Bændablaðið - 07.04.2022, Page 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202226
MENNTUN&STARF
Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari:
Mikilvægt að mennta fólk fyrir
stækkandi atvinnugrein
– Starfsmenntanám í garðyrkju færist frá LbhÍ til Fjölbrautaskóla Suðurlands
Garðyrkjunám sem starfrækt er
á Reykjum í Ölfusi mun tilheyra
Fjölbrautaskóla Suðurlands frá
og með 1. ágúst næstkomandi.
Starfsmenntanám sem starfrækt
hefur verið á Reykjum í Ölfusi
inniheldur sex garðyrkjutengd fög.
Námsleiðirnar eru byggðar upp sem
tveggja ára bóklegt og verklegt nám
og í framhaldi 60 vikna starfsnám.
Þrátt fyrir að vera skilgreint
sem framhaldsskólamenntun hefur
starfsmenntanámið á Reykjum
verið í umsjá Landbúnaðarháskóla
Íslands. Í desember 2020
tók þáverandi mennta- og
menningarmálaráðherra, Lilja
Alfreðsdóttir, hins vegar
ákvörðun um að færa námið
undir Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Núverandi ráðherra menntamála,
Ásmundur Einar Daðason, hefur
staðfest ákvörðunina.
Yfirfærslan bar brátt að en Olga
Lísa Garðarsdóttir, skólameistari
FSu, fagnar henni. „Framhaldsskóli
er önnur menntaeining en
háskóli. Þetta er praktískt nám og
starfsnámið í garðyrkju nú þegar á
framhaldsskólastigi og á að vera
það, rétt eins og annað starfs- og
iðnnám. Nemandi sem klárar nám
í garðyrkju getur haldið áfram í
háskóla, standi hugur þeirra til þess,
með því að bæta við sig ákveðnum
fögum í framhaldsskólanum,“
segir Olga. Það skal tekið fram
að skrúðgarðyrkjan er það nám
sem kennt er á Reykjum sem er
skilgreint sem lögbundið iðnnám.
Þróun í takt við samfélagið
Garðyrkjuframleiðsla kallar
á sérmenntað fólk. Olga Lísa
bendir á að í stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar séu háleit
markmið. „Það á að rækta holl og
næringarrík innlend matvæli og
stuðla að fæðuöryggi landsins, efla
lífræna framleiðslu, landgræðslu,
skógrækt, endurheimta votlendi
og verða sjálfbær og kolefnisjafna
landið. Allir þessir þættir eru meðal
þess sem við þurfum að hafa að
leiðarljósi við þróun námsins í
nánustu framtíð,“ segir Olga Lísa.
Uppbygging námsins verður
þó nær óbreytt á næstu tveimur
árum. „Við erum nú þegar með
áfanga í iðnnáminu okkar sem eru
einnig kenndir í starfsnáminu. Þar
getum við samnýtt bæði kennara og
aðstöðu. En að öðru leyti munum
við keyra námið með sambærilegum
hætti og verið hefur á meðan við
erum að kortleggja námið, læra
meira um það og svo er afar
mikilvægt að markaðssetja það fyrir
unga fólkið. Það mun taka okkur
tíma að sjá hvernig skynsamlegt er
að leggja upp námið, hvernig við
viljum að það þróist og hvað er
hægt að bæta í það til að það þjóni
tilgangi sínum betur. Tíminn mun
vinna með okkur. Ég vil horfa fram
á við og þróa námið í takt við þróun
samfélagsins. Hvernig þarf námið að
vera til að það uppfylli þau skilyrði
sem samfélagið og atvinnugreinin
gerir kröfur til? Til þess þurfum við
að fá sérfræðingana með okkur.“
Ný verknámsaðstaða nauðsynleg
Húsnæðismál garðyrkjunámsins hafa
verið í deiglunni, bæði starfsmenn
og nemendur hafa lýst óviðunandi
aðstöðu til náms og kennslu, m.a.
í gróðurhúsunum sem hafa þegar
verið dæmd ónýt. Bæði landareign
og húsnæði Reykja eru í eigu hins
opinbera. Olga Lísa segir eðlilegt að
Fsu fái yfirráð yfir þeim húsakosti og
landsvæði sem tilheyri náminu. Hún
leggi mikla áherslu á að Ríkiseignir
taki að sér umsjón og viðhald á þeim
húsum sem garðyrkjunámið þarf, en
slíka umsýslu þekkir hún gegnum
viðhald skólahúsa FSu á Selfossi.
„Þrátt fyrir að gróðurhúsin á
Reykjum séu ónýt eru þau samt í
notkun, við það er ekki hægt að una
lengi. Ég hef skilað inn áætlunum
frá okkar sjónarhorni um með hvaða
hætti þarf að byggja húsnæðið upp.
Þar inni eru kröfur um að ónýtu
húsin verði tekin úr notkun og þau
jöfnuð við jörðu og byggð verði ný
og viðeigandi gróðurhús, verkleg
kennsluaðstaða og geymslur fyrir
þann búnað sem náminu tilheyrir.
Þá er mikilvægt að sá búnaður sem
þegar tilheyrir náminu fylgi því
þar sem hann er í notkun og að í
framtíðinni verði fjárveitingar til
endurnýjunar hans í samræmi við
áætlanir sem við þurfum að gera,
eins og við gerum í öðru verk-
námi okkar.“
Verklegt nám gerir kröfur um
almennilegan aðbúnað og með
betri aðstöðu mun ganga betur að
laða ungt fólk að náminu eins og
var raunin þegar verknámshús FSu
var tekið í notkun.
„Ég hef lagt mikla áherslu á það
við ráðuneytið að strax á næsta ári
verði komin áætlun um endurreisn
aðstöðunnar á Reykjum. Við getum
ekki fellt okkur við að nýta þessi
ónýtu hús lengur en í tvö ár.“
Fengur í starfsfólkinu
á Reykjum
Olga Lísa segir mikinn mannauð í
starfsfólkinu og telur mikilvægt að
þau haldi áfram að vinna við námið.
Aðrar kröfur eru gerðar til kennara
í grunn- og framhaldsskólum
en kennara í háskólum – þeir
fyrrnefndu þurfa að hafa
kennsluréttindi.
„Finna þarf lausn á þessu þar
sem kennararnir á Reykjum
hafa fæstir kennsluréttindi fyrir
framhaldsskóla en eru með mikla
kennslureynslu. Aðrir starfsmenn
sem vinna á Reykjum tengjast
kennslunni beint með afleiddum
störfum. Mikilvægt er að þeir haldi
sínu og flytjist til FSu.“
Olga Lísa segist hafa fengið
jákvæð viðbrögð við þessari
tilfærslu frá starfsfólkinu en
mikilvægt sé að ljúka því sem
fyrst. „Það er auðvitað töluverður
ferill að hætta á einum vinnustað
og flytjast til annars, það er að
mörgu að hyggja í því. Þú ert ekkert
tilbúin að missa áunnin réttindi
nema fá sambærileg réttindi á nýja
vinnustaðnum.“
Tilgangur námsins að undirbúa
fólk undir atvinnulífið
Meðalaldur núverandi nemenda
á Reykjum er hærri en þekkist í
almennu framhaldsskólanámi.
Á opnu málþingi um framtíð
garðyrkjunámsins, sem nemendur
og starfsfólk Reykja héldu í
mars, komu fram áhyggjur af
inntökuskilyrðum er varðar aldur
og lögheimili nemenda.
Olga Lísa minnir á að tenging
búsetu og inngöngu í skóla hafi
verið aflagt fyrir þó nokkrum árum.
Nemendur Fsu koma alls staðar
að af landinu og ekki sé horft til
lögheimilis við inntöku í skólann.
Þegar fleiri sækja um en komist að
á tilteknum námsbrautum er horft
til undirbúnings nemenda fyrir
það nám sem sótt er um, frekar
en aðra þætti. „Í garðyrkjunni er
byrjað ansi bratt í raungreinum,
eins og í grasafræðinni. Þá styrkir
það nemendur að hafa einhvern
grunn í líffræði og/eða efnafræði
sem dæmi.“
Hún segir hins vegar að ef
ásókn í námið verði mikil þurfi
augljóslega að velja inn og þá verði
að vera til staðar mælikvarðar.
Tilgangur námsins er að undirbúa
fólk fyrir atvinnulífið og velja þarf
það fólk sem skilar sér þangað.
„Þær reglur gilda um nám í
framhaldsskóla að yngra fólkið
hefur forgang en sem stendur
verða nýnemar í framhaldsskóla
ekki teknir inn í námið vegna ónógs
undirbúnings.
Ættum við að láta það sama gilda
fyrir alla? Þetta er frístundanám í
hugum sumra á meðan aðrir fara í
námið til að leggja þetta fyrir sig til
framtíðar. Passar endurmenntunin
kannski betur fyrir einhverja?
Eru sumir umsækjendur að leitast
eftir þessari þekkingu til að rækta
eigið grænmeti? Þetta eru allt hlutir
sem við þurfum að vega og meta á
næstunni, við megum ekki veigra
okkur við það. Þetta er dýrt nám
og það komast stundum ekki allir
inn, miðað við þá fjárveitingu sem
okkur er veitt,“ segir Olga Lísa.
Skráning í garðyrkjunámið er
þegar hafin hjá FSu. Þeir nemendur
sem skráðir eru í starfsnámið nú
þegar munu geta haldið sínu námi
áfram og lokið því, hvort sem um
stað- eða fjarnám er að ræða.
Langhlaup að stórum
markmiðum
Með yfirfærslu garðyrkjunámsins
til FSu sér Olga Lísa fyrir sér að
geta fléttað saman starfsemi Reykja
og Fsu á skemmtilegan hátt.
Hún tekur dæmi um að tæknin
sé alltaf að aukast og því liggi
beint við að nemendur geti sótt sér
þekkingu frá öðrum iðnbrautum
skólans s.s. í vélvirkjun, rafvirkjun
og forritun þegar fram líður.
Teikniáfangar skrúðgarðyrkjunnar
falla beint að grunnteikningu
iðnnámsins og svo sé í gangi þróun
sem miðar að því að samningstíma
í iðnnámi sé hægt að stytta. Það
gæti líka átt við á námsbrautum
garðyrkjunnar, því horfa beri til
hæfni og færni nemenda frekar en
til lengdar þess tíma sem nemendur
eru á námssamningi. Unnið sé að
innleiðingu rafrænna ferilbóka
í iðnnámi sem einnig þurfi að
innleiða í þetta nám.
„Við höfum áhuga á að bjóða
valáfanga í garðyrkju fyrir þá
sem eru í bóknámi hjá Fsu. Þetta
höfum við gert í öðru verknámi
og það hefur galopnað augu
nemenda fyrir verknáminu. Þessi
tilfærsla námsins er langhlaup
sem ég vona að leiði til þess
að framtíðarþekking í þessum
málaflokki aukist enn frekar á
landsvísu,“ segir Olga.
„Umskiptum fylgja breytingar,
en þær verða vonandi jákvæðar.
Við verðum að vera opin fyrir
því að hugsa stórt til þess að
garðyrkjustarfsemin verði sem
farsælust. Sem samfélag höfum
við einfaldlega ekki efni á því að
missa þá mikilvægu þekkingu sem
í þessu námi býr.“
Olga Lísa hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands í áratug. Hún segir bæði spennandi og krefjandi að
taka við náminu. Fsu er tæplega 1.000 nemenda framhaldsskóli og mun námsbrautum fjölga úr 15 í 21 við innkomu
garðyrkjunámsins. Mynd / ghp
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Garðyrkjuskólinn á Reykjum starfaði sem sjálfstæð menntastofnun í 66 ár,
eða frá stofnun hans árið 1939 til ársins 2005 þegar hann var sameinaður
Landbúnaðarháskóla Íslands. Nú mun Fsu taka við umsjón garðyrkjunámsins
en þar nema rúmlega hundrað nemendur í dag í stað- og fjarnámi. Mynd /H.Kr
Frá opnu málþingi um framtíð garðyrkjunáms á Reykjum. Þar tóku núverandi
nemendur, kennarar og Olga Lísa meðal annars til máls. Mynd / ghp