Bændablaðið - 07.04.2022, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202244
Víða um Kanaríeyjar er hægt að
finna ræktunarsvæði, verksmiðjur
og verslanir sem gera út á Aloe vera
plöntuna.
Þykkblöðungurinn Aloe vera er
mest ræktaða lækningaplanta heims og
hefur verið nýtt til lækninga í þúsundir
ára. Þótt plantan sé ekki landlæg á
Kanaríeyjum þrífst hún einstaklega
vel í loft kenndum og næringarríkum
eldfjallajarðvegi eyjaklasans og
jöfnu heitu loftslagi árið um kring.
Lækningamáttur plöntunnar og
vinsældir hennar, bæði innan lyfja-
og snyrtivörumarkaðarins, hafa ýtt
undir aukna ræktun og framleiðslu
afurða úr henni og er því orðinn býsna
áberandi iðnaður þar syðra.
Á Kanaríeyjum er algengasta
nytjategundin Aloe barbadensis en
hún er einkímblöðungur sem tilheyrir
dagliljuætt. Hún er eina æta tegund
biturblöðunganna. Henni getur þó
auðveldlega verið ruglað saman við
aðrar tegundir en þekkist á gulum
blómum. Hún er í laukabálki og skyld
ýmsum lauktegundum og aspas.
Þótt nokkuð harðger sé þrífst
hún best í næringarríkum, þurrum
jarðvegi og á sólríkum stað og
það er einmitt það umhverfi sem
eyjaklasi Kanarí býður henni upp
á. Hún er einna viðkvæmust fyrir
of mikilli bleytu sem loftkenndur
eldfjallajarðvegurinn kemur í
veg fyrir.
Uppruni plöntunnar er talinn vera á
suðvesturhluta Arabíuskaga, en þaðan
á hún að hafa borist til suðurhluta
Indlands og Súdan og þaðan verið
víðförul og náð fótfestu á allmörgum
svæðum Asíu, Afríku og Ameríku og
Ástralíu. Enn fremur er hún vinsæl
pottaplanta, meðal annars hér á landi.
Bitur sannleikur
Nafnspeki plöntunnar er áhugaverð.
Latneska ættkvíslarheitið Aloe
er komið úr arabísku, „alloeh“,
eða hebresku, „halal“, sem þýðir
bitur og glansandi safi eða efni.
Tegundarheitið vera þýðir sannleikur.
Samkvæmt hugtakasafni
Þýðingamiðstöðvar utanríkis-
ráðuneytisins er íslensk þýðing
plöntunnar alvera. Samkvæmt
orðabók þýðir orðið alvera – verund
sem tekur til alls og allt er runnið
frá.
Vegna græðandi eiginleika
sinna hefur plantan verið sveipuð
ljóðrænum ævintýraljóma í riti
gegnum aldirnar. Hún hefur verið
kölluð þögli græðarinn og læknirinn
í blómapottinum, sem er titill
yfirlitsgreinar um nytjaplöntuna
sem hefur birst á þessum vettvangi.
Fjölbreytt notkun
Ef vel er að ræktun hennar staðið
getur hver nytjaplanta lifað í um 40
ár. Safarík þykk blöð plöntunnar eru
uppskorin utan frá þegar þau hafa
náð þroska sínum. Úr safa þeirra
er svo hægt að vinna bæði drykki,
krem, fæðubótarefni og snyrtivörur
af ýmsu tagi.
Einnig er
einfaldlega hægt
að bera græðandi
safann beint á húðina, sem
er tilvalið eftir sólbað.
Samkvæmt ritum og rannsóknum
er hægt að ráðleggja notkun
plöntunnar við ýmsum meinum,
s.s. sólbruna, kláða, sárum,
bólgum, hárlosi, liðverkjum og
meltingartruflunum. Þá sögðu
Egyptar hana varðveita leyndarmál
fegurðar og eilífs lífs og sjálf
Kleópatra smurði sig með húðkremi,
unnu úr plöntunni, til að viðhalda
yndisþokka sínum.
Alverusafi mun vera áhrifaríkur
til meðhöndlunar hvers konar
meltingarvandamála, á að hafa
afeitrandi og hlutleysandi eiginleika.
Í hvers kyns snyrtivörum er alveran
sögð vera bakteríudrepandi með
andoxunareiginleika. / ghp
Úr safa alveru er hægt að vinna bæði drykki, krem, fæðubótarefni og
snyrtivörur af ýmsu tagi. Einnig er einfaldlega hægt að bera græðandi
safann beint á húðina, sem er tilvalið eftir sólbað. Myndir / ghp
Á Kanaríeyjum er algengasta nytjategundin Aloe barbadensis, en hún
er einkímblöðungur sem tilheyrir dagliljuætt. Hún er eina æta tegund
biturblöðunganna. Henni getur þó auðveldlega verið ruglað saman við
aðrar tegundir en þekkist á gulum blómum.
Hver planta getur lifað í um 40 ár.
Aloe barbadensis er í laukabálki og skyld ýmsum lauktegundum og aspas.
Aloe er komið úr arabísku, „alloeh“,
eða hebresku, „halal“, sem þýðir
bitur og glansandi safi.
LÍF&STARF
Leyndarmál fegurðar og eilífs lífs:
Útbreidd alvera í eyjaklasa
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL MIÐNÆTTIS 26. APRÍL 2022.
HEILDARÚTHLUTUNARFÉ SJÓÐSINS ER 593 MILLJÓNIR KRÓNA.
Matvælasjóður auglýsir
eftir umsóknum
Matvælasjóður hefur opnað fyrir umsóknir. Opið er fyrir umsóknir til
miðnættis 26. apríl.
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu
og vinnslu íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra úr landbúnaðar- og
sjávarafurðum á landsvísu.
Heildarúthlutunarfé sjóðsins er 593 milljónir króna.
Nánari upplýsingar á matvaelasjodur.is