Bændablaðið - 07.04.2022, Side 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202212
FRÉTTIR
Fyrirtækið Björgun hefur um árabil
dælt upp skeljasandi úr Faxaflóa og
selt til nota í margvíslegum tilgangi,
eins og til kölkunar á ræktarlöndum
og fóðurgerðar. Námaleyfi
fyrirtækisins rann út í byrjun árs
2019 en starfsemin hefur verið
rekin áfram á bráðabirgðaleyfum
frá ári til árs. Birgðirnar eru nú
á þrotum en ekki hefur fengist
afgreiðsla Orkustofnunar á umsókn
fyrirtækisins um áframhaldandi
námavinnslu.
Í umfjöllun í síðasta Bændablaði,
um aðfangamál íslenskra bænda
í ljósi stríðsátaka í Úkraínu,
kallaði Jóhannes Baldvin Jónsson,
deildarstjóri hjá Líflandi, eftir því
að umsóknin yrði afgreidd sem
fyrst. Sagði hann að skeljasandurinn
væri eina innlenda jarðefnið sem nú
væri raunhæft að nýta til aukinnar
framleiðni á nytjalandi íslenskra
bænda.
Sandur til kölkunar
og fóðurgerðar
Sveinbjörn Guðmundsson, fram-
leiðslustjóri Björgunar, segir að
undanþáguleyfið hafi runnið út um
mitt ár 2021. Svo virðist vera sem
einhver tregða sé hjá Orkustofnun
að afgreiða umsóknina frá okkur.
Þetta er dálítið slæmt núna þegar
áburðarverð hefur hækkað svo mjög
í verði og fleiri bændur horfa til þess
að kalka túnin til að spara áburðinn
– að þetta eina innlenda hráefni sem
hefur verið á markaði til þessa, sé
ekki lengur í boði. Þá hefur hluti
af okkar skeljasandi einnig farið til
fóðurgerðar fyrir alifuglabændur og
eggjaframleiðendur. Sandurinn frá
okkur hefur verið til sölu í verslunum
sem sérhæfa sig í aðföngum fyrir
bændur, en þeir hafa einnig getað
sótt hann beint til okkar.
Steinullarverksmiðjan á Sauðár-
króki hefur verið að taka talsvert
magn hjá okkur og þeir keyptu af
okkur síðasta stóra farminn. Þannig
að hann dugar eitthvað fram eftir ári,
en svo lenda þeir í vandræðum,“ segir
Sveinbjörn.
Hann bætir við að sandurinn
sem notaður sé til kölkunar,
fóðurgerðar og sem hráefni fyrir
Steinullarverksmiðjuna komi úr
Fláskarðskrikanámunni í Faxa-
flóanum, sem sé önnur tveggja
skeljasandsnáma sem Björgun
hefur sótt í. „Hann er sigtaður
með mismunandi fínum netum í
vinnslunni. Fínni gerðin er um fimm
prósent af heildarsölunni og fer nánast
eingöngu til golfvalla. Sá grófari er
talsvert ódýrari, sem skýrist aðallega
af mun meiri vinnsluafköstum.“
Skilja ekki tafirnar á málinu
„Umsóknin er búin að vera í vinnslu
hjá Orkustofnun frá 16. janúar 2019.
Við höfum ekki fengið höfnun –
umsóknin fær bara ekki afgreiðslu.
Við skiljum ekki hvað tefur og
fáum engin skýr svör þótt við séum
í reglulegum samskiptum við
stofnunina,“ segir Eysteinn Dofrason,
framkvæmdastjóri Björgunar.
Kristján Geirsson, verkefnisstjóri
vatnsauðlinda hjá Orkustofnun,
staðfestir að málið sé á sínu borði
og sé til umfjöllunar. „Það eru
allnokkrar umsóknir hérna hjá okkur
frá Björgun á mismunandi stigum.
Það komu upphaflega inn nokkrar
umsóknir í janúar 2019 sem voru
ekki fullnægjandi. Endurskoðaðar
umsóknir bárust í júní það ár og síðan
hafa fleiri umsóknir um rannsóknir
og efnistöku í Hvalfirði, Kollafirði
og í syðri hluta Faxaflóa borist
frá félaginu.
Björgun hefur því haft fjölmargar
umsóknir inni á borði hjá okkur,
en einungis tvær þeirra snúa að
námuvinnslu á skeljasandi í Faxaflóa
þar sem tvö svæði eru, kennd við
Sandhala og Fláskarðskrika, með
mismunandi hreinan skeljasand.“
Unnið samkvæmt
forgangsröðun Björgunar
Að sögn Kristjáns hefur verið unnið að
úrlausnum þessara mála í samráði við
félagið og samkvæmt forgangsröðun
frá þeim. „Þegar eftir því hefur verið
leitað hafa verið veittar tímabundnar
framlengingar á gildandi leyfum með
það að markmiði að fyrirtækið hefði
aðgang að efni meðan á úrvinnslu
umsókna stæði.
Síðasta sumar taldi Björgun ekki
þörf á að sækja aftur um tímabundnar
framlengingar á námaleyfum fyrir
skeljasandsvæðin í Faxaflóa og leyfin
féllu því niður.“
Hann segir að skeljasands-
námurnar hafi ekki verið framarlega
í forgangsröðun fyrirtækisins.
„Upphafleg umsókn um námuvinnslu
þar var hluti af þeim sem bárust í
ársbyrjun 2019, en þar sem þær
voru ekki í forgangi var umsóknin
fyrst skoðuð af alvöru í haust. Í
október síðastliðnum var sent bréf
til Björgunar þar sem óskað var
eftir frekari upplýsingum og því
var svarað nú í lok febrúar.
Í haust var hins vegar óskað
eftir skammtímaleyfi við Sandhala,
þar sem grófari sandurinn er, og
Orkustofnun hefur verið að vinna
í þeirri umsókn.“
Forgangsumsóknin í
lokafrágangi
„Okkur skilst hins vegar að
efnið sem hefur verið notað til
landbúnaðar sé tekið úr námunni í
Fláskarðskrika. En þar sem Björgun
setti Sandhalaumsóknina í forgang
höfum við verið að vinna í henni
og hin bíður þá frekari úrvinnslu.
Vinnan við Sandhalaumsóknina er
í lokafrágangi en beðið er afstöðu
fyrirtækisins til ákveðins atriðis –
og hefur sú bið nú staðið í 10 daga.
Þegar það mál leysist verður það
spurning um einhverjar vikur í
rýni, ákvörðun og frágang. Til að
hægt sé að afgreiða umsóknir þá
þarf Björgun að skila fullnægjandi
gögnum til okkar,“ segir Kristján.
Hann bætir við að yfirferð
umsóknargagna Fláskarðskrika-
umsóknarinnar sé ekki lokið og
því ekki hægt að fullyrða um hvort
gögnin séu fullnægjandi. Því sé
ekki ljóst hvenær hægt verði að
afgreiða það svæði. Eftir að öll
gögn liggi fyrir beri Orkustofnun
að leita umsagna og yfirleitt sé
veittur þriggja vikna frestur. Síðan
er umsækjanda gefinn kostur á að
svara athugasemdum áður en kemur
að efnislegri úrvinnslu.
Umsóknir á borði Orku-
stofnunnar í þrjú ár
Eysteinn segir að Björgun hafi
sótt um leyfi í Fláskarðskrika
og Sandhala í janúar 2019 og
uppfærðar umsóknir hafi verið
sendar í júní sama ár. „Fyrstu
efnislegu viðbrögð Orkustofnunar
vegna þessara umsókna bárust í
október 2021, þegar stofnunin var
búin að vera með umsóknirnar á
sínu borði í tæp þrjú ár. Þá var óskað
eftir frekari skýringum og gögnum
frá Björgun.
Björgun hefur unnið efni úr
námum í sunnanverðum Faxaflóa
frá því í kringum 1960. Fyrir liggur
mat á umhverfisáhrifum vegna
námusvæðanna, sem er enn í fullu
gildi, og því er mikil vitneskja til
staðar um námurnar og svæðin í
kring,“ segir hann.
Réttlæting á töfum
Eysteinn segir að orð Kristjáns um
umsóknarferli Sandhalanámunnar séu
í raun hálfsannleikur. „Orkustofnun
óskaði vissulega eftir frekari gögnum
varðandi Faxaflóaleyfin í október
síðastliðnum. Það er rétt að Björgun
skilaði inn uppfærðum umsóknum að
beiðni stofnunarinnar í febrúar.
Í millitíðinni áttu Björgun og
Orkustofnun þó í miklum samskiptum.
Þar sem eldri leyfi höfðu runnið út
áður en stofnuninni tókst að afgreiða
ný leyfi var ákveðið að sækja um lítið
leyfi til að afla efnis úr Sandhalanámu
vegna landfyllingar við Álfsnesvík
þar sem fyrirtækið byggir nú upp nýtt
afhafnasvæði.
Allur kraftur var settur í þetta í
nóvember 2021. Það var Orkustofnun
sem hafði frumkvæðið að þessu
fyrirkomulagi og stofnunin lofaði
flýtimeðferð. Björgun skilaði öllum
gögnum varðandi litla leyfið í
nóvember og umsagnaraðilar skiluðu
inn sínum sjónarmiðum í sama
mánuði. Samt sem áður hefur leyfið
í Sandhala ekki fengist afgreitt. Þetta
varð til þess að Björgun þurfti að nýta
verðmætara efni í landfyllinguna, sem
er ekki æskilegt.
Að auki má ekki gleyma því að fyrir
liggja umtalsverð gögn og upplýsingar
um þessar námur, þar með talið heil
umhverfismatsskýrsla. Þannig virðist
oft sem Orkustofnun leiki þann leik
að óska eftir nýjum og uppfærðum
gögnum í þeim tilgangi að réttlæta
eigin tafir.“ /smh
Sala Björgunar á skeljasandi 2019 2020 2021
1.144,70 1.638,30 2099,2
Til fóðurgerðar (einhver hluti til ræktunar ) 1.795,50 1.786 1.595,30
Á Reyðarfjörð til ræktunar 2.030
Samtals til ræktunar og fóðurs 4.970,20 3.424,30 3.694,50
Verktakar, golfklúbbar ofl 1.893,70 3.106,70 1.725,20
Steinullarframleiðsla 4.705 1.300 2.860
Heildarmagn í tonnum 11.568,90 7.831 9.874,90
Fóður- og áburðarsalar - til ræktunar
Námasvæðin í Faxaflóanum. Mynd / Orkustofnun
Kristján Geirsson, verkefnisstjóri
vatnsauðlinda hjá Orkustofnun.
Sveinbjörn Guðmundsson,
framleiðslustjóri Björgunar.
Sóley, sanddæluskip Björgunar. Mynd / Björgun
Björgun telur að óviðunandi tafir séu á umsókn um skeljasandsvinnslu hjá Orkustofnun:
Mikilvægt innlent hráefni til kölkunar, fóður-
gerðar og steinullarframleiðslu er uppurið