Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 7

Bændablaðið - 27.01.2022, Síða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 2022 7 LÍF&STARF Nokkuð margar ljóðabækur komu út á síðasta ári, flestar undir óhlutbundnu brag­ formi. Umsjónarmenn vísnaþátta Bændablaðsins gegnum langa sögu, hafa einvörðungu haldið sig við hefðbundna bragformið, þ.e.a.s full stuðlað og rímað. Ekki stendur til að breyta neinu þar um. Alltaf fækkar útgefendum hefðbundinna ljóðabóka, en af og til frétti ég af slíkum útgáfum. Nýlega barst mér í hendur bókarkorn eftir hagyrðinginn Sigurð Óttar Jónsson vélstjóra, fæddum í Jórvík í Hjaltastaðaþinghá. Sigurður hefur talsvert fengist við vísnagerð og lagt sig eftir dýrum bragarháttum. Þess sést staður í ljóðakveri hans sem nefnist „Á mörkunum“, sem Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku ritar formála að. Hér á eftir fara vísur Sigurðar úr þessari nýútkomnu bók sem hefur að geyma 75 hringhendur. Fyrstu vísuna nefnir hann einfaldlega „Heilræði“. Ei þú hikir augnablik, alltaf strikið haltu. Fyrir vikið færðu prik, forðast svikin skaltu. Almennt um lögfræðinga orti Sigurður svo: Á vegi hálum selja sál, svik og tál og hrekki. Þetta er válegt vandamál sem veldur álitshnekki. Um félaga Jósep: Miklum vanda mætum hér, meðvirk stöndum hissa. Helgur andi ætlar þér amorsvönd að kyssa. Oddhendu þessa nefnir Sigurður „Ganga tvö“. Labba um grundir létt með pund, leyndum bundin þræði. Á Reykjalundi stað og stund strax við fundum bæði. Athafnafíkn: Túnin heyjað hefur öll haft óþreyju slíka, hána slegið vítt um völl; vítateiginn líka. Nágrannakrytur: Þá í brand og brýnu slær, birtist vandi ærinn, er öndvert standa óskir tvær yfir landamærin. Tunglmyrkvi er yfirskrift næstu fjögurra vísna Sigurðar: Nú skal virkjuð orkuæðin af þeim styrk sem gafstu mér, til að yrkja afmorskvæðin auðn þó myrkvuð grúfi hér. Þröng er gatan þakin hrísi, þar að rata virðist baks. Gildismatið veginn vísi, vík burt satan frá mér strax. Freisting breiða veginn varðar, viðnám eyðist sérhvert mér. Máni skreið í skugga jarðar, skárust leiðir okkar hér. Yndisþrána aldrei þrýtur, oft þó lánið reynist valt. Sorg og þjáning þverra hlýtur, þögull máni glottir kalt. Vísu þessa nefnir Sigurður „Leit“. Langa ævi leitað hef að lífsins gæfublómi. Ellin slævir örugg skref sem enda í ræfildómi. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com 290MÆLT AF MUNNI FRAM „Það er mikil stemning fyrir þessu blóti enda flestar almennar skemmtanir í spennitreyju þessa dagana, skráning á Facebook-síðu blótsins er á miklu flugi,“ segir Sigurður Friðleifsson, formaður þorrablótsnefndar Eyjafjarðarsveitar. Gripið er til þess nú að halda rafrænt þorrablót í sveitinni og geta þeir sem skrá sig tekið þátt heima við, en dagskrá með ræðuhöldum, skemmtiatriðum og söng verður send út til þátttakenda. Blótið verður haldið laugardagskvöldið 29. janúar og hefst útsending kl. 21.00. „Líklega munu nokkur hundruð fylgjast með og horfa á sameiginleg skemmtiatriði þó að hvert og eitt smáblót í heimahúsum sveitarinnar verði eins fjölbreytt og heimilin eru mörg.“ Þorrablótið fyrir árið 2021 féll niður vegna kórónuveirunnar og sú skæða veira setti líka strik í reikninginn nú. Eyfirðingar dóu ekki ráðalausir og bjóða upp á fulla skemmtidagskrá líkt og um hefðbundið blót væri að ræða, en benda fólki á að koma saman í tíu manna þorrakúlum heima á bæjum og njóta dagskrárinnar þannig. „Okkur þótti of mikið rof að missa út tvö blót í röð,“ segir Sigurður, en samkoman hefur verið haldin í íþróttasal Hrafnagilsskóla og þangað mætt prúðbúið fólk með þorrabakka undir hendinni og góða skapið í farteskinu.“ Undirbúningur var langt kominn Sigurður segir að vel hefði litið út með þorrablótið allt þar til kúvending varð skömmu fyrir jól þegar Ómikron­afbrigði kórónuveirunnar fór að valda miklum usla. „Undirbúningur var langt kominn,“ segir hann en boðið er upp á vandaða dagskrá með leiknum atriðum, annál og ræðuhöldum sem og fjöldasöng „og því sem tilheyrir þegar menn koma saman og skemmta sér á þorrablóti,“ segir hann, en líkt og víða um hinar dreifðu byggðir er þorrablót hápunktur skemmtanahalds ársins á hverjum stað og mikið í lagt. „Það er alltaf mikið um dýrðir á þorrablóti, þetta eru um það bil 500 manna samkomur sem allir hafa mikla skemmtun af.“ Horfum á björtu hliðarnar Sigurður segir að því hafi sú ákvörðun verið tekin að bjóða upp á skemmtidagskrá sem búið var að undirbúa, hún verður tekin upp og fólk hvatt til að safnast saman á fyrsta – og vonandi eina – rafræna þorrablóti Eyjafjarðarsveitar. „Þetta fyrirkomulag hefur ýmsa kosti og við hvetjum fólk til að horfa á björtu hliðarnar. Þetta er ókeypis skemmtun og hægt að hafa gaman í smærri hópum, ef menn missa af einhverju sniðugu á meðan þeir gúffa í sig súrri sviðasultu eða missa niður rófustöppu, þá er bara hægt að spóla til baka og hlusta aftur. Svo er happdrætti í gangi sem vonandi vekur spennu í hópnum og síðast en ekki síst verður tilkynnt um hverjir skipa næstu þorrablótsnefnd, en það er mikill spennuvaldur í sveitarfélaginu,“ segir Sigurður. /MÞÞ Stöllurnar Ólöf Ása Benediktsdóttir, Björg Sigurðardóttir og Bryndís Þórhallsdóttir í fínum gír á þorrablóti næstum því forðum daga. Myndir / Benjamín Baldursson Góð stemning fyrir rafrænu þorrablóti í Eyjafjarðarsveit 29. janúar: Nokkur hundruð munu horfa á sameiginlega dagskrá – Fjölbreytt smáblót haldin í heimahúsum sveitarinnar í 10 manna þorrakúlum Jón Gunnar frá Ytri-Tjörnum með Steinþóri Árnasyni, reykvískum félaga sem mætti norður á þorrablót í nokkur skipti og vakti athygli fyrir óhefðbundin jakkaföt. Páll Ingvarsson í Reykhúsum og Snæfríð Egilson frá Öngulsstöðum skemmta sér vel á þorrablóti fyrir kórónuveiru. Ísleifur Ingimarsson gerir sig líklegan til að innbyrða súran pung.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.