Morgunblaðið - 01.04.2022, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1. A P R Í L 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 77. tölublað . 110. árgangur .
TYRFINGUR FRUM-
SÝNIR NÝTT VERK Á
STÓRA SVIÐINU
FRÉTTA-
LESTRI
ER LOKIÐ
NJARÐVÍK NÁÐI
DEILDARMEISTARA-
TITLINUM Í KÖRFU
BRODDI BRODDASON 12 FIMM STIGA SIGUR 35SJÖ ÆVINTÝRI 36
*þú getur sótt um orkulykil á orkan.is
Nokkur tré fengu að falla til jarðar þegar tekið var til við að
grisja skóginn í Öskjuhlíð í gær. Á fyrri hluta 20. aldar ein-
kenndist gróðurfarið af lítt grónum holtum og mólendi, en í
eystri hluta hlíðarinnar var votlendi og ræktuð tún. Eftir að
skógrækt hófst um miðja öldina er þar nú nær samfelldur
skógur, m.a. með birki, bergfuru, sitkagreni og alaskaösp.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grisja skóginn
fyrir sumarið
_ Hítardalur á
Mýrum verður
næstkomandi
mánudag aftengd-
ur fastlínum síma-
kerfisins. Með því
verður ekkert
símasamband við
bæinn, sem er inn
til fjalla og utan
geisla GSM-
símkerfisins.
Þetta er talið bagalegt með tilliti til
öryggis og náttúruvár, en mikil
skriða féll í landi jarðarinnar fyrir
fáum árum. Leggja á ljósleiðara að
Hítardal í haust og Finnbogi Leifs-
son telur mikilvægt að fresta af-
tengingu uns slíkt er í höfn. »6
Sveitabær tekinn
úr símasambandi
Finnbogi
Leifsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Athugasemdir eru boðaðar úr ýmsum
áttum við umhverfismatsskýrslu
Landsnets vegna áforma um Blöndu-
línu 3, að hluta til um aðra leið en áður
var áformuð. Þá telja bæjarfulltrúar á
Akureyri að loftlína þrengi að þróun
byggðar þar og óska eftir rökstuðn-
ingi fyrir því að hætt var við jarð-
streng innan bæjarins.
Í aðalvalkosti Landsnets í um-
hverfismatsskýrslu vegna lagningar
Blöndulínu 3 frá Blönduvirkjun til
Akureyrar er gert ráð fyrir að línan
fari um svokallaða Kiðaskarðsleið.
Það dregur úr áhrifum á ákveðnu
svæði í Húnavatnssýslu og sérstak-
lega Skagafirði en á móti fer línan um
nýtt land þar sem ekki eru loftlínur
fyrir. Mælist breytingin misjafnlega
fyrir meðal bænda og annarra land-
eigenda.
„Öll þessi möstur munu rýra verð-
gildi jarðarinnar mjög mikið, hún
verður óseljanleg,“ segir María Ingi-
ríður Reykdal, bóndi á Starrastöðum
í Lýtingsstaðahreppi hinum forna, en
línan mun liggja langsum og þversum
um land jarðarinnar. Sigursteinn
Bjarnason, bóndi á Stafni í Svartár-
dal, segir engan hrifinn af því að fá
línuna um sitt land en tekur fram að
sér finnist málið hafa verið leyst með
besta móti, úr því línan þurfi að koma.
Stjórnendur Akureyrarbæjar telja
að loftlína sem liggja mun beint að
tengivirkinu á Rangárvöllum þrengi
að möguleikum til þróunar byggðar.
Nú á til dæmis að fara að byggja Móa-
hverfi stutt frá línustæðinu. Bærinn
er landlítill og má illa við skerðingum
á byggingarlandi. Halla Björk Reyn-
isdóttir, forseti bæjarstjórnar, segir
bæinn hafa óskað eftir því að fá upp-
lýsingar frá Landsneti um það hvað
liggi til grundvallar þeirri ákvörðun
að falla frá lagningu jarðstrengs við
þéttbýlið og leggja í staðinn loftlínu.
Jörðin verður óseljanleg
- Áform Landsnets um staðsetningu Blöndulínu 3 fá misjafnar undirtektir bænda
- Akureyringar kalla eftir rökstuðningi á því hvers vegna fallið er frá jarðstreng
MHáspennulína nemur … »13