Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 20222
FRÉTTIR
Prentmiðlamæling Gallup á síðasta ársfjórðungi 2021:
Bændablaðið skorar hátt og hefur verið með
afgerandi forystu á landsbyggðinni í 8 ár
Samkvæmt prentmiðlamælingu
Gallup á síðasta ársfjórðungi
2021 þá er Bændablaðið
mest lesni prentmiðillinn á
landsbyggðinni eins og það
hefur verið í öll þau átta ár sem
blaðið hefur tekið þátt í þessari
lestrarkönnun. Þá dregur
hratt saman í meðallestri á
Bændablaðinu og Fréttablaðinu
í tölum fyrir landið í heild
og munar þar nú aðeins 2,9
prósentustigum.
Í mælingum Gallup kemur fram
mikið stökk Bændablaðsins frá
könnuninni 2020 en tölur það ár
sýndu talsverðan samdrátt í lestri
Bændablaðsins á landsbyggðinni,
eða úr 41,9% í 36,2% þó það
tapaði samt ekki forystu sinni.
Hafa ber í huga að á meðan mæling
Gallup stóð yfir haustið 2020
voru fjölmargir dreifingarstaðir
Bændablaðsins lokaðir vegna
Covid-19. Nú mældist blaðið
með 42,1% meðallestur á
landsbyggðinni, sem er meira en
í könnuninni 2019 sem gerð var
áður en áhrifa af Covid-19 var
farið að gæta á Íslandi.
Bændablaðið er gefið út
hálfsmánaðarlega í 32 þúsund
eintökum og dreift á yfir 420
dreif ingar staði um land allt. Þótt
Bænda blaðinu sé dreift frítt til
allra, nema þeirra sem kjósa að
fá blaðið sent í pósti og greiða
þá kostnaðinn af því, þá reiðir
blaðið sig algjörlega á viðtökur
lesenda. Þeir verða að nálgast
blaðið sjálfviljugir. Enginn fær
blaðið sent óumbeðið inn um sína
bréfalúgu.
Lestur prentmiðla dregst saman
um allan heim
Um allan heim hefur lestur prent-
miðla hægt og bítandi verið að
dragast saman í samkeppni við
sífellda aukningu á afþreyingu í
rafrænu formi af ýmsu tagi. Af
þessu hafa yfirvöld víða um heim
áhyggjur og hafa reynt að hafa þar
áhrif á með beitingu styrkja. Það
er því athyglisvert hvað íslenskum
prentmiðlum hefur þrátt fyrir allt
tekist að halda sjó á undanförnum
árum. Prentmiðlamæling Gallup
sýnir að meðallestur á landinu
öllu hefur verið að dragast nokkuð
saman en samt mismikið eftir
miðlum.
Fréttablaðið, sem er dreift
ókeypis, var með afgerandi
sterkasta stöðu árið 2014 vegna
öflugrar dreifingar í hús, einkum
á höfuðborgarsvæðinu. Þá var það
með 43,8% meðallestur í heild yfir
landið allt, en er nú komið niður í
30,1%. Samdrátturinn nemur því
13,7 prósentustigum á átta ára
tímabili.
Bændablaðið, sem líka er
dreift að mestu ókeypis, þó í
aðeins ríflega þriðjungi af upplagi
Fréttablaðsins og kemur aðeins út
hálfsmánaðarlega, var aftur á móti
með 29,3% lestur í heild yfir landið
á síðasta ársfjórðungi árið 2014.
Það var nú í mælingunni 2021
með 27,2% lestur og nemur sam-
drátturinn því 2,1 prósentustigi á
átta ára tímabili. Hefur munurinn
á milli þessara tveggja fríblaða yfir
landið í heild þannig minnkað á
átta árum úr 14,5 prósentustigum
í 2,9 prósentustig.
Morgunblaðið sem er áskrift-
ar- og lausasölublað hefur stað-
ist breytta lestrarhegðun lands-
manna furðuvel í samanburði við
fríblöðin. Þar hefur meðallestur
Morgunblaðsins á landinu öllu
minnkað á átta árum úr 25,6% í
18,8%, eða um 6,8 prósentustig.
Prentmiðlamæling Gallup
á síðasta ársfjórðungi 2021
náði líka til Stundarinnar og
Viðskiptablaðsins. Samkvæmt
henni hefur meðallestur
Stundarinnar yfir landið allt dregist
saman úr 11,6% árið 2014 í 8,1%
nú 2021, eða um 3,6 prósentustig.
Hjá Viðskiptablaðinu hefur
meðallesturinn dregist saman úr
10,8% haustið 2014 í 4,9% á sama
tíma 2021. Þar er samdrátturinn 5,9
prósentustig.
Mikill samdráttur í blaðalestri
á höfuðborgarsvæðinu
síðastliðin átta ár en minnstur
hjá Bændablaðinu
Þegar litið er á tölur Gallup um
meðallestur prentmiðla í Reykjavík
og nágrannasveitarfélögum þá
er Fréttablaðið þar öflugast í
skjóli mikils upplags og öflugrar
frídreifingar inn á heimili fólks.
Þar var Fréttablaðið með 37,9%
meðallestur á síðasta ársfjórðungi
2021 miðað við 52,9% lestur
haustið 2014. Það er samdráttur
upp á 15 prósentustig á átta árum.
Morgunblaðið er í öðru
sæti á þessu svæði með 21,2%
meðallestur, en lestur á því hefur
lækkað úr 27,5% árið 2014, eða
um 6,3 prósentustig.
Bændablaðið er í þriðja sæti
á höfuðborgarsvæðinu með 19%
meðallestur. Hefur lestur á blaðinu
minnkað úr 21,6% árið 2014, eða
um 2,6 prósentustig á átta árum.
Stundin var með 8,8% meðal-
lestur á höfuðborgarsvæðinu í
nýjustu mælingu Gallup, en var
með 12,7% árið 2014. Það er
því samdráttur í lestri upp á 3,9
prósentustig.
Viðskiptablaðið var með 5,8%
meðallestur á fjórða ársfjórð ungi
2021 á móti 12,4% árið 2014.
Samdrátturinn í lestri Viðskipta-
blaðsins á höfuðborgar svæðinu á
þessum átta árum nemur því 6,6
prósentustigum.
Samkvæmt þessum tölum
Gallup hefur samdráttur í lestri
prentmiðla á höfuðborgarsvæðinu
á síðastliðnum átta árum verið
hlutfallslega minnstur hjá
Bændablaðinu.
Aukinn áhugi háskólafólks
á höfuðborgarsvæðinu fyrir
Bændablaðinu
Þegar rýnt er í stöðu þátttakenda í
nýjustu könnuninni á höfuðborgar-
svæðinu er athyglisvert að á milli
ára er Bændablaðið eini miðillinn
þar sem aukning hefur verið á lestri
háskólafólks. Sama má segja um
lestur fólks í yngsta aldurshópnum,
12–19 ára. Í 30–39 ára hópnum
var svipað upp á teningnum, en
þar var Morgunblaðið reyndar líka
með aukningu. Þá er Bændablaðið
líka að sýna aukningu í lestri
í aldurshópi 40–49 ára ásamt
Viðskiptablaðinu. Í aldurshópi
50–59 ára eru bæði Bændablaðið
og Viðskiptablaðið líka að sýna
aukningu í lestri. Í aldurshópnum
60–80 ára eru Bænda blaðið,
Morgunblaðið og Fréttablaðið öll
að sýna aukinn lestur. Áhuginn
fyrir að lesa Bænda blaðið á
höfuðborgarsvæðinu virðist hins
vegar vera langminnstur hjá hópi
fólks á aldrinum 20–29 ára.
Annað viðhorf 20–29 ára á
landsbyggðinni
Mjög athyglisvert er að í prent-
miðla mælingu Gallup kemur í ljós
gjörólík afstaða fólks í sumum
aldurshópum eftir því hvort það
býr á höfuðborgarsvæðinu eða á
landsbyggðinni. Þannig er fólk
á aldrinum 20 til 29 ára á lands-
byggðinni mjög áhugasamt
um lestur á Bændablaðinu,
gjörólíkt jafnöldrum sínum á
höfuðborgarsvæðinu. Hefur
Bænda blaðið reyndar yfirburði
yfir aðra prentmiðla í öllum
aldurshópum á landsbyggðinni.
Landsbyggðarfólk á öllum
menntastigum les helst
Bændablaðið
Í prentmiðlamælingu Gallup kemur
fram að karlar á landsbyggðinni
stunda blaðalestur talsvert
meira en konur og þá langmest
Bændablaðið. Þá er mestur lestur
á Bændablaðinu á landsbyggðinni
meðal framhaldsskólamenntaðra
karla og kvenna sem skýrist
líklega af háu hlutfalli iðn- og
tæknimenntaðra á landsbyggðinni.
Úr þeim hópi lesa 62,9% karla
Bændablaðið og 42,5% kvenna.
Í tölum Gallup kemur líka fram
að háskólamenntaðar konur á
landsbyggðinni lesa Bændablaðið
frekar en aðra prentmiðla, eða
32,5%. Áhugi háskólamenntaðra
karla á landsbyggðinni er enn meiri,
því 49,6% þeirra lesa Bændablaðið.
Í hópi grunnskólamenntaðra karla
á landsbyggðinni lesa 47,6%
Bændablaðið og 37,1% kvenna.
Fólk á öllum þjóðfélagsstigum
á landsbyggðinni les helst
Bændablaðið
Á landsbyggðinni skorar Bænda-
blaðið mjög hátt í öllum þjóðfélags-
stigum og hæst allra prentmiðla í
öllum hópum þegar tekið er tillit
til tekna allra þeirra sem í könnun
Gallup tóku. Hlutfallið var þó sýnu
hæst í hópi þeirra sem eru með
tekjur undir 400 þúsund á mánuði,
eða 64,8%.
Á höfuðborgarsvæðinu eru
framhaldsskólamenntaðir karlar
dyggustu lesendur Bændablaðsins.
Stór hluti lesenda Bændablaðsins
á höfuðborgarsvæðinu er líkt og á
landsbyggðinni framhaldsskóla- og
háskólamenntað fólk þótt hlutfallið
sé ekki eins afgerandi. Þar eru
32,8% karla í hópi lesenda blaðsins
með framhaldsskólamenntun en
10,3% kvenna. Þegar litið er á
háskólamenntun eru 21,2% karla
og 11,8% kvenna. Þá eru 20,5% af
karlkynslesendum Bændablaðsins
úr hópi grunnskólamenntaðra og
24,5% konur.
Á höfuðborgarsvæðinu er það
lágtekjufólk og fólk með tekjur upp
að einni milljón króna á mánuði
sem er helst líklegt til að lesa
Bændablaðið. Virðist áhuginn síðan
dvína eftir að tekjurnar fara yfir
milljónina og minnstur er hann í
hópi þeirra allra tekjuhæstu. /HKr.
4,9%
8,1%
18,8%
30,1%
27,2%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landinu öllu
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
5,8%
8,8%
21,2%
37,9%
19,0%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á höfuðborgarsvæðinu
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
4,9%
8,1%
18,8%
27,0%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landsbyggðinni
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
Könnun Gallup á lestri prentmiðla á landsbyggðinni á síðasta ársfjórðungi síðastliðin átta ár. Í grænu súlunum yfir lestur Bændablaðsins er áberandi skarð
á síðasta ári. Þegar sú könnun var gerð haustið 2020 voru fjölmargir dreifingarstaðir Bændablaðsins lokaðir vegna Covid-19. Þá sést líka að árangurinn
á síðasta ári var örlítið betri en árið 2019.