Bændablaðið - 27.01.2022, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202218
FRÉTTIR
Viðurkennd verndandi arfgerð gegn
riðu finnst í sex einstaklingum
Sex einstaklingar fundust fyrir
skemmstu með tiltekna verndandi
arfgerð (ARR) gegn riðu í sauðfé,
sem er alþjóðlega viðurkennd og
notuð með góðum árangri í Evrópu
við útrýmingu á sjúkdómnum.
Arfgerðin hafði aldrei áður fundist
á Íslandi þrátt fyrir víðtæka leit.
Einstaklingarnir sex eru allar á
bænum Þernunesi í Reyðarfirði.
Fimm ær og einn hrútur fundust
með arfgerðina, en Þernunes er
talið vera gott ræktunarbú. Engin
einstaklinganna er þó arfhreinn um
þessa arfgerð.
Fundurinn er afrakstur tveggja
rannsóknateyma sem unnið hafa
saman að því að finna verndandi
arfgerðir gegn riðu í íslensku sauðfé.
Annars vegar eru það sérfræðingar
á Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
og Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræðum að Keldum og hins
vegar sauðfjárbóndinn Karólína
Elísabetardóttir ásamt erlendum
vísindamönnum.
Þernunes er gott kynbótabú
Eyþór Einarsson, sauðfjárræktar
ráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins, segir að um stór
merkan fund sé að ræða. Hann segir
að ARRarfgerðin hafi verið staðfest
í kindunum, eftir að rúmlega 4.200
sýni höfðu verið raðgreind, í þessari
rannsókn og öðrum tengdum verk
efnum á síðustu tíu mánuðum.
Að sögn Eyþórs var fundurinn
óvæntur, en kindurnar eru kollótt
ar og rekja ættir sínar meðal annars
í koll ótta féð í Reykhólasveit og
á Ströndum. „Við munum í fram
haldinu rekja þetta betur innan
Þernuness og beina spjótum okkar
næst að Kambi í Reykhólasveit.
Síðan er stóra átakið að fara í gang
meðal bænda í riðuarfgerðar grein
ingum, þar sem bændur velja sjálfir
að koma inn – vonandi náum við 15
til 20 þúsund sýnum í gegnum það
verkefni sem mun gefa gríðarlega
góðar upplýsingar um stofninn.
Þegar við sjáum aðeins hvar og
hvernig þátttakan verður í því verk
efni munum við handvelja fleiri hjarð
ir til að klára skönnun í öllum hólfum,
ef þarf – eða frekari rakningar.
Næsta vor ættum við að vera með
mjög miklar upplýsingar um stöðuna
í stofninum og vonandi búin að finna
þessa arfgerð víðar um land – þannig
megi svo finna gripi fyrir sæðinga
stöðvarnar þannig að allir geti haft
aðgang að þessu erfðaefni.
Á Þernunesi er hörku fé og það
er gott kynbótabú. Ef við fáum hrút
eða hrúta þar, þurfum við fyrst að
skoða hvort við fáum undanþágu
til að taka þá, þar sem bærinn er í
Suður fjarðarhólfi sem er enn þá
lokað. Reyndar er orðið mjög stutt í
að hólfið nái 20 ára riðuleysi og opn
ist. Sigur borg yfirdýralæknir er nánast
tilbúin með nýja reglugerð sem liðkar
fyrir flutningi á gripum með viður
kennda verndandi arfgerð – spurning
hvenær hún tekur gildi, en það mun
líka breyta stöðunni,“ segir Eyþór.
Ólæknandi heilahrörnun
Rúm 20 ár er síðan vísindamönnum
var ljóst að ARR afbrigði príon
próteinsins veitti vörn gegn riðu
veiki í sauðfé, sem er ólæknandi
heilahrörnunarsjúkdómur og talið
er að borist hafi til Íslands með
enskum hrúti 1878 sem fluttur var
að Veðramóti í Skagafirði.
Skipu legar aðgerðir til að hefta
útbreiðslu riðu hérlendis hófust upp
úr 1980 og frá árinu 1986 hafa allar
hjarðir verið skornar niður hér á
landi, þar sem einstaklingur greinist
með dæmigerða riðu.
Á kynningarfundi mánudaginn 10.
janúar, þar sem fulltrúar úr rannsókn
arhópunum greindu frá þessum fundi
á ARRarfgerðinni og áhrifum hans,
kom fram að um síðustu aldamót hafi
verið gerðar rannsóknir hér á landi er
varða næmi kinda með mismunandi
arfgerðir fyrir riðuveiki. Í þessum
rannsóknum fannst ARR ekki þrátt
fyrir skipulega leit og því ekki gert
ráð fyrir að íslenska kindin byggi
yfir arfgerð sem væri fullkomlega
verndandi líkt og þekkist í mörgum
erlendum sauðfjárkynjum.
Allir breytileikar príonpróteinsins
rannsakaðir
Nýlega hafa einnig verið fluttar fréttir
af leit að annarri fágætri arfgerð
(T137) sem fundist hefur í örfáum
kindum, sem ítalskir vísindamenn hafa
sýnt fram á að virki verndandi þar í
landi. Sú arfgerð er hins vegar ekki
viðurkennd af Evrópusambandinu
né íslenskum yfirvöldum, enn sem
komið er. Það er rannsókn sem Karó
lína hefur leitt með teymi erlendra
vísindamanna. Eyþór segir að með
riðu arfgerðargreiningum sé nú orðinn
raunhæfur möguleiki að bændur geti
fundið ARR ásamt fleiri spennandi arf
gerðum eins og T137breytileikanum,
sem muni hugsanlega einnig virka full
komlega verndandi í íslensku sauðfé.
Bæði rannsóknarverkefnin
hafa hlotið styrk úr Þróunarsjóði
sauðfjárræktarinnar sem er í umsjá
atvinn uvega og nýsköpunar ráðu
neytisins. Forsvarsmenn þessara
verkefna mynduðu síðan teymi sem
unnið hefur saman.
Þar sem vonin var veik að finna
ARR arfgerðina þá var ætlunin að
rannsaka alla mögulega breytileika
í príonpróteininu í þeim tilgangi að
finna fleiri arfgerðir sem gætu mögu
lega nýst til að auka riðuþol íslensku
kindarinnar. Jafnframt var horft til
þess að skoða fé af íslensk um upp
runa á Grænlandi, ef þrauta lendingin
yrði að sækja þyrfti erfðaefni út fyrir
landsteinana.
Vonir um fleiri ARR-gripi
Eyþór segir fundinn geta gjörbreytt
baráttunni við riðuveiki þar sem ekki
þarf að fá þessa arfgerð viðurkennda.
Fljótlega ætti að vera hægt að taka upp
reglur að fyrirmynd ESB sem þýðir
að ekki þurfi að skera allar kindur
á bæjum þar sem upp kemur riða. Í
löndum Evrópusambandsins er ekki
skylda að skera niður kindur sem bera
ARR þó riða sé staðfest í hjörðinni –
því talið er að slíkar kindur geti hvorki
veikst né smitað annað fé ef þær eru
ARRarfhreinar.
„Fyrir ræktunarstarfið verður
áskorunin á næstu árum að koma
ARR arfgerðinni sem hraðast inn í
stofninn án þess að draga um of úr
erfðafjölbreytileika hans. Vonandi
mun áframhaldandi leit í stofninum
skila upplýsingum um fleiri gripi með
þessa arfgerð. Eins er mjög mikilvægt
að halda áfram rannsóknum á öðrum
mögulega verndandi stökkbreytingum
svo sem T137. Ef niðurstöður rann
sóknanna verða jákvæðar, gæti Ísland
orðið fyrsta landið í heimi sem nýtir
sér fleiri en eina verndandi arfgerð til
að útrýma riðu úr sínum sauðfjárstofni.
Það myndi hafa jákvæð áhrif á fjölda
mögulegra ræktunargripa og erfða
breytileika stofnsins, en einnig hraða
þróuninni,“ segir Eyþór.
Sameinað teymi beggja rannsókna
hópa samanstendur meðal annars af
þeim Eyþóri Einarssyni, sauðfjár
ræktarráðunauti hjá Ráðgjafar
miðstöð landbúnaðarins, Gesine
Lühken, prófessor í Universität
Gießen í Þýskalandi, Karólínu
Elísabetar dóttur, sauðfjárbónda í
Hvammshlíð, Stefaníu Þorgeirsdóttur,
sérfræðingi á Tilraunastöð Háskóla
Íslands í meinafræði að Keldum og
Vilhjálmi Svanssyni, sérfræðingi á
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meina
fræði að Keldum. /smh
Ættartré Gimsteins
Mynd / Eyþór Einarsson
Eyþór Einarsson og Karólína Elísabetardóttir. Mynd / Samsett