skipulagður af safn-
inu og má búast við skemmtilegri
stemningu meðal þátttakenda.
Valentínusar barsvarinu er
stýrt af spurninganirðinum og
bókaverðinum Guttormi Þor-
steinssyni, sem gegnir hlutverki
dómara, spyrils og stigavarðar.
Skipuleggjendur lofa temmilega
erfiðri, skemmtilegri, en þó alls
ekki væminni spurningakeppni á
Valentínusardaginn, en hún hefst
kl. 17 og stendur til kl. 18.
Bannað að svindla
Reglurnar eru með hefðbundnu
sniði. Fjórir eða færri eru í hverju
í liði og eru þátttakendur hvattir
til að finna skemmtileg nöfn á
liðin. Boðið er upp á fimmtán
spurningar, bannað er að svindla
og dómarinn ræður. Verðlaun eru
í boði fyrir sigurvegara og kannski
fleiri.
Kærleiksríkar sóttvarnir að
hætti safnsins.
Nánari upplýsingar á borgar-
bokasafn.is og á Facebook-síðu
Borgarbókasafnsins. ■
Valentínusar
kaffikviss
Guttormur Þorsteinsson gegnir
hlutverki dómara, spyrils og stiga-
varðar. MYND/BORGARBÓKASAFN