Bændablaðið - 27.01.2022, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202210
FRÉTTIR
Skjáskot úr nýju kyningarmyndbandi Sölufélags garðyrkjumanna. Nú er áherslan lögð á vistvænar lausnir í
ræktun, pökkun og dreifingu sem er kolefnisjöfnuð alla leið í innkaupakörfuna.
Íslenskt grænmeti stendur fyrir
– GÆÐI BEINT FRÁ BÓNDA
– segir í nýju kynningarmyndbandi Sölufélags garðyrkjumanna
Sölufélag garðyrkjumanna (SFG)
fagnaði 80 ára afmæli á árinu 2020
en það var stofn að þann 13. janúar
árið 1940. Félagið hefur nú sett í
loftið nýtt og glæsilegt kynningar
myndband um starfsemina sem
spannar allan ferilinn frá bónda
á matborð neytenda.
Eins og fram kemur í mynd
bandinu er SFG samheldin fjölskylda
grænmetisbænda sem hefur í þrjár
kynslóðir vökvað grænmetið sitt með
íslensku vatni.
Á rúmlega 80 árum hefur
Sölufélag grænmetisbænda þróast
hratt og tekið vaxtarkipp með hverri
kynslóð. Félagið hefur þroskast á
þessum áratugum úr grasrótarafli í
bakland fyrir bændur. Eða eins og
segir í myndbandinu:
„Fyrsta kynslóðin plægði
akurinn með áherslu á
framleiðslugetuna. Hún sýndi
það og sannaði að á Íslandi
má rækta afbragðsgrænmeti
árið um kring. Önnur kynslóð
fylgdi í plógfarið með áherslu á
vöruþróun, merkingar og gæði.
Hún sáði um leið fræjum að öflugu
kynningarstarfi. Í dag vita allir að
íslenskt grænmeti stendur fyrir
gæði beint frá bónda.“
Nú sé áherslan lögð á vistvænar
lausnir í ræktun, pökkun og
dreifingu sem er kolefnisjöfnuð
alla leið í innkaupakörfuna.
Lesendur geta séð myndbandið
á vefslóðinni: www.youtube.com/
watch?v=rFRurmPnf0 /HKr.
VINNUFATNAÐUR
Úrval af vinnu- og regnfatnaði, stígvélum og
öryggisskóm. Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna!
isfell.is • sími 5200 500 Þekking og þjónusta
Landsmenn sækja mjög á sólríkari staði en býðst heima á Íslandi þar sem lægðagangur er með mesta móti um
þessar mundir. Í þeim hópi eru nokkrir Akureyringar sem smelltu sér suður á Tenerife á dögunum, m.a. Halldór Magni
Sverrisson og Hugrún Ívarsdóttir, Steinar Ríkarður Jónasson, Rósa María Stefánsdóttir og Árni Evert Ingólfsson.
Halldór og Hugrún fóru út viku á undan Steinari og Rósu og var lögð mikil áhersla á að þau síðarnefndu kipptu með
sér nýju Bændablaði áður en haldið var til Tenerife. Eitt blað átti að duga en Rósa var aðeins stórtækari og blöðin urðu
fimm. Sem var auðvitað gott í ljósi þess að eftirspurn var mikil eftir lesefninu samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup.
Bændablaðið lesið upp til agna á Tenerife
Kristján Stefánsson frá Gilhaga hefur lengi unnið við uppstoppun.
Kristján Stefánsson frá Gilhaga:
Uppstoppaður kindahaus
númer 400 er tilbúinn
„Þetta er ákveðinn áfangi,“
segir Kristján Stefánsson frá
Gilhaga, sem lengi hefur unnið við
uppstoppun, en seint á síðastliðnu
ári afhenti hann kindahaus númer
400 frá því hann hóf að stoppa
upp. Hausinn fór á Sauðanes við
Siglufjörð, var jólagjöf sem vakti
lukku.
Kristján kennir sig við Gilhaga í
Skagafirði þar sem hann er fæddur
og uppalinn, en hann flutti til
Akureyrar árið 2008 þar sem hann
kom sér upp atvinnuhúsnæði sem
hann kallar Hreiðri. Þar sinnir hann
uppstoppun sinni og hefur um tíðina
haft í nógu að snúast. Mest hefur
hann fengist við að stoppa upp
dýr, kindahausa til að mynda og
tófur hafa líka í áranna rás komið
í töluverðum mæli sem og fuglar.
Kristján segir að upp stopp
unarferlið sé tímafrekt en „ég hef
alltaf jafn gaman af þessu og er svo
sem ekki með nein áform um að
hætta,“ segir hann. /MÞÞ
Bláskógabyggð:
Ný borhola boruð á Efri-Reykjum
Ragnar Sær Ragnarsson, fram
kvæmda stjóri Varma orku, hefur
fyrir hönd framkvæmda aðila sent
sveitarstjórn Bláskóga byggðar
erindi þar sem kemur fram að
félagið „EfriReykjaorka“ stefni
á að bora nýja borholu vegna
fyrirliggjandi verkefna á Efri
Reykjum í Biskupstungum.
Til stendur að koma upp baðlóni
á svæðinu en áætlun fyrir verkefnið
gerir ráð fyrir nýtingu á heitu vatni
sem nemur allt að 65 l/s.
Vöntun er á heitu vatni og hefur
m.a. komið fram að Veitur, sem eiga
rétt á nýtingu á hluta vatns að Efri
Reykjum, þurfa í náinni framtíð
meira vatn. Í dag er aðeins ein
borhola á EfriReykjum, sem þjónar
stóru svæði með hlíðum svæðis
innan Bláskógabyggðar, á fimmta
hundrað sumar og íbúðarhús eru
á því svæði.
Ný borhola mun tryggja öryggi
svæðisins með heitt vatn til lengri
framtíðar.
Umframvarmi, ef aflast, verður
nýttur fyrir varmaver sem þegar
er skipulag fyrir. Sveitarstjórn
Bláskógabyggðar hefur samþykkt
að veitt verði framkvæmdaleyfi
vegna borunarinnar og hefur falið
skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.
/MHH
Tvöfalt lokunarhlið verður sett upp
á Öxnadalsheiði fyrir næsta vetur
– Fastir bílar sem virða ekki lokun tefja snjómokstur
Það er fremur regla en undan
tekning að bílar sitji fastir á
Öxnadalsheiði þegar hefja á
mokstur eftir illviðrakafla sem
lokað hafa heiðinni. Vegfarendur
sumir hverjir freistast til að
komast yfir heiðina þótt búið sé
að loka henni, að sögn Grétars
Ásgeirs sonar, verkstjóra hjá
Vega gerðinni á Akureyri.
Ævinlega þarf á hverjum vetri
að loka Öxnadalsheiði af og til
vegna snjóþunga og ófærðar. Fyrr
í þessum mánuði var heiðinni lokað
í einn og hálfan sólarhring. Nokkur
dæmi voru um að vegfarendur
sinntu ekki lokunarskyldu, heldur
óku fram hjá hliðinu og reyndu að
komast yfir.
Sumir festa bíla sína í ófærðinni
með þeim afleiðingum að þeir tefja
snjómokstur, byrja þarf á að draga
föstu bílana á brott áður en mokstur
hefst. „Síðast þurftum við að draga
burtu fjóra bíla sem höfðu farið inn
fyrir lokunarhliðið,“ segir Grétar.
Hann segir að nú í sumar verði
sett upp ný hlið beggja vegna
Öxnadalsheiðar sem lokar báðum
akgreinum, ekki bara annarri eins
og nú er. „Ætli við byrjum ekki á
því verki þegar frost fer úr jörðu,“
segir hann. Tvöfalda hliðið verður
því komið í gagnið þegar loka þarf
heiðinni næsta vetur. Grétar segir
að til að opna hliðið þurfi fólk að
fara út úr bílunum, „og það verður
vonandi til þess að það hugsi sig
tvisvar um áður en það fer fram hjá
lokunum“. /MÞÞ
Algengt er að vegfarendur virði ekki lokunarhlið Vegagerðarinnar og aki
framhjá þeim og lendi svo í vandræðum og kalli á aðstoð björgunarsveita.