Fréttablaðið - 12.02.2022, Blaðsíða 43
Tími tækifæra
Allar nánari upplýsingar um störfin og ítarlegri útlistun á hæfniskröfum er að finna á Starfatorgi.
Umsóknir ásamt kynningarbréfi og ferilskrá á íslensku sendist á netfangið mvf@mvf.is.
Skýrt skal tekið fram um hvaða starf er sótt.
Ráðuneyti menningar og viðskipta fer með málefni ríkisaðstoðar.
Það veitir öðrum stjórnvöldum ráðgjöf og er í forsvari í tengslum við
ríkisaðstoðarmál sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur til skoðunar.
Leitað er að sérfræðingi sem hafa mun umsjón með málaflokknum
ríkisaðstoð, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum innan skrifstofu
viðskipta og fjölmiðla í samráði við skrifstofustjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjón með málaflokki ríkisaðstoðar.
• Fyrirsvar gagnvart ESA vegna ríkisaðstoðarmála.
• Samstarf við önnur ráðuneyti og opinbera aðila.
• Þátttaka í stefnumótun.
• Löggjöf á sviði ríkisaðstoðar, þ.m.t. innleiðing EES gerða.
• Alþjóðlegt samstarf á sviði ríkisaðstoðar.
Ráðuneyti menningar og viðskipta fer með málefni fjölmiðla. Nær sá
málaflokkur m.a. til fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu, einkarekinna
fjölmiðla, starfsskilyrða fjölmiðla og miðla- og upplýsingalæsis.
Leitað er að sérfræðingi sem hafa mun umsjón með málaflokknum
fjölmiðlar, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum innan skrifstofu
viðskipta og fjölmiðla í samráði við skrifstofustjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Umsjón og fyrirsvar á málefnasviði fjölmiðla.
• Þátttaka í stefnumótun.
• Löggjöf á sviði fjölmiðla, þ.m.t. innleiðing EES gerða.
• Almenn stjórnsýsla á sviði fjölmiðlunar.
• Alþjóðlegt samstarf á sviði fjölmiðlunar.
Sérfræðingur á sviði ríkisaðstoðar
Skrifstofustjóri á skrifstofu verðmætasköpunar
Sérfræðingur á sviði fjölmiðla
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar.
Nýtt menningar- og viðskiptaráðuneyti tók til starfa 1. febrúar sl. Hlutverk
þess er að skapa menningarstarfi, viðskiptalífi og ferðaþjónustu umhverfi
sem stuðlar að velsæld og verðmætasköpun fyrir samfélagið allt. Helstu
málaflokkar sem ráðuneytið fer með eru menningarmál, ferðaþjónusta,
viðskiptamál, neytenda- og samkeppnismál, fjölmiðlar, skapandi greinar
og ríkisaðstoð.
Í nýju ráðuneyti er fólk með fjölbreyttan bakgrunn sem starfar samhent
að því að skapa framúrskarandi vinnustað og öflugt ráðuneyti sem veitir
afbragðsþjónustu.
Okkur vantar fleira fólk og leitum að drífandi og jákvæðum einstaklingum
með mikla samskiptafærni, sem hafa metnað til þess að sinna verkefnum
ráðuneytisins af heilindum og elju.
Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu verðmætasköpunar er laust til
umsóknar, en menningar- og viðskiptaráðherra skipar í það til fimm ára.
Skrifstofa verðmætasköpunar vinnur þvert á málaflokka ráðuneytisins
með verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærni að leiðarljósi.
Skrifstofan er leiðandi í greiningu og miðlun, þ.m.t. hagrænum rannsóknum
á þeim málaflokkum er heyra undir ráðuneytið. Kemur skrifstofan þannig
að stefnumótun á fjölbreyttum málefnasviðum ráðuneytisins og tengir
saman menningu, viðskipti, fjölmiðla og ferðaþjónustu.
Skrifstofustjóri stýrir starfsemi skrifstofunnar og ber ábyrgð á því að hún
sinni stjórnsýslulegum skyldum sínum, sýni frumkvæði í stefnumótun og
fylgi eftir stefnumarkandi ákvörðunum ráðherra. Við leitum að skrifstofu-
stjóra sem býr yfir víðtækri reynslu af hagfræðilegri greiningarvinnu sem
mun nýtast við stefnumótun og úrlausn mála hjá ráðuneytinu.
Skrifstofustjóri á skrifstofu verðmætasköpunar þarf að búa yfir góðum
leiðtogahæfileikum og ríkri hæfni í samskiptum og samvinnu.