Bændablaðið - 27.01.2022, Page 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202234
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
Nyt kúa hefur haldið lífi í þjóðum
heimsins lengur en elstu menn muna
og hafa hinar ýmsu rannsóknir farið
fram varðandi hvernig best er að
auka þær afurðir.
Aðbúnaður og þá aðrir
vellíðunarþættir leika stóran þátt
í mjólkurframleiðslu dýranna og
hafa tilraunir með spilun tónlistar á
kúabúum notið mikilla vinsælda.
Komið hefur í ljós að klassísk tónlist,
eða róandi, þar sem takturinn er undir
100 slögum á mínútu, virðist vera
þeirra yndi. Fyrir nokkru fréttist svo
af uppátektarsömum kúabúseigendum
í Rússlandi sem tóku hugmyndinni um
aukna velferð kúnna, skrefinu lengra.
Rússnesku bændurnir á stórbúinu
RusMoloko á Ramensky-svæði
Moskvuborgar tóku sig til og keyptu
sýndarveruleikagleraugu á alla
hjörðina. Þar njóta kýrnar þess, á
meðan þær matast, að upplifa græn
og gróskumikil engi með aðstoð
gleraugnanna og komið hefur í ljós að
andleg líðan kúnna tók þó nokkurt stökk
– auk þess sem nytjar þeirra jukust.
Kaup sýndarveruleikagleraugnanna
féllu undir könnun rússneska
landbúnaðarráðuneytisins, en þar voru
háttsettir ráðamenn í öngum sínum
vegna minnkandi framleiðslu mjólkur.
Á fundi þeirra varðandi framleiðsluna
voru ýmis ráð rædd, tekið var fyrir
hvernig Bandaríkjamenn bjóða upp á
róterandi vélknúna bursta til að hygla
dýrum sínum, íbúar meginlands Evrópu
telja aukna hreyfingu gripanna vera
bót allra mála og áður höfðu bændur
Moskvu sett upp hljóðkerfi í fjósunum
svo kýrnar gætu notið klassískrar
tónlistar (með ágætis útkomu reyndar).
Fundarmenn ráðuneytisins töldu
þó að frekari aðgerða væri þörf og
gripu því til hugmyndar bændanna
um sýndarveruleikann og fengu
útbúin gleraugu með aðstoð hönnuða
sem tóku mið af sjón dýranna, sem
meðal annars geta horft 330 gráður í
kringum sig en skynja þó ekki liti sem
greinilegast.
Í heildina var gríðarleg ánægja í
landbúnaðarráðuneytinu vegna fyrstu
niðurstaðna þessarar tilraunar en í dag
er RusMoloko meðal þriggja stærstu
mjólkurframleiðenda í Rússlandi.
Tilraunin stendur enn yfir og er
þarlendum kúabúseigendum boðið
að taka þátt, en hlekk á skráningu
má finna hjá rússnesku vefsíðunni
www.msh.mosreg.ru/ /SP
Sýndarveruleikaæði grípur kýr á
bænum RusMoloko í Rússlandi
Tískuveldin Chanel, Gucci og Dior
eru meðal þeirra máttarstólpa sem
hafa haft ítök í neytendum síðan
snemma á tuttugustu öldinni.
Brautryðjendur líkt og hin franska
Coco Chanel, sem lagði áherslu
á glæsilega en þó þokkafulla og
þægilega kventísku – jarðbundni og
ítalskættaði Guccio Gucci sem hóf feril
sinn sem framleiðandi lúxusferðataska
úr leðri og annarra fylgihluta – og
Christian Dior sem gladdi almenning
með fallegum og glaðlegum fatnaði á
stríðsárunum.
Þrátt fyrir töfra
og ævintýri tísku-
straumanna sem
þessir höfðingjar hafa
borið okkur síðan þá,
eru undirliggjandi
vangaveltur um
hve meðvitaðir þeir
og kollegar þeirra í
bransanum eru um áhrif
framleiðslunnar á umhverfið.
Eins og staðan er í heiminum
í dag er fataiðnaður því miður í
flokki þeirra er hafa hvað mest áhrif
á mengun umhverfisins.
Þónokkur vitundarvakning hefur
reyndar átt sér stað á síðastliðnum
árum, en enn þykir þorra almennings,
úrlausnir til aðlögunar, heldur
krefjandi. Eða ef til vill auðveldara
að líta aðeins framhjá þeim.
Vitundarvakning neytenda
Á vefsíðu www.goodonyou.
eco má finna yfirlit yfir helstu
tískurisana og hve vel þeim tekst
að vera til fyrirmyndar í þessum
efnum. Aðstandendur síðunnar
eru m.a. hönnuðir, vísindamenn
og umhverfissinnaðir áhrifavaldar
sem taka saman allar upplýsingar
fyrirtækja hvað varðar sjálfbærni, sóun
og stöðu er kemur að umhverfisvernd
... svo eitthvað sé nefnt ... og deila
niðurstöðunum á vefsíðu sinni,
neytendum til vakningar.
Ef litið er á nokkur helstu
tískuveldin verður niðurstaðan heldur
bág er kemur að einkunnagjöf. Þeir
sem standa sig hvað best að mati
aðstandenda síðunnar eru Gucci,
Burberry og Balenciaga sem tróna
hæst og fá ITS A START, eða þriðju
hæstu einkunn. (Toppeinkunn
er GREAT og svo er talið niður,
GOOD-ITS A START-NOT GOOD
ENOUGH og að lokum falleinkunnin
WE AVOID)
Önnur fyrirtæki, líkt og Chanel,
Dior, Louis Vuitton, Hermès, Prada,
Armani, Versace og Valentino fá
því miður einkunnina NOT GOOD
ENOUGH og byggja
álitsgjafar þá
stigagjöf
helst á
eftirfarandi
athugasemdum
– ef við tökum
dæmi fjögurra fyrstu
fyrirtækjanna hér að ofan.
Chanel: Gera ekki fullnægjandi
ráðstafanir til að útrýma hættulegum
efnum sem koma til þeirra frá
birgjum, nota ekki vistvæn fataefni
og þó fyrirtækið hafi sett sér markmið
um að draga úr losun gastegunda frá
verksmiðjum sínum bendir ekkert til
þess að það sé í raun að gerast.
Dior: Notast enn við alvöru
dýrafeldi, afurðir þeirra, svo sem
leður, notar fá umhverfisvæn/lífræn
fataefni og engar vísbendingar
eru um lágmarksúrgang er kemur
að vefnaði. Einnig kemur fram
álitamál um misnotkun vinnuafls við
saumaskapinn.
Louis Vuitton: Samkeppnisaðili
Dior, þó eignarhald fyrirtækjanna sé
hið sama; LVMH, samsteypa fyrirtækja
LV og koníaksframleiðandans Moët
Hennessy – fær áminningu um sömu
hluti og Dior, notast er við dýraafurðir
og meðferð úrgangs ábótavant.
Hermès: Fær áminningu hvað
varðar yfirlit launastöðu og almenna
framfærslu fólks hjá birgjum sínum,
auk þess sem ekki eru umhverfisvæn/
lífræn fataefni höfð í hávegum
eða leitast eftir umhverfisvænum
aðgerðum er kemur að eyðingu skóga
í þessu ferli öllu.
Hraðtíska eða klassískar flíkur
Þannig er nú það. Auðvitað er samt
ágætt að líta til þess að ef við ætlum
að bjarga heiminum má
auðvitað líta við hjá
stóru merkjum
tískuheimsins
og fjárfesta í
vönduðum og
endingargóðum
(þá helst klassískum
líka) fatnaði heldur
en að hlaupa á eftir
hraðtískufyrirtækjum
á borð við sænska
fyrirtækið HM, Mango
eða Zöru sem koma bæði
upprunalega frá Spáni.
Mikil mengun stafar af
framleiðsluferli slíkra fyrirtækja, en
frá þeim kemur fatnaður, framleiddur
eins hratt og hægt er, í þeim tilgangi
að neytendur geti sem fyrst klætt sig
í afurðir tískupallanna.
Hugmyndin á bakvið ferlið er að
gera stórum hópi neytenda kleift að
klæðast nýjustu tísku á sem lægsta
verði – en þeir sem gjalda fyrir slíkt
er stór hópur jarðarbúa sem vinnur við
að framleiða fötin við ómannúðlegar
aðstæður – auk þess sem óseldan
fatnað má finna í miklum mæli á
urðunarstöðum úti um allan heim svo
örfá dæmi séu nefnd.
Þá getur semsagt verið örlítið
skynsamlegra að líta sjaldnar við
í tískuvöruverslunum en kaupa
því vandaðri vöru sem má eiga
alla ævi. Til dæmis hina sígildu
tweed-dragt Coco Chanel, svartan
klæðilegan kjóll Christian Dior eða
farangurshirslur af vönduðustu gerð
frá Gucci. /SP
Framleiðsluferli tískurisa undir smásjá:
Meðvituð neysluhyggja
Nýverið komst fyrirtæki Gucci á
milli skoltanna á dýra verndunar
sinnum – þó ekki vegna dýraafurða
í varningi sínum heldur vegna
tígrisdýrs sem fengið var til að
gegna störfum fyrirsætu.
Listrænir stjórnendur auglýs-
ingaherferðar sem átti að tengja
vörur Gucci nýja kínverska árinu
– ári tígrisdýrsins – áttu í kjölfar-
ið ekki beinlínis upp á pallborðið
hjá umhverfisverndarsinnum fyrir-
tækisins WAP* sem vilja meina að
aðstæður dýrsins hafi beinlínis verið
því til miska.
Talsmenn fyrirtækis Gucci
staðfesta þó að dýrin hafi verið
ljósmynduð í öruggu umhverfi, án
annarra viðstaddra fyrirsætna og
myndvinnsluforritið Photoshop
hafi verið nýtt til hins ýtrasta við
samsetningu auglýsinganna.
Nick Stewart, alþjóðlegur
yfirmaður WAP telur hins vegar
að Gucci sé að senda frá sér röng
skilaboð með því að upphefja
tígrisdýr sem eiga almennt séð
ekki að vera í haldi. Ár tígursins
ætti frekar að ýta undir virðingu og
vernd tígrisdýrastofnsins í heild en
ekki gera hann að söluvöru. Telur
Stewart það engu skipta hvort dýr
sem þessi, sem sitja fyrir, hafi alist
upp í haldi manna eða verið veidd
í náttúrunni. „Álagið er gríðarlegt
þegar þessi dýr eru neydd til að
sitja fyrir á myndum,“ segir hann
í yfirlýsingu frá samtökunum. „Og
með því að nýta tígrisdýrin sem
uppstillta leikmuni hvetur herferð
sem þessi neytendur Gucci til að
koma þannig fram við þau.“
Á móti lýsir Gucci því yfir að
fulltrúar dýraverndunarsamtakanna
**AHA hafi verið viðstaddir
myndatökuna til þess einmitt að allt
færi sem réttast fram.
Aðspurðir gátu þeir staðfest að
dýrið hefði verið sallarólegt og
makindalegt er myndatakan fór fram
en þrátt fyrir þær staðfestingar sitja
talsmenn WAP fastir við sinn keip og
halda því fram að þeir telji AHA, yfir
tíðina, ekki hafa staðið undir yfirlýstu
hlutverki sínu sem umhyggjusamir
dýraverndunarsinnar. /SP
*(World Animal Protection)
** (American Humane Association)
Umdeild auglýsingaherferð Gucci:
Ár tígursins
UTAN ÚR HEIMI