Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 7
Íslenskir matreiðslumenn gerðu góða ferð
til Herning í Danmörku á Norðurlandamót
matreiðslumanna sem haldið var dagana 29.
og 30. mars. Náðu þeir besta heildarárangri
Íslendinga á þessu móti og röðuðu sér í efstu
sætin í öllum flokkum.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði
öðru sæti í keppninni um nafnbótina
Matreiðslumaður Norðurlandanna árið 2022,
en norski keppandinn varð sigurvegari.
Gabríel Kristinn Bjarnason sigraði í
keppninni um útnefninguna „besti ungkokkur
Norðurlandanna“. Matreiðslumeistarinn
Sveinn Steinsson og útskriftarneminn Aþena
Þöll Gunnarsdóttir kepptu saman í liðakeppni
í flokknum „Nordic Green Chef“ og lentu í
öðru sæti. Um nýjan keppnisflokk er að ræða
þar sem unnið er með grænmetisfæði.
Betri árangur
en vonast var eftir
Þátttaka Íslendinga á Norðurlandamótinu er á
vegum Klúbbs íslenskra matreiðslumeistara.
Í tilkynningu frá klúbbnum er haft eftir
Þóri Erlingssyni, forseta hans, að hann sé
himinlifandi með árangur keppendanna. „Þau
hafa staðið sig frábærlega og unnið þetta af
mikilli fag mennsku.
Nú fögnum við og
svo förum við á fullt í
næsta verkefni sem er
heimsmeistara keppnin í
Lúxemborg í nóvember
komandi.“
Sveinn og Aþena
kepptu sem lið, eins
og fyrr segir en þessi
keppnisflokkur hefur
verið í undirbúningi hjá
samtökum matreiðslu
manna á Norður lönd
unum um nokkurt skeið
og er gert ráð fyrir að
þessi keppni, eða sam
bærileg, eigi eftir að verða
að alþjóðlegri keppni. „Þetta er betri árangur
en ég hefði þorað að vona,“ var haft eftir
Sveini þegar úrslitin lágu fyrir. /smh
Besti heildarárangur Íslendinga á Norðurlandamóti matreiðslumanna:
Röðuðu sér í efstu sætin
í öllum keppnisflokkum
LÍF&STARF
V ið upphaf þessa þáttar velti ég því
alvarlega fyrir mér hvort ég ætti
opinberlega að skammast mín hér
á síðunni. Hef reyndar ekki gert mikið af
því um dagana, en máski er nú mál. Þannig
er mál vaxið, að í síðasta vísnaþætti birti
ég þessa harðneskjulegu vísu eftir Bjarna
á Grýtubakka:
Ekki er von hann Ari minn
ætíð þarflegt vinni,
af því hann er, auminginn
undan mömmu sinni.
Vísuna tók ég upp úr miklu prentuðu
vísnasafni þekkts safnara og hagyrðings,
hvaðan ærið af efni vísnaþátta minna er
tekið. Vísuna hélt ég „öfugmælavísu“ og
birti í góðri trú. Eftir síðasta vísnaþátt barst
mér eftirfarandi bréf frá gagnmerkum
fræðimanni og hagyrðingi, Birni
Ingólfssyni á Grenivík:
„Heill og sæll. Ekki veit ég hver hefur
kennt þér vísuna um Ara í síðasta vísnaþætti
Bbl. Vel má vera að hún hafi verið svona,
en ég lærði hana öðruvísi.“
Ekki er kyn þótt Ari minn
eitthvað þarflegt vinni
af því hann er auminginn
undan móður sinni.
„Mér finnst þessi útgáfa miklu sennilegri.
Í þinni útgáfu sneiðir Bjarni ekki bara að
syni sínum heldur líka harkalega að konu
sinni. Ekki lá það orð á Bjarna að hann væri
svoleiðis maður, og Snjólaug var vænsta
kona eftir því sem ég best veit. En þegar
góðar vísur ganga milli manna getur eitt orð,
von/kyn, snúið merkingunni gjörsamlega á
haus. Bestu kveðjur, Björn I.“
Hér hefur mælt sá maður sem hyggilegt
er að hlýða, og tek ég fúslega leiðréttingu
Björns, tel hana trúlega og biðst velvirðingar
á frumhlaupi mínu. Tilvitnað vísnasafn mun
ég þó áfram brúka til fóðrunar lesendum.
Í annan stað barst mér athugasemd við
vísu úr síðasta vísnaþætti frá Vilhjálmi H.
Gíslasyni. Frá afa sínum lærði Vilhjálmur
vísu Vilhjálms Benediktssonar frá
Brandaskarði með svofelldum hætti, og
eru feitletraðar þær breytingar sem ég geri
frá fyrri birtingu:
Eftir farinn æviveg
æði gróðursnauðan
höldum bæði hann og ég
horaðir í dauðann.
Líkt og greinir hér að ofan, er þessi
vísa Vilhjálms Benediktssonar frá
Brandaskarði tekin úr tilvitnuðu vísnasafni
mínu. Öruggt má telja að Vilhjálmur H.
Gíslason muni rétt vísuna eftir afa sínum,
enda er breytingin sýnu líklegri sé horft
á tilefni vísunnar. Vilhjálmi þakka ég hér
með leiðréttinguna, og biðst afsökunar á
stílbroti mínu.
En þar sem ég er enn ráðinn umsjónar
maður vísnaþátta Bændablaðsins, hygg ég
á frekari þáttagerð þar til hróp heyrast frá
hærri stöðum.
Bjarna Stefán Konráðsson frá Frosta
stöðum þarf trauðla að kynna fyrir lesendum.
Auk afburða hagmælsku hefur hann
safnað og gefið út vísna og ljóðabækur
í stóru upplagi. Í bókunum „Skagfirsk
skemmtiljóð“ eru margar snjallar vísur, og
meðal annars eftir Bjarna Stefán sjálfan.
Í plaggi um stefnumótun í landbúnaði, sem
lagt var fyrir Búnaðarþing 1996, er vikið
að ýmsum tekjumöguleikum fyrir bændur,
sem meðal annars felist í vatninu, ónýttum
hlunnindum, og ekki síst í þögninni sem ríki
í sveitum. Bjarni Stefán orti af þessu tilefni:
Bændur græða býsnin á
berjamó og vatnakrafti,
meira þó á mýrarflá
en mest á því að halda kjafti.
Um Gunnar Sæmundsson, bónda í Hrúta
tungu í Hrútafirði, orti Bjarni Stefán, en
Gunnar gerðist oft þungorður í ræðustóli:
Upp í pontu er ekki spar
á orðin stóru og þungu.
Lætur móðan mása þar
og mælir á hrútatungu.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
295MÆLT AF
MUNNI FRAM
Besti ungkokkur Norðurlanda, Gabríel Kristinn Bjarnason.
Gabríel Kristinn Bjarnason, besti ungkokkur Norðurlanda, Aþena Þöll Gunnarsdóttir og Sveinn Steinsson lentu í öðru sæti í flokknum „Nordic Green
Chef“ og Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði öðru sæti í keppninni um nafnbótina Matreiðslumaður Norðurlanda 2022. Myndir / Brynja Kr. Thorlacius
Sveinn Steinsson.
Aþena Þöll Gunnarsdóttir.