Bændablaðið - 27.01.2022, Page 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202252
Niðurstöður skýrsluhaldsins í
mjólkurframleiðslunni árið 2021
hafa verið reiknaðar og birtar á
vef Ráðgjafarmiðstöðvar land
búnaðarins, www.rml.is. Hér
verður farið yfir helstu tölur úr
uppgjörinu.
Þeir framleiðendur sem skiluðu
einhverjum, en þó mismiklum
upplýsingum um afurðir kúa sinna
á nýliðnu ári voru 517 en á árinu
2020 voru þeir 541. Niðurstöðurnar
eru þær helstar að 25.382,8 árskýr
skiluðu 6.336 kg nyt að meðaltali.
Það er lækkun um 48 kg/árskú
frá árinu 2020 en þá skiluðu
25.649,0 árskýr meðalnyt upp á
6.384 kg. Þetta eru þó einar mestu
meðalafurðir frá upphafi vega og
sjötta árið í röð sem þær ná yfir
6.000 kg eftir árskú. Umreiknaðar
í orkuleiðrétta mjólk (OLM) eru
meðalafurðir síðasta árs 6.544 kg/
árskú.
Meðalbústærð reiknaðist
50,0 árskýr á árinu 2021 en
sam bærileg tala var 48,4 árið á
undan. Meðalbústærð reiknuð í
skýrslufærðum kúm var nú 66,8
kýr en 2020 reiknuðust þær 64,1.
Samtals voru skýrslufærðar kýr á
árinu 34.553 talsins samanborið við
34.696 árið áður.
Mestar meðalafurðir á
Austurlandi
Svæðaskipting fylgir að segja má
kjördæmum. Á árinu voru mestar
meðalafurðir á Norðurlandi eystra,
6.454 kg, og síðan kemur Austur
land með 6.420 kg.
Stærst eru búin að meðaltali á
Austurlandi, 51,9 árskýr, en næst
stærst eru þau á Suðurlandi, 51,8
árskýr.
Meðalbúið stækkar aðeins
Meðalbúið stækkaði milli ára þrátt
fyrir samdrátt í innleggi mjólkur
en í takti við fækkun innleggsbúa.
Meðalinnlegg á bú með innlegg allt
árið nam 288.088 lítrum samanborið
við 284.363 lítra á árinu 2020. Á
sama tíma fækkaði innleggsbúum
mjólkur um sextán og voru kúabú
í framleiðslu 517 talsins nú um
áramótin 2021/22.
Gríðarleg vanhöld á kálfum
Vanhöld kálfa eru mikil og skýrast
að stærstum hluta af gríðarlegum
fjölda dauðfæddra kálfa við fyrsta
burð. Meira en fjórði hver kálfur
undan 1. kálfs kvígum fæðist dauður
en slíkt ástand hlýtur að flokkast
sem algjörlega óviðunandi. Þrátt
fyrir rannsóknir og athuganir á
orsökum þessa hefur engin ein
ástæða fundist. Samkvæmt könnun
RML sem lokið var við á síðasta
ári er einhvern hluta ástæðnanna
að finna í bústjórnarþáttum eins og
fóðrun fyrir burð, tilfærslu gripa
eftir að burður hefst og óþekktri
væntanlegri burðardagsetningu.
Við ætlum seint að læra af
reynslunni. Enn stundar töluverður
hluti bænda þá búskaparhætti að
gera kvígurnar nánast að kúm fyrir
fyrsta burð sökum aldurs. Þó mjakast
þau mál til betri vegar og á síðasta
ári var meðalaldur við 1. burð 27,3
mánuðir sem er 0,2 mánuðum lægri
aldur en árið áður. Þessum þætti þarf
að gefa meiri gaum í bústjórninni en
allt bendir í þá átt að stefna eigi að
því að kvígurnar beri 2224 mánaða
gamlar. Þarna munar því um hálfu
ári með tilheyrandi rýmiskröfum og
auknum uppeldiskostnaði.
Fyrir meira en sextíu árum
uppgötvuðu forfeður okkar að það
væri bæði betra og þægilegra að
sæða kýrnar en að halda þarfanaut.
Þessari þekkingu gengur illa
að miðla milli kynslóða því um
34% allra fæddra kálfa eru undan
þarfanautum. Auðvitað hamla
aðstæður því víða að hægt sé að
sæða kvígurnar en það verður
þó ekki horft framhjá því að sá
kostnaður sem hlýst af þessu fyrir
greinina í heild er gríðarlegur.
Hann felst meðal annars í töpuðum
kynbótaframförum og fleiri dauðf
æddum kálfum.
Mestar meðalafurðir á Búrfelli í
Svarfaðardal
Annað árið í röð reyndist mest
meðalnyt eftir árskú vera hjá Guðr
únu Marinósdóttur og Gunnari Þór
Þórissyni á Búrfelli í Svarfaðardal.
Nyt eftir árskú endaði þar í 8.908
kg á árinu 2021 sem er aukning
um 329 kg frá fyrra ári. Á Búrfelli
er að finna legubásafjós með
mjaltaþjóni sem tekið var í notkun
vorið 2018. Frá þeim tíma hafa
afurðir aukist jafnt og þétt og sér
í raun ekki fyrir endann á því.
Annað í röð afurðahæstu búa
landsins er kunnuglegt á þeim lista
en þar er um að ræða bú þeirra
Guðlaugar Sigurðardóttur og
Jóhannesar Eybergs Ragnarssonar
á Hraunhálsi í Helgafellssveit á
norðanverðu Snæfellsnesi. Árin
20182020 var þetta bú með
þriðju mestu afurðir eftir árskú á
landinu en færist nú í annað sætið.
Þar á bæ mjólkaði meðalárskýrin
8.664 kg sem er aukning um
307 kg. Fjósið á Hraunhálsi er
básafjós með rörmjaltakerfi og
öll umgengni og snyrtimennska
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Niðurstöður skýrsluhalds mjólkurframleiðenda árið 2021
Sigurður Kristjánsson
skýrsluhald og
prófarkalestur
sk@rml.is
Guðmundur Jóhannesson
ráðunautur
í nautgriparækt
mundi@rml.is
Norðurland Norðurland
vestra eystra
Fjöldi búa alls 75,00 15,00 89,00 124,00 18,00 196,00 517,00
Fjöldi búa með skil 74,00 15,00 87,00 123,00 18,00 191,00 508,00
Fjöldi kúa alls 3.523,00 593,00 4.357,00 6.437,00 957,00 10.084,00 25.951,00
Meðalbústærð, kýr 47,60 39,50 50,10 52,30 53,20 52,80 51,10
Fjöldi árskúa 3.403,60 601,50 4.295,90 6.256,40 934,90 9.890,60 25.382,80
Meðalbústærð, árskýr 46,00 40,10 49,40 50,90 51,90 51,80 50,00
Fjöldi 1. kálfs kúa 1.222,00 176,00 1.618,00 2.388,00 316,00 3.740,00 9.460,00
Fjöldi kvígna eldri en 24 mán 596,00 165,00 725,00 710,00 135,00 1.811,00 4.142,00
Endurnýjunarhlutfall 34,70 29,70 37,10 37,10 33,00 37,10 36,50
Hlutfall kúa með förgunarástæðu 100,00 100,00 100,10 100,10 100,00 99,40 99,80
Mjólkurframleiðsla síð. 12 mánuði
Meðalbústærð, innlögð mjólk 250.149,00 196.698,00 286.765,00 303.656,00 309.012,00 298.477,00 288.088,00
Mjólk/árskú 6.038,00 5.357,00 6.398,00 6.454,00 6.420,00 6.388,00 6.336,00
Fita kg 252,00 224,00 264,00 277,00 274,00 268,00 266,00
Fita % 4,17 4,18 4,13 4,29 4,27 4,19 4,20
Prótein kg 204,00 186,00 216,00 224,00 223,00 213,00 215,00
Prótein % 3,38 3,46 3,38 3,47 3,48 3,34 3,39
Kg OLM/árskú 6.204,00 5.549 6.547,00 6.772,00 6.723 6.562,00 6.544
Mjólkurnýting 93,00 94,00 94,00 96,00 95,00 94,00 95,00
Frumutala (reiknuð) 250,00 272,00 260,00 269,00 297,00 260,00 263,00
Mjólkandi kýr
Dagsnyt/kú 16 13 16 16 16 16 16
Dagsnyt OLM/kú 16 14 17 17 17 16 16
Kjötframleiðsla síð. 12 mánuði
Kýr
Hlutfall með sláturgögn 85,60 80,20 85,20 86,10 85,20 86,70 86,00
Flokkun 2,50 2,84 2,95 2,45 2,49 2,63 2,62
Dagar frá burði við förgun 274,80 339,00 265,20 252,40 285,10 243,20 256,20
Meðalþungi, kg 199,20 210,90 208,50 206,00 206,30 202,30 204,20
Heilsufar síð. 12 mánuði
Hlutfall með sjúkdómaskráningu 13,70 14,50 9,50 41,40 18,40 17,00 21,30
Kýr
Fjöldi sjúkdómstilfella á árskú 0,19 0,19 0,14 0,59 0,25 0,24 0,30
Júgurmeðhöndlanir á árskú 0,05 0,06 0,07 0,11 0,09 0,08 0,08
Geldstöðumeðhöndlanir á árskú 0,02 0,03 0,01 0,02 0,03 0,02 0,02
Bráðadauði/slys á árskú 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01 0,01
Kálfar
Hlutf. dauðra og dauðf. við 1. Burð 26,00 24,20 29,10 28,70 29,30 26,30 27,40
Hlutf. dauðra og dauðf. aðrir burðir 6,70 9,30 9,00 9,60 8,40 8,80 8,70
Hlutf. dauðra á 1-180 daga 3,00 3,10 3,20 2,70 2,40 2,30 2,60
Frjósemi síð. 12 mánuði
Dagar frá burði til 1. Sæðingar 65,60 80,20 64,20 66,90 64,00 66,20 66,10
Meðalaldur við 1. Burð 27,70 28,80 27,10 26,70 27,90 27,50 27,30
Hlutfall kálfa undan sæðinganautum 65,90 66,20 64,30 65,70 64,90 68,00 66,40
Ending
Kýr
Meðaldur við förgun, dagar 1.969,60 2.153,90 1.869,80 1.835,90 1.878,70 1.834,50 1.864,50
Meðalfjöldi burða við förgun 3,11 3,25 2,89 2,90 2,83 2,86 2,91
Meðalæviafurðir fargaðra kúa 18.345,60 18.014,00 17.610,80 17.751,90 17.787,30 16.949,50 17.474,90
Annað
Ný bú í skýrsluhaldi síðasta mánuð 0 0 0 0 0 0 0
Bú sem hættu í síðasta mánuði 0 0 0 1 0 0 0
Skýrsluhald í mjólkurframleiðslu - ársyfirlit 2021 Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Landið alltUppgjör fyrir tímabilið Vesturland Vestfirðir Austurland Suðurland
Nythæstu kúabú í árslok 2021 eftir uppgjörssvæðum
Fjöldi Afurðir
árskúa kg/árskú
Vesturland 370179 Hraunháls Guðlaug og Eyberg 24,4 8.664
Vestfirðir 460128 Hvammur Ólöf og Valgeir 39,2 7.706
Norðurland vestra 550121 Bessastaðir Guðný Helga og Jóhann Birgir 28,2 7.935
Norðurland eystra 650221 Búrfell Guðrún og Gunnar 39,7 8.908
Austurland 761412 Núpur Björgvin Rúnar Gunnarsson 108,8 7.475
Suðurland 861037 Syðri-Hamrar 3 Guðjón og Helga 43,3 8.446
*Uppgjörssvæðunum hefur verið breytt og þau eru nú orðin eingöngu 6 í uppgjörinu
Heimild: Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Uppgjörssvæði* Bú - árslok 2021 Skýrsluhaldarar