Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 65

Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 65
OsteoStrong fagnar þriggja ára starfsafmæli um þessar mundir. Um 500 manns stunda æfingar vikulega hjá OsteoStrong. Heimsóknin tekur aðeins 20 mínútur í heildina, einu sinni í viku, og þannig bæta meðlimir sjálfa sig, styrk vöðva, auka jafn- vægi, lækka blóðsykur og minnka verki í liðum og baki. Helgi Már Þórðarson, íþrótta­ fræðingur, einkaþjálfari og annar eiganda Aha.is, fór að stunda OsteoStrong eftir að hann fór að finna fyrir verkjum í líkamanum. „Mér finnst óeðlilegt að vera með verki. Mér finnst eðlilegt að vera verkjalaus og mér finnst að allir ættu að stefna að því. Ég spil­ aði fótbolta í Bandaríkjunum og lærði íþróttafræði í Saint Augustin í Flórída fyrir hartnær 30 árum. Ég var líka á íþróttabraut í mennta­ skóla og ætlaði alltaf að verða íþróttakennari, sem ég svo gerði. Ég var þjálfari barna og unglinga, síðar einkaþjálfari og hafði alla mína ævi þjálfað fólk í íþróttum. Það er þess vegna mjög auðvelt að tala við mig um heilsu, andlega heilsu og heilbrigt líferni. Þegar OsteoStrong var opnað þá var ég eins og margir: „Nei, það getur ekki verið, fjögur tæki, einu sinni í viku?“ Mér fannst þetta náttúru­ lega mjög skrítið. Tilbúinn að breyta til En ég var á þeim stað að mig langaði að breyta til. Ég var búinn að telja mánuðina og dagana þar til ég yrði fimmtugur og vildi fara ferskur inn í nýjan áratug. Ég var eins og margir, hafði aðeins fækkað ferðum í ræktina á meðan ég var með lítil börn og var að stofna fyrirtæki. Það koma alltaf smá svona tímabil þar sem maður dettur út í smá tíma. Fljótlega verkjalaus í baki Þegar ég byrjaði í ástundun hjá OsteoStrong var ég slæmur í baki, öxl og hálsi. Ég var rosalega dug­ legur í OsteoStrong í hálft ár. Lagði mig fram um að missa aldrei úr tíma af því að ég fann mun á mér eftir bara nokkrar vikur. Verkirnir hurfu alveg. Bara OsteoStrong einu sinni í viku, ekki neitt annað með. Aukin löngun í hreyfingu Svo smám saman gerðist svo margt ánægjulegt. Með auknum styrk, minni verkjum og aukinni orku þá fór ég að leita í f leiri leiðir til þess að bæta heilsuna, fann löngun til að mæta í ræktina og mætti þar þrisvar sinnum í viku ásamt því að stunda Osteo­ Strong einu sinni í viku. Það er svo skemmtilegt að hreyfa sig þegar manni líður vel. Pabbi minn er 73 ára. Hann hefur sömu sögu að segja en hann fann reyndar mun á sér strax eftir fyrsta tíma. Ég held að það sé eðli­ legt að það taki mann aðeins lengri tíma að finna fyrir breytingum þegar maður er yngri og í betra formi. Gleðin í skammdeginu Hreyfing er svo verðmæt fyrir andann og það skiptir svo miklu máli að vera ekki verkjaður. Það er grunnatriði. Til þess að lyfta and­ anum tók ég upp á því í jólafríinu að fara í tvo stutta göngutúra á dag í náttúrunni og mér finnst það mjög verðmætt. Í nokkur ár hef ég vandað mig við að dvelja í þakklæti. Ég keypti mér 5­mín­ útna­þakklætis­bækur um árið og núna er það orðið sjálfkrafa hjá mér að finna fyrir þakklæti óháð aðstæðum hverju sinni. Ég las líka „Af hverju sofum Fann hratt mikinn mun með OsteoStrong Helgi Már Þórðarson, íþróttafræðingur og einkaþjálfari, varð hissa þegar hann fann hversu OsteoStrong breytti líðan hans til betri vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Æfingarnar taka stuttan tíma, aðeins 20 mínútur, en eru afar áhrifaríkar. Örn og Svana reka Osteo Strong og eru sífellt að stækka við sig. Ný stöð verður opnuð í Ögurhvarfi í febrúar. Helgi segir að eftir æfingarnar hjá OsteoStrong finni hann fyrir miklum lið- leika og orkan hefur aukist. Æfingarnar eru ekki erfiðar og henta öllum, jafnt þeim sem eru í íþróttum og hinum sem hafa lítið hreyft sig. Meðlimir geta átt von á að: n Auka styrk n Minnka verki í baki og liða- mótum n Lækka langtíma blóðsykur n Auka beinþéttni n Bæta líkamsstöðu n Auka jafnvægi n Minnka líkur á álags- meiðslum við?“ og hætti að mæta í sund á morgnana eins og ég hafði gert í 15 ár. Nú sef ég bara þessa tvo auka klukkutíma og ég greinilega þurfti á því að halda því að ég er allur miklu kátari. Tími fyrir heilsu Það er svo gott að byrja hjá OsteoStrong. Maður finnur svo hratt fyrir breytingum og byrjar þá smám saman að skoða í kringum sig eftir fleiri leiðum til að bæta heilsuna og gleðina. Þegar ég lít núna tvö ár aftur í tímann þá má segja að OsteoStrong hafi ýtt við mér að ná markmiði mínu, sem er að vera í toppformi þegar að ég verð fimmtugur. Borða betur, sofa betur, æfa betur. Ég hef enn nokkra mánuði til stefnu og hlakka til,“ segir Helgi, sem er annar eigandi Aha.is. Ný stöð í Ögurhvarfi OsteoStrong á Íslandi á þriggja ára starfsafmæli um áramótin. Viku­ lega mæta um 500 meðlimir til þess að styrkja sig og auka orku. „Til viðbótar við stöðina í Hátúni 12 opnum við nýja stöð í febrúar í Ögurhvarfi. Þannig geta enn fleiri nýtt sér þjónustu OsteoStrong og leiðin er styttri fyrir þá sem koma til dæmis frá Selfossi og Borgar­ nesi. Við erum mjög spennt yfir möguleikanum á því að fá að þjóna fleiri svæðum á Íslandi og erum alltaf spennt yfir að tala við mögu­ lega samstarfs aðila,“ segir Svan­ laug Jóhannsdóttir, annar eigandi OsteoStrong. Tíminn er núna OsteoStrong hentar næstum öllum sem geta staðið upp. „Hjá okkur eru til dæmis einstaklingar sem eru að undirbúa sig fyrir Landvættina og á sama tíma ein­ staklingar sem eru farnir að þurfa að styðjast við göngugrind og allt þar á milli. Það eru svo margir sem að hafa dottið út úr rútínu með sína hreyfingu tengt Covid og þrá að komast aftur af stað. Það er góð hugmynd prófa OsteoStrong núna í skammdeginu og byrja strax að safna styrk fyrir vorið og úti­ veruna,“ segir Örn Helgason, hinn eigandi OsteoStrong. 73% styrking á ári „Notendur gera æfingar undir handleiðslu þjálfara í fjórum tækjum sem reyna á allan líkam­ ann,“ segir Svanlaug. „Hreyfingin er lítil en átakið er hins vegar meira en fólk er vant án þess að verða manni nokkurn tíma ofviða. Með nýju áreiti fær líkaminn skýr skila­ boð um að byggja sig upp og hefst handa við að þétta bein og styrkja vöðva, liðbönd og sinar. Á einu ári er fólk að meðaltali að styrkja sig um 73%. Góðar sóttvarnir Við hugum mjög vel að sóttvörnum og enn sem komið er hefur enginn náð að smitast hjá okkur. Með allt þetta fólk og á öllum þessum tíma hefur það aðeins í tvígang komið fyrir að einstaklingur kom og gerði æfingarnar sínar, en komst að því eftir á að hann var með Covid. Okkur þótti vænt um það þegar annar þeirra sagði við smitrakn­ ingarteymið: „Jú, ég fór þangað en það er ekki séns að nokkur smitist þar, OsteoStrong er örugglega mest sótthreinsaði staður á Íslandi,“ segir Örn. Frír prufutími „Við bjóðum upp á fría prufutíma á fimmtudögum. Það er gaman að geta sýnt fólki hvað við gerum. Flestir koma til okkar með margar spurningar, en fara frá okkur spenntir, glaðir og með skýra sýn á það hvernig OsteoStrong getur hjálpað þeim,“ segir Örn. n OsteoStrong er í Hátúni 12, sunnan megin. Prufutíma má bóka á osteo strong.is og í síma 419 9200. ALLT kynningarblað 5LAUGARDAGUR 12. febrúar 2022
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.