Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 58

Fréttablaðið - 12.02.2022, Síða 58
gardabaer.is ÚTBOÐ HNOÐRAHOLT – 1. ÁFANGI - GATNAGERÐ OG LAGNIR Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Hnoðraholt – 1.áfangi -Gatnagerð og lagnir Verkið innifelur uppbyggingu gatna og veitna fyrir nýtt hverfi í Garðabæ. Heildarlengd gatna er um 2.600 m. Verkið felst í nýbyggingu gatna, bílastæða, stíga og gangstétta. Einnig innifelur verkið alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja í verkinu. Útboðsgögn er hægt að nálgast á vef Garðabæjar, gardabaer.is. Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, miðvikudaginn 16. mars 2022, klukkan 14.00. Tilkynning um kosningu ríkisendurskoðanda Forsætisnefnd Alþingis mun eigi síðar en í maí nk. gera tillögu til Alþingis um einstakling til að gegna embætti ríkisendurskoðanda og verður hann kjörinn á þingfundi, sbr. 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Alþingi kýs ríkisendurskoðanda til sex ára í senn, en heimilt er að endurkjósa sama einstakling einu sinni. Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis. Hann er trúnaðarmaður þess og ábyrgur gagnvart því við endurskoðun og eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins. Ríkisendurskoðandi skal hafa þekkingu á reikningsskilum og ríkisrekstri auk stjórnunarreynslu. Skrifstofa ríkisendurskoðanda nefnist Ríkisendurskoðun og fer hann með stjórn hennar. Ríkisendurskoðandi er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveður sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögum um embættið. Þeir sem áhuga kunna að hafa á að gegna embættinu, og uppfylla áðurgreind skilyrði, skulu senda forsætisnefnd Alþingis erindi þar um ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf. Einnig geta þeir sem vilja koma með ábendingar um einstaklinga í embættið komið slíku á framfæri við forsætisnefnd. Erindi skulu berast forsætisnefnd bréflega eða með rafrænum hætti á netfangið: kosningrikisendurskodanda@althingi.is, fyrir miðnætti laugardaginn 5. mars nk. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að senda forsætisnefnd erindi um efnið. Forsætisnefnd Alþingis ákveður samkvæmt lögum laun ríkisendurskoðanda. Forsætisnefnd Alþingis, Alþingishúsinu við Austurvöll. Innkaupaskrifstofa Sími 411 1111 ÚTBOÐ Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Gufunesvegur 17 - Endurnýjun glugga, þaks og steypuviðgerðir, útboð 15420 • Ingunnarskóli - Klæðning útveggja, 2. áfangi, útboð 15424 Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Stuðningsgreiðslur við dýralækna þjónustu á Vestfjörðum Samningar lausir til umsóknar Matvælastofnun auglýsir eftir sjálfstætt starfandi dýralæknum til að taka að sér almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu á Vestfjörðum. Markmiðið er að tryggja dýraeigendum nauðsyn- lega almenna þjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landssvæðum þar sem fjöldi dýra er takmarkaður og/eða verkefni dýralækna af skornum skammti, sbr. 13. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr. Starfið felur í sér að gegna dýralæknisþjónustu fyrir búfé og gæludýr á Vestfjörðum og að taka að sér tiltekin störf fyrir Matvælastofnun. Gerðir verða tveir samningar, annars vegar þjónustusamningur og hins vegar verkkaupasamningur, hvoru tveggja eru verktakasamningar við Matvælastofnun. Almennri dýralæknaþjónustu tilheyrir einnig að standa vaktir kvöld, nætur og helgidaga, en að tilteknu hámarki. Auglýstur þjónustusamningur er gerður til fimm ára og gildir til og með 1. júní 2027. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Matvælastofnunar www.mast.is. Nánari upplýsingar um dýralæknaþjónustuna veitir Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir sigurborg.dadadottir@mast.is og í síma 530 4800. Umsóknir skulu sendar í tölvupósti á netfangið starf@mast.is merktar “Dýralæknir – þjónustusvæði 3”. Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2022. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum, ef við á, ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, hvernig samstarfi umsækjandi hyggst koma á við aðra dýralækna og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Erum við að leita að þér?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.