Bændablaðið - 27.01.2022, Qupperneq 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 27. janúar 202256
Þann 20. júlí 2020 skrifaði ég
grein hér í Bændablaðið um
afturhjóladrifna MG bílinn, var
framan af í greininni óvæginn út í
BL þar sem mér fannst kynningin
á bílnum vera villandi og röng,
en þessi eindrifsbíll var kallaður
jepplingur. Hins vegar finnst
mér að þennan bíl mætti kalla
smájeppa eða jeppling því hann
er fjórhjóladrifinnn.
Þegar ég fékk bílinn var
rafhlaðan sögð vera 100% hlaðin
og mælaborðið sagði að hægt væri
að keyra um 250 km.
Kraftmikill vélbúnaður
og sjö ára ábyrgð
Rafhlaðan er 70kWh og á við bestu
aðstæður að koma bílnum 370 km
samkvæmt sölubæklingi. Mér fannst
eitthvað skrítið við þetta því þegar
ég fékk bílinn fullhlaðinn sagði
mælaborðið að ég gæti keyrt 250 km.
Uppgefin hestöfl eru 288 og
bíllinn er með sjálfskiptingu.
MG Marvel-R er frekar þungur,
en uppgefin eigin þyngd er 1.810 kg.
Öryggisbúnaður er góður og er
bíllinn með allt þetta hefðbundna
sem er orðið nánast í öllum nýjum
bílum, svo sem stöðuleikastýringu,
neyðarbremsuaðstoð og sjálfvirka
neyðarhemlun, árekstrarvörn og
árekstrarviðvörun, akreinastýringu
og akreinavara með viðvörun á
hliðarumferð, ásamt fleiru sem gerir
bílinn bæði þægilegan og öruggan
í akstri.
Sjö ára ábyrgð er á bílnum, raf-
hlöð unni og gegnumryðsábyrgð.
Bíllinn sem var prófaður heitir
MG Marvel-R Performance og
kostar 7.199.000 krónur.
Prufuakstur við slæm
akstursskilyrði
Þegar ég byrjaði prufuaksturinn
sagði mælaborðið mér að ég gæti
farið 233 km á rafhlöðunni, en
ég stillti sætishitarann á lægstu
stillingu, miðstöðina á 22 gráður
og við þetta sagði mælaborðið mér
að þessi upphitun mundi kosta mig
alls 12 km.
Síðastliðinn sunnudag var ekki
skemmtilegt veður til að prófa
nýjan bíl, en ljósi punkturinn var
að veggrip var lítið og því fékk ég
gott tækifæri á að prófa þær fjórar
mismunandi akstursstillingar sem
í bílnum eru; Eco, Normal, Sport
og Snow. Þegar svona mikil hálka
og misjafnt grip er, er Eco, Normal
og Sport ekki að virka. Skriðvörnin
og spólvörnin koma af og á með
hálfgerðum rykkjum og næstum
höggum, en ef ekið er með stillt á
Snow er bíllinn allur mýkri og allt
annað að keyra bílinn.
Til að fá gott grip varð að vera á
svonefndum stofnbrautum og var þar
notast við Miklubrautina.
Í Eco var bíllinn frekar latur af
stað, en í Normal mun sneggri og með
stillt á Sport var bara gaman, bíllinn
stökk hreinlega á hámarkshraða og
aðeins rúmlega á örstuttri stund.
Ólíkt mörgum öðrum
rafmagnsbílum þá virtist bíllinn
telja akstursdrægnina tiltölulega jafnt
niður því ég keyrði um 70 km og þá
sagði mælaborðið, sem var í byrjun
á 221, að ég ætti 149 km eftir.
Hef séð mælaborð telja endingu
rafgeymis niður næstum þrefalt
hraðar en eknir kílómetrar segja
til um.
Skemmtilegur bæjarbíll,
en heggur aðeins
í malbiksskemmdum
Að keyra bílinn er mjög gott, út-
sýni fínt, góðar upplýsingar af vel
sjáanlegu mælaborðinu.
Bíllinn er mjög hljóðlátur, veg-
hljóð nánast ekkert þrátt fyrir að vera
á vetrardekkjum og á 90 mældist
hávaðinn ekki nema 66,7db., en
eindrifs MG bíllinn sem ég prófaði
fyrir rúmu ári mældist 68,7db. á
sumardekkjum.
Farangursrými er gott, sæti ágæt
og pláss fyrir farþega í aftursætum
er gott.
Aðeins tvennt fann ég að bílnum,
ljós og dekk.
Eins og í flestum rafmagnsbílum
er ekkert varadekk í bílnum, bara
pumpa og þéttiefni til að dæla í lekt
dekk.
Bíllinn er á 19 tommu felgum
með dekkjastærðina 235/45/19, en
talan 45 stendur fyrir að hæð dekks-
ins er ekki nema 45% af 23,5 cm, en
það eru aðeins 13 cm.
Fyrir vikið er að í hvert sinn
sem maður keyrir í holu, yfir
hraða hindrun eða keyrir yfir
malbiksskemmd finnur maður
töluvert högg koma á bílinn þar
sem nánast enga fjöðrun er að fá úr
hjólbarðanum. Árlega kemur það
sem hjólbarðaviðgerðamenn kalla
holutímabil, þar sem sem allt í einu
koma holur í malbikið öllum að
óvörum og þeir bílar sem verst fara
út úr þessu eru þungir bílar á lágum
dekkjum sem oftast höggva hliðina
úr dekkinu.
Ég myndi því vera með vetrar-
dekkin á MG Marvel-R á 17 tommu
felgum til að vega á móti þyngd og
minnka líkur á skemmdum dekkjum
og felgum.
Til að fá afturljósin á bílinn í
akstri þarf að kveikja handvirkt
ljósin, en þegar dimmt er þá kvikna
ljós sjálfkrafa.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Hæð 1.664 kg
Breidd 1.919 mm
Lengd 4.674 mm
Helstu mál og upplýsingar
Þrátt fyrir vetur og vetrardekk mældist
bíllinn ekki nema 66,7db., en sá fyrri
sumarið 2019 á sumardekkjum 68,7
MG Marvel-R 4X4. Myndir / HLJ
Afturljósin flott, en það verður að muna eftir að kveikja á þeim.
Botninn algjörlega flatur, en á möl heyrist aðeins í steinum
skjótast í plötuna sem ver rafhlöðuna.
Hefði alveg viljað vera á negldum dekkjum í þessari færð. Ónegld Michelin-dekkin gáfu gott grip, hefði verið til í að prófa
þennan bíl á minni felgum.
Vinstramegin í mælaborðinu er hægt
að sjá fjarlægð í bílana í kringum mann.