Bændablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 21
kolefni, heildar nitur og lífvirk
steinefni (fosfór, kalí, kalsíum,
magnesíum, natríum, mangan, sink
og kopar). Með þessum upplýsingum
er hægt að sjá hvaða magnbreytingar
hafa orðið í jarðveginum og
innihaldi hans frá því hann var
framræstur og fram að sýnatökudegi
í samanburði við óraskað votlendi
sömu gerðar. Þá var einnig metið
niðurbrotsstig lífræns efnis með sk.
von-Post aðferð. Rannsóknasvæðin
voru alls fjögur í Skagafirði; tvö í
Hegranesi (framræst/órasakað) og
tvö í Kýrholti (framræst/óraskað).
Gjóskuleiðarlagið sem var valið kom
úr Heklugosi árið 1104 en það fannst
í 18-36 sm dýpt í framræsta landinu
og 22-44 sm í óraskaða landinu.
Sýnatökur fóru fram í júlí 2020.
Túnrækt bindur umtalsvert
af kolefni
Þá koma líka fram í skýrslunni
mjög athyglisverðar upplýsingar
um kolefnisbindigetu ræktaðs lands.
Mikill munur var sýnilegur
á flestum jarðvegsþáttum milli
framræsts og óraskaðs jarðvegs og
voru áhrif ræktunar greinileg. Einnig
var talsverður munur á milli staða
(Hegranes/Kýrholt).
Þar segir að kolefnisbinding í
jarðvegi sé mjög mikil í landi sem
framræst hefur verið og tekið til
ræktunar. Alls hafði hlaðist upp 902
þurrefnistonn af jarðvegi á hektara
í Kýrholti ofan á gjóskuleiðarlagið
H1104, eða 0,98 tonn árlega. Í
Hegranesi hafði safnast upp 696
tonn alls, eða 0,76 tonn árlega.
Í framræsta landinu í Kýrholti
hafði jarðvegur minnkað um 2,8
þurr efnistonn á hektara á ári en í
Hegranesi hafði jarðvegur aukist um
4,1 tonn á ári frá framræslu miðað
við óraskaða landið.
Samkvæmt opinberum tölum er
meðalbinding koltvíoxíðs (CO2) í
íslensk um skógum talin vera um
4,4 tonn á hektara á ári. Túnin
geta því verið að ná umtalsverðri
kolefnisbindingu í saman burði við
skógrækt þó þurrefnið sem safnast
hefur upp samkvæmt mælingum sé
vissulega ekki allt kolefni eins og
fram kemur í rann sókninni.
Öskuinnihald jarðvegs (kg/kg)
í framræsta landinu hafði þannig
aukist um 29% og kolefnisstyrkur
lækkað um 28%. Þá lækkaði
niturstyrkur um 18% frá framræslu
að jafnaði.
Mikil kolefnisbinding gróður-
lendis á Íslandi ætti reyndar að
vera nokkuð augljós ef menn horfa
á mómyndun gróðurlendis hér á
landi. Ætla mætti að þetta kalli á
endurskoðun á allri tölfræði um
stöðu landbúnaðar í loftslags-
umræðunni.
Stórar fullyrðingar, rangfærslur
og misvísandi upplýsingar
Árum saman hafa verið hafðar
uppi fullyrðingar um losun gróður-
húsalofttegunda úr framræstu
landi. Lengst af var fullyrt að
losunin næmi 70% af heildarlosun
Íslands. Þær fullyrðingar, sem
hafa m.a. verið hafðar uppi af
ráðuneytum og stofnunum ríkisins
bæði á innlendum og erlendum
vettvangi, hafa verið gagnrýndar
af vísindamönnum vegna skorts
á innlendum rannsóknargögnum.
Samt hafa fullyrðingarnar verið
látnar duga sem rökstuðningur fyrir
milljóna króna fjárveitingum ríkisins
í verkefni, m.a. við að moka ofan í
skurði undir því göfuga yfirskini að
það sé verið að endurheimta votlendi
í þágu loftslagsmála. Einnig hafa
þær verið stór þáttur í rökstuðningi
fyrir því að Íslendingar losi þjóða
mest af CO2 út í andrúmsloftið
miðað við höfðatölu.
Bændablaðið sendi þáverandi
umhverfis ráðherra fyrirspurn um
þessi mál í 17 liðum árið 2019. Í
svari ráðuneytisins var enn fullyrt
um losun úr framræstu landi þó
ráðuneytið gæti ekki vísað á neinar
tilteknar rannsóknir sem styddu þær
fullyrðingar. Ein spurningin
var:
Hversu mikil er að
mati ráðu neytisins losun
gróður húsa loftteg unda
úr íslenskum mýrum sem
grafnar hafa verið út?
Bæði magn og hlutfall af
heildarlosun Íslendinga á
ígildi koltvísýrings?
Svar ráðuneytisins við
þess ari spurningu hljóðaði
svo:
„Samkvæmt loftslags bók
haldi Íslands var heildar losun
vegna framræsts lands um
8.429 kt CO2 koldíoxíðígilda
árið 2017. Það jafngildir um
60% af heildarlosun Íslands
það ár.“
Þarna talar ráðuneytið um
kíló tonn (kt), eða 8,4 milljónir
tonna. Var ráðuneytið á þessum
tímapunkti greinilega horfið frá fyrri
fullyrð ingum um að losunin næmi
72% sem mjög hafði verið gagnrýnt.
Kom reyndar fram á Alþingi árið
2015 að losun frá framræstu landi
næmi 9,47 milljónum tonna og
Umhverfisstofnun segir að losunin
hafi numið 9,07 milljónum tonna á
árinu 2019. Þarna er allt að milljón
tonna mismunur í fullyrðingum
opinberra aðila á losun CO2.
Í skýrslu Jóns Guðmundssonar
í Landbúnaðarháksóla Íslands frá
2016 segir hins vegar að losun
úr túnum á framræstum jarðvegi
sé metin á ígildi tæplega 1.800 kt
CO2, eða 1,8 milljónir tonna. Þetta
er íslenskur vísindamaður sem setti
þetta fram út frá þeim vísindalegu
forsendum sem hann hafði í
höndum á þeim tíma. Menn hljóta
því að spyrja hvort ekki verði að
gera kröfu til að íslensk stjórnvöld
leggi fram staðreynd gögn byggð
á íslenskum mælingum, eða stuðli
frekar að slíkum rannsóknum ef þau
ætla að halda sig við fullyrðingu
um 8,4 milljóna tonna losun CO2
úr framræstu landi.
Tölulegar fullyrðingar
út og suður
Frá 2019 hafa yfirvöld svo haldið
sig við að losun frá framræstu landi
næmi 60% af heildarlosun Íslands
sem væru þá um 13 milljónir tonna.
Á vísindavef Háskóla Íslands er
því hins vegar haldið fram að losun
frá framræstu landi nemi 72% af
heildarlosun upp á 12,9 milljón
tonn á ári. Umhverfisstofnun segir
13.794.000 tonn. Á þessum boðskap
hefur svo verið hamrað í opinberri
umræðu á Íslandi með mismunandi
tölum þrátt fyrir að heildarlosun
Íslands sé samkvæmt tölum
Umhverfisstofnunar 4.722.000 tonn
af CO2 ígildum. Losun frá landi og
alþjóðasamgöngum eru nefnilega
ekki inni í samningum Íslands um
loftslagsbókhaldið.
Á þessum tölum hafa menn svo
búið til alls konar fullyrðingar um
sóðaskap Íslendinga í loftslags-
málum. Jafnvel þó hér geti menn
kynt flest hús með jarðhita og
framleitt meira en nokkurt annað
Evrópuríki fyrir utan Noreg, af
hreinu og endurnýjanlegu rafmagni
en notað er árlega. Á meðan þurfa
ESB-ríkin að framleiða 63% af
sinni raforku með jarðefnaeldsneyti
og kjarnorku og kynda hús sín að
stærstum hluta með gasi, kolum
og timbri. Í umræðunni eru ESB
ríkin samt sögð menga minna en
Íslendingar. Þá undarlegu niðurstöðu
fá menn m.a. út með því að flagga
ósönnuðum fullyrðingum um losun
úr framræstu landi.
Falleg ríkisskýrsla með áherslu
á endurheimt votlendis
Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnar
Íslands sem kynnt var í afskaplega
fallegri skýrslu í júlí 2019 undir
heitinu „Bætt landnýting í þágu
loftslags,“ er ekki minnst einu einasta
orði á að túnrækt geti falið í sér
bindingu kolefnis. Þar er hins vegar
talsvert talað um átak í endurheimt
votlendis og hertar
takmarkanir á framræslu. Þar segir
líka að heildarlosun frá Íslandi
árið 2017 hafi verið samtals 4.755
þúsund tonn CO2 -ígilda (4,7
milljónir tonna) Það eru beinar
skuldbindingar Íslands + losun sem
fellur undir viðskiptakerfi ESB með
losunarheimildir. Þar af var losun
sem er á beinni ábyrgð íslenskra
stjórnvalda um 2,9 milljónir tonna
CO2 -ígilda.
Í aðgerðaráætluninni segir að
árlegur loftslagsávinningur vegna
aðgerðanna fari úr 5.000 tonnum að
CO2 ígildum á árinu 2019 í 70.000 á
árinu 2022. Þar nemi ávinningurinn
vegna endurheimtar votlendis um
10.000 tonnum og í heild 22 þúsund
tonnum frá 2019 til 2022.
Mismunur í tölum um
skurðalengd upp á nærri fjórar
hringferðir um landið
Í fyrirspurn Bændablaðsins frá 2019
var spurt um hversu mikið hafi verið
grafið í afskurðum til framræslu á
vatni úr túnum og votlendi á Íslandi
í kílómetrum. Í svari ráðuneytisins
sagði:
„Heildarlengd skurða á Íslandi
er áætluð 34.000 kílómetrar hið
minnsta en Landbúnaðar háskóli
Íslands vinnur að nýju mati sem
stendur.“
Hvergi er getið í svari ráðu-
neytisins hvar talan 34 þúsund
kílómetrar af skurðum „hið minnsta“
er fengin. Áður hefur verið talað
um 32.000 km. Í aðgerðar áætlun
ríkisstjórnarinnar sem gefin var út
nokkrum mánuðum eftir að þetta
svar var sent Bændablaðinu, kemur
svo enn ein talan, en þar segir:
„Á árabilinu 1951–1985 er
áætlað að grafnir hafi verið um
29.000 km af framræsluskurðum
hér á landi til að auka við og bæta
skilyrði til túnræktar.“ Á þessum
tölum og tölum ráðuneytisins munar
5.000 kílómetrum.
Hringvegurinn um Ísland fyrir
utan Vestfirði er um 1.337 km
samkvæmt tölum Vegagerðarinnar.
Skekkja íslenskra yfirvalda í
fullyrðingum sínum um skurðagröft
vegna framræslu nemur rúmlega
3,7 hringferðum um Ísland
eftir þjóðveginum. – Þetta hafa
yfirvöld umhverfismála til þessa
talið boðlegt í umræðunni um
loftslagsmál.
Allir telja sig vera með þetta á
hreinu, líka Landgræðslan
og Votlendissjóður
Í leiðbeiningarriti Landgræðsl-
unnar um endurheimt votlendis
kemur fram enn ein talan um lengd
framræsluskurða, en þar segir:
„Heildarlengd skurða á land
inu vegna framræsingar lands er
gríðarleg, eða um 33.000 km, og
þekja þeir um 2.550 km² að flatar
máli.
Til samanburðar má nefna
að lengd hring vegarins er 1.332
km og þyrfti því að keyra
hring veginn 25 sinnum til
að ná lengd skurðanna.“
Í þessu riti segir
líka að framræst land
standi fyrir 70% losun
gróðurhúsalofttegunda af
mannavöldum hér á landi.
Votlendissjóður er
sjálfs eignarsjóður sem var
stofnaður 2018 og er sagður
fjármagnaður af „samfélags-
lega ábyrgum fyrir tækjum
og einstaklingum“, eins
og segir á vefsíðu sjóðsins.
Reiknaði sjóðurinn með að
losun koltvísýringsígilda
úr framræstu landi næmi
20 tonnum á hektara á ári
út frá alþjóðlegum stöðlum.
Á heimasíðu sinni fullyrðir
sjóðurinn svo að rannsóknir
sýni að framræst votlendi beri
ábyrgð á um 60% losunar CO2
á Íslandi.
Skipta tugir þúsunda hektara
engu máli?
Það er alvarlegur hlutur að
yfirvöld á Íslandi skuli leyfa sér
að senda frá sér tölur er varða
loftslagsmál án þess að byggja þær
á haldbærum gögnum og fullyrða
út frá þeim um kolefnislosun
landsins.
Út frá tölum gamla umhverfis-
ráðuneytisins um að grafnir
hafi verið um 34.000 km af
skurðum var fullyrt að þeir hafi
þurrkað upp 4.200 ferkílómetra
lands, eða sem svaraði 420.000
hekturum. Þetta gagnrýndu bæði
dr. Þorsteinn Guðmundsson, þá
prófessor í jarðvegsfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands, og
dr. Guðni Þorvaldsson, prófessor í
jarðrækt við LbhÍ. Bentu þeir á það
í Bændablaðinu að mikil óvissa
væri varðandi fullyrðingar um
stærð mýra og losun. Töldu þeir
nær að tala um 1.600 ferkílómetra
af framræstu landi á áhrifasvæði
skurða. Jón Guðmundsson,
lektor við LbhÍ, tók að nokkru
undir þetta þegar hann áætlaði
út frá hnitamælingum á skurðum
að framræst land væri 70.000
hekturum minna en áður hafði verið
talið. Samkvæmt því ætti framræsta
landið að vera 350.000 hektarar en
ekki 420.000 hektarar.
Það er betra að vera
skjó r en skjóur
Skoðun dagsins:
Sími 570 9090 • www.frumherji.is
Nældu þér í óumdeildari skoðun, komdu
með hestakerruna á næs skoðunarstöð
og hafðu hana klára rir vorið og sumarið.