Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 41
Meistarafélag kjötiðnaðarmanna
verið afskaplega hliðhollt skólanum
og kjötiðnaðardeildinni sem þar
er starfsrækt. Félagið hefur fært
okkur gjafir, til að mynda sög til
að saga hangandi kjötskrokka. Þá
kom félagið að kynningarmálum
með okkur fyrir nokkrum árum og
ýmislegt fleira hafa kjötiðnaðarmenn
gert til að styðja við bakið á okkur.
Sama má segja um allar aðrar
greinar sem tengjast Hótel- og
matvælaskólanum. Það er sama
hvenær maður hringir til að biðja
um eitthvað fyrir skólann, það eru
allir tilbúnir til að hjálpa okkur.
Það er því mjög gaman að vinna
í þessu umhverfi fyrir mig sem fór
16 ára gamall að læra þessar greinar
og er að verða sextugur á næsta ári.
Það er einstakt að hafa fengið
þetta tækifæri að vera í þessari
frábæru aðstöðu og að fá að vera
innan um allt þetta unga fólk og
þá sem eru að fara af stað út í
atvinnulífið. Ekki síður að fá að
starfa með öllu því flotta fagfólki
sem með okkur hefur unnið. Það er
gott að geta leitað til þeirra varðandi
val á kennurum og ýmsa aðra þætti. “
Sæmdur heiðursmerki
Meistarafélags kjötiðnaðarmanna
Meistarafélag kjötiðnaðarmanna
kann greinilega vel að meta störf
Baldurs í þágu kjötiðnaðarmanna
og veitti honum þann heiður að
sæma hann gullmerki félagsins í
kjölfar aðalfundar félagsins 26. mars
síðastliðinn. Var Baldri veitt merkið
um leið og verðlaunaafhending
vegna fagkeppni Meistarafélags
kjötiðnaðarmanna fór fram.
Kjötiðnaðarnámið aftur
á fullt næsta haust
Baldur sagði að nýlega hafi verið
opnað fyrir umsóknir um nám
í Hótel- og matvælaskólanum
næsta haust og þar með fyrir
kjötiðnaðarnema.
„Við munum hafa samband við
nemendur og starfsnámsstaði og
ég veit allavega um 10 nemendur
sem myndu koma til okkar á fyrri
verknámsönn og einhverjir eiga eftir
að klára sitt nám og við munum taka
á móti þeim líka.“
Í samstarf við
Verkmenntaskólann á Akureyri
Baldur segir að komið sé samstarf
við fagnefnd kjötiðnaðarmanna með
það að markmiði að hefja samstarf
við Verkmenntaskólann á Akureyri
(VMA) um þetta nám.
„Við ætlum að gera þetta að
fjarnámi með þannig sniði að það
henti nemendum, sem við höfum
reyndar gert áður og þá með
staðbundnum lotum.
Það má segja að Covid hafi verið
vont en það opnaði augu okkar betur
fyrir möguleikum í fjarnámi og
meira en við höfum áður gert.“
Baldur segir að nemendur VMA
hafi verklega aðstöðu í fyrirtækjun-
um þar sem þeir eru á námssamningi.
„Síðan höfum við boðið upp á
staðbundnar lotur þar sem fólk getur
nýtt þá góðu aðstöðu sem er hér í
Menntaskólanum í Kópavogi. Þá
komu nemendur bara í ákveðna daga
hingað suður. Matvís, Matvæla- og
veitingasambandið, lánaði þeim íbúð
sína í Reykjavík endurgjaldslaust
sem auðveldaði nemendum að gera
þetta. Við erum núna að fara í að
skipuleggja námið með sama hætti
og munum gera það í meira samstarfi
við Verkmenntaskólann á Akureyri.“
Vaxandi þörf á menntuðu fólki í
kjötiðn og fleiri matvælagreinum
– Er ekki alveg ljóst að það mun
verða vaxandi þörf á menntuðu fólki í
kjötiðn og öðrum greinum sem heyra
undir Hótel- og matvælaskólann?
„Jú, það er vaxandi þörf og
kjötiðnaðurinn hefur lengi verið
dálítið til hliðar og aðsókn í námið
því ekki nægilega mikil. Við getum
því bætt við okkur ófyrirséðum
fjölda nemenda líkt og í öðrum
matvælagreinum.
Það skemmtilega við þetta
er hversu miklir möguleikar eru
fyrir þá sem hér útskrifast að
fá störf úti í samfélaginu. Fyrir
kjötiðnaðarmenn eru það ekki
bara störf í kjötvinnslum, því nú á
ég orðið margt fólk sem útskrifast
hefur héðan og starfar við sölu
á kjöti, kjötafurðum og ýmsu
öðru. Maður hefur líklega gleymt
að leggja áherslu á það hvað
menntuðum kjötiðnaðarmönnum
er vel fært að róa á önnur mið með
sína þekkingu.“
Aukin ferðaþjónusta kallar á
fleira fagmenntað fólk
– Aukin ferðamennska á Íslandi
virðist vera komin til að vera, kallar
það ekki líka á aukna þekkingu fólks
í matvælagreinum?
„Maður hefur líka áhyggjur af
því hvernig gangi að manna stöður
sem þar skapast. Sem dæmi þá gekk
nokkuð vel að manna sláturhúsin
í landinu með íslensku vinnuafli
í fyrstu Covid-19 bylgju þar sem
ferðamönnun snarfækkaði. Þegar
ferðabransinn fór svo af stað fyrir
alvöru fór þetta fólk að nokkru
leyti að hverfa úr sláturhúsunum
til annarra starfa tengdum
ferðamennskunni. Það skapaði
vissan vanda hjá sláturhúsum
landsins. Allt er þetta samt ein
samhangandi og samverkandi keðja
og maður hefur dálitlar áhyggjur
af því hversu lítið er af fagfólki í
greinunum öllum. Sérstaklega ef
við ætlum okkur að taka við yfir
milljón ferðamönnum á þessu ári.
Það er nauðsynlegt að fólk vandi
sig því kröfuharka ferðamanna um
gæði þjónustunnar á bara eftir að
vaxa frá því sem verið hefur. Þetta
mun verða meira áberandi þegar
ferðaþjónustan fer á fullt skrið aftur.
Maður hefur því vissar áhyggjur,
en það verður að passa upp á að
fólk hafi metnað og faglega vitund
alltaf að leiðarljósi. Að fólk passi
upp á að gera alltaf eins vel og
það getur.“
Bjartsýnn á framtíðina
Þrátt fyrir áhyggjur um að gera
þurfi betur í að mennta fólk í
matvælagreinum þá er Baldur
bjartsýnn á framtíðina.
„Já, ég er bjartsýnn og gaman
að sjá kjötiðnaðarmenn keppa með
afurðir sínar og hvernig þeir fara
af stað eftir Covid-faraldurinn.
Fagkeppnin hefur verið mjög
spennandi og verulega flott fagvinna
sem þar á sér stað. Þá hefur verið
mjög jákvæð þróun í hönnun ýmissa
matvara eins og skráargatsmerktra
matvæla. Þar er virkilega verið að
taka á því í kjötvinnslunum að fara
að óskum neytenda og nýrra tíma
um að útbúa hollari vörur. Það er
því virkilega gaman að fylgjast með
því hvað þetta fólk er að koma með
inn á markaðinn.“
– Mun tilkoma örsláturhúsa með
mögulegri lengingu sláturtíðar
skipta einhverju máli varðandi
þróunina og mögulega aukinn kraft
í þessum greinum?
„Ég held að það muni gerast. Það
verður einmitt mjög spennandi og
gaman að sjá hvernig það verkefni
sem nú er í gangi varðandi lengingu
á sláturtíma heppnast. Spurningin
er þá hvort það þurfi ekki líka að
þróa fóðrun lamba fram á veturinn
þegar þau fá ekki sömu næringu
og þau ganga að í íslenskri náttúru
yfir sumarið. Þessu verður gaman
að fylgjast með sem og þeim litlu
kjötvinnslum sem bændur eru að
koma sér upp úti um allt land. Þar
myndast opinn markaður fyrir
faglærða kjötiðnaðarmenn til að
koma inn með sína þekkingu.
Það er líka gaman að í þessum
litlu kjötvinnslum eru að verða til
margvíslegar og góðar afurðir. Oft
þurfa bændur þá líka að fá aðstoð
fagfólks til að koma sínum hlutum
áfram.“
– Ef þú lítur yfir farinn veg og
framvindu Hótel- og matvæla-
skólans, telur þú þig hafa verið
heppinn að koma að þessu?
„Hef ég verið heppinn í lífinu?
– Já, heppni mín er mikil og þetta
er enn þá jafn gaman og þegar
ég var sextán ára,“ segir Baldur
Sæmundsson.
Baldur stoltur í kennslueldhúsi skólans og með slaufu í takt við tilefnið. Hann segir að við flutning matvælagreina sem
sameinuðust undir nafni Hótel- og matvælaskólans og urðu deild í Mennatskólanum í Kópavogi hafi forsvarsmenn
sýnt mikla framsýni í uppsetningu á fullkomnu kennslueldhúsi á fyrstu hæð byggingarinnar. Einnig með uppsetningu
á fullkominni kjötvinnsluaðstöðu í kjallara hússins. Hefur þessi aðstaða síðan verið endurnýjuð í takt við tímann
og stenst allar kröfur sem gerðar eru.
Baldur með samstarfsfólki á Grillinu. Talið frá hægri, efri röð: Baldur Sæmundsson, Kristján Nói Sæmundsson, Halldór
Sigdórsson, Nanna Snorradóttir og Sævar Vígsteinsson. Neðri röð: Trausti Víglundsson, Þórey Í. Halldórsdóttir,
Signý Marta Böðvarsdóttir, Hafdís Gunnarsdóttir, Tómas Bolli Hafþórsson og Sveinn Sveinsson. Sitjandi fremst á
mynd er Halldór Skaptason. Mynd / Hótel Saga
Við upphaf á einni af fínni veislunum sem haldin var í Grillinu fyrir franskt snyrtivörufyrirtæki eftir breytinguna
á Grilllinu. Talið frá vinstri: Nanna Snorradóttir, Hörður Haraldsson, Baldur Sæmundsson veitingastjóri, Helgi
Haraldsson, Kristján Nói Sæmundsson Hrafn Pálsson, framreiðslumenn í Grillinu. Mynd / Hótel Saga