Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 44
101 hotel við Hverfisgötu óskar eftir reyndum móttökustjóra.
101 er fyrsta hótel sinnar tegundar á Íslandi, í flokki svokallaðra
boutique-hótela og hefur staðið á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis
undanfarin tuttugu ár. Þótt sagan spanni áratugi er stjórnendateymið
ungt og metnaðarfullt og við leitum nú að öflugum nýliða í teymið.
Hæfniskröfur:
- Menntun eða mikil reynsla í faginu er skilyrði.
- Gott vald á íslensku og ensku. Þriðja tungumál er mikill kostur.
- Rík þjónustulund og skipulögð vinnubrögð.
Ferilskrár og meðmæli sendist á lilja@101hotel.is
Umsóknarfrestur er til og með 28.2.2022
Móttökustjóri 101 hotel reykjavík
Spennandi tækifæri fyrir hjúkrunar-
fræðing og lækni í Fjallabyggð
Frekari upplýsingar um störfin
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt afriti eða staðfestingu á Íslensku starfsleyfi.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, meðmælum og viðtölum við umsækjendur.
Almenn heilsugæsluþjónusta er í boði í Fjallabyggð. Starfsstöðvarnar eru á Siglufirði og Ólafsfirði.
Í Fjallabyggð búa um 2.000 manns. Sveitarfélagið varð til við sameiningu Ólafsfjarðarbæjar og Siglufjarðarkaupstaðar.
Í Fjallabyggð eru leikskólar, grunnskóli og framhaldsskóli. Þar er öflugt menningar- og listalíf, fjölmörg gallerí og vinnustofur
ásamt söfnum eru á svæðinu.
Umsóknarfrestur er til og með 28.02.2022
Yfirhjúkrunarfræðingur
HSN Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands auglýsir laust starf yfir-
hjúkrunarfræðings HSN Fjallabyggð.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. maí 2022
eða eftir samkomulagi.
Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega, stjórnunarlega og
rekstrarlega ábyrgð.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Fagleg og stjórnunarleg ábyrgð á hjúkrunarþjónustu
og stoðstarfsemi hennar, samkvæmt skipuriti
• Þátttaka í klínísku starfi
• Staðarumsjón
• Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur og tryggir að
rekstur og starfsmannamál séu í samræmi við fjárhags-
áætlun
• Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi, þróun þjónustu og
stjórnun verkefna á starfsstöðinni og þvert á stofnun
• Hefur umsjón með starfsemi starfsstöðvarinnar samkvæmt
skipuriti ásamt yfirlækni
• Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Hæfniskröfur
• Íslenskt hjúkrunarleyfi og a.m.k. 5 ára starfsreynsla
við hjúkrun
• Viðbótarmenntun á sviði heilbrigðisvísinda, viðskiptafræði
eða stjórnunar kostur
• Farsæl stjórnunarreynsla og góð samskiptafærni
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Góð tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veitir
Guðný Friðriksdóttir - gudnyf@hsn.is - 860 7750
Bryndís Lilja Hallsdóttir - bryndis.lilja.hallsdottir@hsn.is
- 432 4050
Læknir
hjá HSN Fjallabyggð
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Fjallabyggð óskar eftir
að ráða lækni til starfa. Húsnæði í boði. Læknar sem starfa
hjá HSN eru með aðalstarfsstöð á heilsugæslustöð og sinna
móttöku sjúklinga og heilsuvernd ásamt því að sinna vakt-
þjónustu í héraði skv. vaktaskema hverju sinni. Starfið felur
einnig í sér störf á sjúkra- og hjúkrunarsviði. Störfin fela í sér
þverfaglega samvinnu innan sem og út fyrir stöðina.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Almennar lækningar og heilsuvernd
• Vaktþjónusta
• Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunarsviði
• Kennsla starfsfólks og nema
• Þróun og teymisvinna
Hæfniskröfur
• Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni
• Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
• Sérfræðiviðurkenning í heimilislækninum kostur
• Ökuleyfi
Nánari upplýsingar veita
Valþór Stefánsson - valthor.stefansson@hsn.is - 460 2100
Örn Ragnarsson - orn.ragnarsson@hsn.is - 432 4200
Viltu taka þátt í
nýju og spennandi
þróunarverkefni
sem miðar að aukinni atvinnuþátttöku
fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði?
Ás styrktarfélag óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum
starfsmanni til að innleiða og skipuleggja starfstengt verk-
nám fyrir fatlað fólk. Um er að ræða verkefni sem byggir á
einkaleyfisskyldri aðferðarfræði. Hún felur í sér vinnustaða
nám sem hefur að markmiði atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á-
almennum vinnumarkaði með stuðningi og eftirfylgni í starfi.
Starfið er tímabundið til eins árs og starfshlutfall er frá
50% til 100%. Vinnutíminn er almennt á bilinu 8.00-16.30
virka daga en getur að hluta til verið sveigjanlegur.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar 2022.
Hæfniskröfur:
• Háskólanám sem nýtist í starfi
• Þekking á sviði þjónustu við fatlað fólk og ríkjandi
hugmyndfræði.
• Þekking á vinnumarkaði er nauðsyn
• Brennandi áhugi á atvinnuþátttöku fatlaðs fólks
• Góð ensku- og íslenskukunnátta er skilyrði
• Góð almenn tölvufærni og tölvulæsi er skilyrði
• Sjálfstæð vinnubrögð, samskipta- og samstarfsfærni
• Að minnsta kosti 5-7 ára starfsreynsla
• Þarf að geta unnið undir álagi og eiga auðvelt með að
tileinka sér nýjungar.
Nánari upplýsingar veitir Valgerður Unnarsdóttir í síma
4140500. Atvinnuumsókn ásamt ferilskrá sendist valgerður@styrktarfelag.is. Upplýsingar um félagið má finna
á heimasíðu þess www.styrktarfelag.is.
Ás styrktarfélag hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt
samkvæmt ÍST 85:2012.
Við hvetjum áhugasama, óháð kyni og uppruna að sækja um.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Áss styrktar-
félags.
Óskar eftir blikksmiðum
eða vönum mönnum í Blikksmíðavinnu,
einnig aðstoðarmönnum og suðumönnum.
Upplýsingar í síma: 893 4640 eða
blikksmidi@simnet.is
Blikksmíði ehf
12 ATVINNUBLAÐIÐ 12. febrúar 2022 LAUGARDAGUR