Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202220
Fullyrðingar, sem haldið hefur
verið á lofti á Íslandi árum saman
um losun koltvísýrings og annarra
meintra gróðurhúsalofttegunda úr
framræstu landi, eru óra vegu frá
því að geta staðist, ef marka má
niðurstöðu nýrra rann sókna sem
birtar hafa verið af Landbúnaðar
háskóla Íslands.
Komnar eru fram tvær íslenskar
rannsóknir sem benda til þess að
fullyrðingar um losun koltvísýrings
frá framræstu landi séu kolrangar.
Árum saman hefur verið kallað eftir
því að lögð séu fram vísindaleg
gögn byggð á vísindalegum rann
sóknum á Íslandi um losun gróður
húsalofttegunda úr framræstu
landi. Slík gögn hafa ekki fengist
frá íslenskum yfirvöldum sem hafa
losunarmál CO2 á sinni könnu. Nú
hafa hins vegar verið birt gögn í riti
Landbúnaðarháskóla Íslands undir
fyrirsögninni „Langtímatap kolefnis
í framræstu ræktarlandi“. Þau gögn
koma til viðbótar rannsóknargögnum
sem fram komu í MS verkefni
Gunnhildar Evu Gunnarsdóttur
frá 2017.
Alvarlegur hnekkir fyrir
hástemmdar fullyrðingar
Höfundar skýrslunnar eru Þór oddur
Sveinsson, sem var verkefnis stjóri,
Teitur Sævarsson landbúnaðar
fræðingur, María Svavarsdóttir
landfræðingur, Bergrún Arna
Óladóttir eldfjallafræðingur,
Þorbjörg Helga Sigurðardóttir
landbúnaðarfræðingur, Eiríkur
Loftsson ráðunautur og Þórarinn
Leifsson bóndi. Verkefnið var styrkt
af Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Höfundar vilja fara varlega í
yfirlýsingum og telja þörf á mun
ítarlegri rannsóknum. Samt má
segja að þessi gögn hljóti að vera
alvarlegur hnekkir fyrir hástemmdar
fullyrðingar íslenskra yfirvalda
og ýmissa hagsmunaaðila um
langtímalosun koltvísýrings úr
framræstu landi. Á þeim grunni
hefur samt verið mótuð stefna og
unnið að uppbyggingu á gríðarmiklu
fjármálakerfi um kolefnisbindingu.
Í skýrslunni segir að losunin sem
hér mælist verði að teljast lítil miðað
við eldri mælingar sem gerðar hafa
verið í framræstum, óræktuðum
lífrænum mýrum.
Losun af framræstu ræktarlandi
á Íslandi „getur verið ofmetin“
„Losunartölurnar sem hér birtast eru
lágar og benda til þess að losun af
framræstu ræktarlandi á Íslandi geti
verið ofmetin sé miðað við staðla
IPCC. Nauðsynlegt er að halda áfram
rannsóknum á kolefnislosun íslensks
ræktarlands,“ segja skýrsluhöfundar.
Engar losunarrannsóknir
hafa verið gerðar á framræstu
akurlendi
Í rannsóknunum sem gerðar voru
bæði á framræstu og óröskuðu
landi má greina að áhrif á gosösku
í jarðvegi getur haft umtalsverð áhrif
á og þar með á kolefnis bindingu,
rotnun og gas losun. Lofthiti er einnig
veiga mikill þáttur. Þar kemur líka
fram að „engar losunarrannsóknir
hafa verið gerðar á framræstu
akurlendi (þ.m.t. framræstum túnum)
hér á landi.“ Samt hafa stjórnvöld og
aðrir sett ítrekað fram hástemmdar
fullyrðingar um losun á framræstu
landi á Íslandi og byggja þær tölur
alfarið á erlendum stuðlum IPCC.
Koltvísýringur (CO2) er 27,3%
kolefni og 72,7% súrefni
Atómþyngd kolefnis er 12 atóm
massaeiningar, en þyngd koltví
sýrings er 44 einingar, vegna þess
að það inniheldur tvö súrefnisatóm
sem hvert vega 16 einingar. Eitt tonn
af kolefni er jafngildi 44/12 = 11/3
= 3,67 tonn af koltvísýringi. Með
öðrum orðum að í 11 tonnum af CO2
eru um 3,7 tonn af kolefni.
Samkvæmt tölum Umhverfis
stofnunar var heildarlosun gróður
húsalofttegunda á Íslandi 2019,
þegar landnotkun og skógrækt
eru meðtalin, samtals 13.794 kt
CO2ígilda. (um 13,8 milljónir
tonna af CO2 án alþjóðaflugs og
alþjóðasiglinga). Sama stofnun
segir að losun Íslands samkvæmt
loftslagssamningum hafi á sama tíma
numið 4.722 kt CO2íg. árið 2019.
Það þýðir að losun frá landi hefur
numið að mati Um hverfisstofnunar
um 9,07 millj ón um tonna.
Misvísandi upplýsingar sem allar
vísa samt í sama staðal IPCC
Íslensku vísindamennirnir kalla eftir
frekari rannsóknum til að skjóta
fleiri stoðum undir sína útreikninga.
Ef þeirra rannsóknir til þessa eru
hins vegar skoðaðar með hliðsjón
af öllum þeim fullyrðingum sem
settar hafa verið fram án þess að
sýna fram á haldbærar rannsóknir,
þá er mismunurinn vægast sagt
hrikalegur.
Íslensk yfirvöld og fleiri miða
við staðal IPCC, Loftslagssamnings
Sameinuðu þjóðanna (Inter
governmental Panel on Climate
Change), í sínum útreikningum.
Hann gerir ráð fyrir að framræst
land með mólendi losi 5,7 tonn af
kolefni á hektara og að framræst
akurlendi losi 7,9 tonn á hektara á
ári. Umreiknað í koltvísýring CO2
gerir þetta um 20,91 tonn á hektara
fyrir mólendi og 28,99 tonn fyrir
tún og akurlendi. Votlendissjóður
sem notið hefur stuðnings yfirvalda
segir á sinni heimasíðu að losun
koltvísýringsígilda úr framræstu
landi næmi 20 tonnum á hektara.
Í skýrslu Vegagerðarinnar
frá því í maí 2020, sem unnin er
af VSÓ ráðgjöf, er bent á óvissu
og deilur um útreikning á losun
koltvísýringsígilda í framræstu
landi. Þar er samt sett fram tafla sem
segir að losun úr túnum á framræstu
votlendi sé á bilinu 26,8 til 31,9 tonn
CO2 ígilda á hektara á ári. Einnig að
losun úr framræstu óræktuðu landi
sé 21,3 til 32,49 tonn CO2 ígilda
á hektara á ári og er samt vísað í
staðla IPCC. Meðaltal allra þessara
fullyrðinga er losun CO2 upp á 26,7
tonn á hektara.
Meðaltalsmunur á fullyrðingum
og rannsóknum er 88,65%
Samkvæmt nýju rannsóknunum í
riti LbhÍ, „Langtímatap kolefnis
í framræstu ræktarlandi“, sem
gerðar voru á Norðurlandi á árunum
2020 til 2021, þá nemur losunin
samkvæmt sama viðmiðunarstaðli
IPCC er frá 0,95 tonnum á hektara
og upp í 5,10 tonn á hektara, eða að
meðaltali 3,03 tonn á hektara. Þetta
er sagt með öllum fyrirvörum sem
íslensku vísindamennirnir gáfu sér.
Munurinn á fullyrðingunum og
þessum rannsóknum er hrikalegur.
Losunin gæti mögulega verið frá 0,9
til 5 tonn af CO2 á hektara en ekki
21 til 32 tonn. Munurinn nemur að
meðaltali 23,67 tonnum á hektara
sem gerir mögulega skekkju upp
á 88,65%.
Mögulega um ein milljón tonn
en ekki 8,4 eða níu milljón tonn
Ef við setjum þetta í samhengi við
tölur Umhverfisstofnunar, þá er
losunin frá landnotkun ekki 9,07
milljónir tonna CO2 ígilda á ári,
heldur rétt rúmlega ein milljón tonn.
Ef tölur umhverfisráðuneytis frá
2019 eru notaðar, þá var heildarlosun
Íslands vegna framræsts lands um
8,4 milljónir tonna af CO2. Miðað
við nýju rannsóknirnar næmi losunin
því ekki nema um 953.000 tonnum.
Þessar tölur hljóta að æpa á að
frekari rannsóknir verði gerðar
strax næsta sumar. Þetta gæti líka
mögulega þýtt að allar fullyrðingar
um losun CO2 frá landbúnaði á
Íslandi séu hrikalega ýktar.
Ný aðferðafræði en hvatt
til varfærni þar sem frekari
rannsókna sé þörf
Höfundar skýrslu LbhÍ beittu nýrri
aðferð til að meta losun kolefnis
yfir langan tíma byggða á dýpt
gjóskulaga líkt og Gunnhildur Eva
Gunnarsdóttir gerði 2017 og notaði
í sínu MS verkefni. Þar kom m.a.
í ljós hve breytileg losunin getur
verið eftir aðstæðum hverju sinni.
Gunnhildur áætlaði meðallosun
kolefnis hjá sér vera 1,7 tonn C/ha á
ári í framræstum óræktuðum mýrum.
Þetta myndi þýða meðaltalslosun á
CO2 upp á tæp 6,24 tonn á hektara
samkvæmt staðli IPCC, en ekki 20
32,5 tonn á hektara eins og haldið
hefur verið fram í opinberri umræðu.
Nýju rannsóknirnar gefa svo
til kynna að losunin úr framræstu
landi á Íslandi getur jafnvel verið
enn minni. Höfundar skýrslunnar
taka þó fram að varast beri að draga
víðtækar ályktanir út frá niðurstöðum
þessa einstaka verkefnis. Frekari
rannsókna sé þörf.
Losun nær 0,3 til tæplega 1,4
tonn á hektara á ári
Í nýju rannsóknum LbhÍ segir að
árlegt kolefnistap (losun) fyrir
ofan öskulagið H1104 frá árinu
1104 (18 sm) vegna framræslu og
ræktunar reiknast 1,39 tonn kolefnis
á hektara (t C/ha) í Kýrholti árlega á
síðastliðnum 70 árum og 0,26 t C/ha í
Hegranesi á hverju ári sl. 55 ár. Þetta
er í nokkru samræmi við það sem
Gunnhildur hafði komist að í sínum
rannsóknum en margfalt minna en
gert er ráð fyrir í opinberum gögnum
um loftslagsmál.
Árlegt niturtap vegna framræslu
reiknast 70 kg N/ha í Kýrholti en 10
kg N/ha í Hegranesi.
Þá eykst magn (þéttni) kolefnis
og niturs með framræslu í efstu 30
sm jarðvegs.
Jarðvegssig í framræsta
landinu reiknaðist 16 sm í
Kýrholti en 6 sm í Hegranesi.
Hlutur kolefnistaps í þessu
sigi var 26% í Kýrholti en
9% í Hegranesi.
Ef miðað er eingöngu
við yfirborð (0 stöðu) sýndu
mælingar í Kýrholti 3,5 tonna
losun á hektara og niturlosun
0,2 t/ha. Slík mæling gefur
þó ekki heildarmynd af
jarðvegslosuninni til lengri
tíma. Vísindamennirnir sem
að rannsókninni stóðu telja að
gjóskulagaaðferðin sé góð leið
til að meta heildarlosun kolefnis í
framræstu votlendi þar sem hægt
er að beita henni. Eins ef gerðar
verða endurbætur á verklagi
byggðar á reynslu þessa verkefnis.
Til að kortleggja sem næst raun
verulega langtíma kolefnislosun í
framræstu ræktarlandi á Íslandi þarf
að gera átak í að mæla hana skipulega
sem víðast og gjóskulagaaðferðin er
gott tæki til þess þar sem nothæf
gjóskulög finnast, að því er fram
kemur í skýrslunni.
Meginmarkmið að auka
þekkingu á langtímaáhrifum
af framræslu ræktarlands
Verkefnið hafði það meginmarkmið
að auka þekkingu á langtímaáhrifum
af framræslu ræktarlands á kolefnis
búskap jarðvegs og aðra þætti því
tengdu. Þannig væri hægt að áætla
betur kolefnislosun í framræstum
íslenskum mýrum en þær hafa
mikla sérstöðu. Undirmarkmið rann
sóknarinnar voru að:
• Greina breytileika í langtíma
kolefnislosun framræsts lands
eftir jarðvegsgerðum með
svokallaðri gjóskulagaaðferð.
• Þróa viðurkennda íslenska
losunarstaðla fyrir framræst
ræktarland á Íslandi.
• Greina mögulegan breytileika
í kolefnisbúskap eftir öðrum
umhverfisþáttum, svo sem
jarðvegsgerð, kolefnis og
niturinnihaldi og sýrustigi
jarðvegs, jarðvegsdýpt, grunn
vatnsstöðu, yfirborðsgróðri og
ræktunaraðferðum.
Aðferðin sem beitt var hefur ekki
verið prófuð áður í ræktarlandi á
Íslandi. Hún byggir á að mæla
uppsafnað magn innihaldsefna
í jarðvegi fyrir ofan þekkt
gjóskuleiðarlag í annars vegar
framræstri og hins vegar óraskaðri
mýri sömu gerðar.
Með hjálp sýnatökubors voru
valdir 3 álitlegir sýnatökustaðir
(endurtekningar) fyrir hvert
svæði, eða samtals 12 staðir.
Sýnatökusvæðin voru Hegranes
1, byggakur í Keldudal, Hegranes
2, runnamýravist, Kýrholt 1, tún á
70 ára gömlu framræstu landi og
Kýrholt 2, starungamýravist.
Á hverjum stað voru síðan
grafnar holur 0,51,0 m djúpar og
sem náðu vel niður fyrir meint
H1104 gjóskulag (gjóskulag frá
árinu 1104).
Það sem var mælt; dýpt niður
á gjóskuleiðarlag, rúmþyngd,
glæðitap, rakastig, sýrustig, heildar
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Ný rannsókn á kolefnislosun ræktarlands á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands gæti kollvarpað fyrri hugmyndum:
Langtímalosun kolefnis úr framræstu ræktarlandi
er líklega margfalt minni en fullyrt hefur verið
– Meðaltalsmunur á milli íslensku rannsóknarinnar og fullyrðinga stjórnvalda, stofnana og hagsmunaaðila um losun CO2 er 88,65%
Gjóskulög voru hvað skýrust í Keldudal. Myndir / Þóroddur Sveinsson
Vísindamenn að störfum í Beinagarði.