Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 37
UMHVERFIS- OG SKIPULAGSSVIÐ
Borgartún 12–14
S. 411 11 11 • usk@reykjavik.is
Viltu vera með í að
HUGSA VEL UM
borgina okkar?
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs vill auka lífsgæði
í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði
fyrir enn betri borg. Áhersla er á að gera vinnuumhverfi
starfsfólks aðlaðandi, öruggt og skilvirkt. Gildi sviðsins
eru virðing fyrir umhverfinu, fagmennska í hverju verki og
þjónusta við umhverfið.
Skrifstofustjóri
Verkefnastofu
Helstu verkefni og ábyrgð: Fagleg forysta Verkefnastofu, skrifstofu sem
vinnur með verkefni þvert á aðrar skrifstofur sviðsins með það að markmiði að
efla og bæta verkefnastýringu, minnka sóun og auka gæði. Að starfa í nánu
samstarfi við verkefnaráð að þeim verkefnum sem stofunni er ætlað að sinna.
Leggja tillögur að verkefnum fyrir umhverfis- og skipulagsráð. Bera ábyrgð
á að verkefni séu unnin í samræmi við hugmyndafræði verkefnastjórnunar,
og að verkefnum stofunnar sé fylgt eftir frá upphafi til enda þvert á verkþætti
eða ábyrgðarsvið sem hingað til hafa dreifst á mismunandi fagskrifstofur.
Skrifstofustjóri starfar í nánu samstarfi við sviðsstjóra og borgaryfirvöld eftir
því sem við á og ber ábyrgð á miðlun upplýsinga um verkefni í samvinnu við
stjórnendur innan sviðs og utan.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun á sviði verkefnastjórnunar
• Reynsla af áætlanagerð og markmiðadrifinni verkefnastjórnun
• Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og faglegur metnaður
• Mjög góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu
• Gott vald á íslensku í ræðu og riti
• Færni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Um er að ræða 100% starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi kjarafélags.
Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is.
Umsjón með störfunum hafa Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is)
og Hilmar G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2022
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar óskar eftir að ráða öfluga
og metnaðarfulla einstaklinga til að leiða tvær nýjar skrifstofur á sviðinu.
Um er að ræða tvö lykilstörf í stjórnendateymi sviðsins. Við leitum að
verkefnadrifnum leiðtoga í starf skrifstofustjóra Verkefnastofu og kraftmiklum
snillingi í starf skrifstofustjóra Þjónustu og samskipta. Um er að ræða
fjölbreytt og krefjandi störf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er
á teymisvinnu og góða þjónustu. Við leitum að einstaklingum með ríka
forystu- og samskiptahæfileika, frumkvæði til að þróa nýjar lausnir og vilja
til að leiða breytingar. Næsti yfirmaður skrifstofustjóra er sviðsstjóri
umhverfis- og skipulagssviðs.
Skrifstofustjóri
Þjónustu og samskipta
Helstu verkefni og ábyrgð: Innleiðing á þjónustustefnu Reykjavíkur og
stafrænni umbreytingu í samvinnu við stjórnendur sviðsins. Markmiðasetning
í þjónustu og samskiptum í samvinnu við aðrar skrifstofur og deildir. Markviss
greiningarvinna og úrbætur í upplýsinga- og samskiptamálum fyrir sviðið.
Yfirumsjón með skipulagningu og gerð þjónustukannana og mælinga
og kynning á þeim. Að leita leiða við framþróun þjónustu umhverfis- og
skipulagssviðs. Skipulagning og eftirfylgni úrbótaverkefna sem snúa að
þjónustu og samskiptum. Ábyrgð á fræðslu og þjálfun sem lýtur að þjónustu
sviðsins, inn á við og út á við. Ábyrgð á framkvæmd og eftirfylgni samskipta-
og samráðsáætlunar í samvinnu við stjórnendur, miðlæga upplýsingadeild
ráðhússins, önnur svið og fyrirtæki borgarinnar.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Framhaldsmenntun á sviði þjónustustjórnunar mikill kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og framúrskarandi færni til að
tjá sig í ræðu og riti
• Mjög góð þekking, reynsla og færni í notkun samfélagsmiðla
• Reynsla og færni í þverfaglegri teymisvinnu
• Haldbær reynsla af ráðgjöf, stefnumörkun og vörumerkjaþróun (branding)
• Skapandi, jákvæð og lausnamiðuð hugsun með áherslu á
þekkingarmiðaða þjónustustjórnun