Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 58
gardabaer.is
ÚTBOÐ
HNOÐRAHOLT – 1. ÁFANGI - GATNAGERÐ OG
LAGNIR
Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið:
Hnoðraholt – 1.áfangi -Gatnagerð og lagnir
Verkið innifelur uppbyggingu gatna og veitna
fyrir nýtt hverfi í Garðabæ. Heildarlengd
gatna er um 2.600 m.
Verkið felst í nýbyggingu gatna, bílastæða,
stíga og gangstétta. Einnig innifelur verkið
alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja í verkinu.
Útboðsgögn er hægt að nálgast á vef
Garðabæjar, gardabaer.is.
Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti hjá
Eflu hf, Lynghálsi 4, miðvikudaginn 16. mars
2022, klukkan 14.00.
Tilkynning um kosningu ríkisendurskoðanda
Forsætisnefnd Alþingis mun eigi síðar en í maí nk. gera tillögu til
Alþingis um einstakling til að gegna embætti ríkisendurskoðanda
og verður hann kjörinn á þingfundi, sbr. 2. gr. laga nr. 46/2016,
um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Alþingi
kýs ríkisendurskoðanda til sex ára í senn, en heimilt er að
endurkjósa sama einstakling einu sinni.
Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis.
Hann er trúnaðarmaður þess og ábyrgur gagnvart því við
endurskoðun og eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins.
Ríkisendurskoðandi skal hafa þekkingu á reikningsskilum og
ríkisrekstri auk stjórnunarreynslu. Skrifstofa ríkisendurskoðanda
nefnist Ríkisendurskoðun og fer hann með stjórn hennar.
Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður og engum háður í störfum
sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu
samkvæmt lögum um embættið.
Þeir sem áhuga kunna að hafa á að gegna embættinu, og uppfylla
áðurgreind skilyrði, skulu senda forsætisnefnd Alþingis erindi
þar um ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf.
Einnig geta þeir sem vilja koma með ábendingar um einstaklinga
í embættið komið slíku á framfæri við forsætisnefnd.
Erindi skulu berast forsætisnefnd bréflega eða með rafrænum
hætti á netfangið: kosningrikisendurskodanda@althingi.is, fyrir
miðnætti laugardaginn 5. mars nk.
Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að senda forsætisnefnd
erindi um efnið.
Forsætisnefnd Alþingis ákveður samkvæmt lögum laun
ríkisendurskoðanda.
Forsætisnefnd Alþingis,
Alþingishúsinu við Austurvöll.
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Gufunesvegur 17 - Endurnýjun glugga, þaks og steypuviðgerðir, útboð 15420
• Ingunnarskóli - Klæðning útveggja, 2. áfangi,
útboð 15424
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Stuðningsgreiðslur við
dýralækna þjónustu á Vestfjörðum
Samningar lausir til umsóknar
Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til
að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á
Vestfjörðum. Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsyn-
lega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum
þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af
skornum skammti, sbr. 13. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og
heilbrigðisþjónustu við dýr.
Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og
gæludýr á Vestfjörðum og að taka að sér tiltekin störf fyrir
Matvælastofnun. Gerðir verða tveir samningar, annars vegar
þjónustusamningur og hins vegar verkkaupasamningur, hvoru
tveggja eru verktakasamningar við Matvælastofnun. Almennri
dýralæknaþjónustu tilheyrir einnig að standa vaktir kvöld, nætur
og helgidaga, en að tilteknu hámarki.
Auglýstur þjónustusamningur er gerður til fimm ára og gildir til
og með 1. júní 2027. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Matvælastofnunar www.mast.is.
Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna veitir Sigurborg
Daðadóttir yfirdýralæknir sigurborg.dadadottir@mast.is og í síma
530 4800.
Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið starf@mast.is
merktar “Dýralæknir – þjónustusvæði 3”.
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2022.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum, ef
við á, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar, hvernig samstarfi umsækjandi hyggst koma á við aðra
dýralækna og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Erum við
að leita að þér?