Bændablaðið - 07.04.2022, Síða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 2022 55
landbúnaðarlandið sé sóað, rati í
grunnvatn sem mengi út frá sér.
Rajapaksa forseti hélt áfram
á loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna, COP 26, í október sl.
„Við stöndum frammi fyrir
þeirri áskorun að nýta okkur
vísindaaðferðir til að auka
landbúnaðarframleiðslu án þess að
valda umhverfisspjöllum. Við lýsum
yfir nýrri landbúnaðarbyltingu sem
byggir á sjálfbærni. Heimspekileg
arfleifð Sri Lanka, auðguð af
kenningum Búdda, hefur alltaf
hvatt okkur til að halda jafnvægi
milli vistfræðilegra og mannlegra
þarfa. Menn verða að vera í takt við
náttúruna frekar en að vinna gegn
henni. Þessi nýja stefna ríkisstjórnar
minnar leggur áherslu á sjálfbærni.“
Á þessum tímapunkti var þó
þegar bersýnilegt að ákvörðunin var
farin að hafa veruleg og slæm áhrif á
fæðuöryggi, sjálfbærni og heilbrigði
íbúa Sri Lanka.
Afleiðingarnar fyrirsjáanlegu
Fljótlega eftir bannið var ljóst að
uppskera matvæla án aðfanganna
yrði minni en vænta mætti.
Janaka Wasantha kartöflubóndi
sýndi sjónvarpsstöðinni Al Jazeera
stöðu akranna sinna í frétt sem birtist
26. júlí sl. Áhrif áburðarskortsins var
að plöntur voru litlar og óþroskaðar
„Við erum venjulega að uppskera
á þessum tíma, um 75 dögum eftir
plöntun.“
Indika Dissanayake garðyrkju-
bóndi gagnrýndi stjórnvöld í sömu
frétt og sagði að ekkert samráð hafi
átt sér stað við bændur fyrir bannið.
Uppskeran hrundi og tekjur
bænda með. Talið er að allt að
þriðjungur ræktunarsvæðis hafi
ekki verið nýtt vegna þess að
vistfræðilegar aðstæður kröfðust
varnarefna.
Bændur og landbúnaðar-
vísindamenn mótmæltu á götum
úti. Þeir voru sammála um að
minni notkun íðefna í landbúnaði
væri góðra gjalda verð en það hefði
verið fráleitt að gera kröfur um
yfirfærslu á einni nóttu. Útfærslan
væri skandall.
Matarskortur gerði fljótlega vart
við sig og matvælaverð hækkaði.
Bætti það gráu ofan á svart ástand
vegna bágs gjaldeyrisforða. Vöntun
á innfluttum vörum og eldsneyti varð
til þess að bæði bensín og matvæli
er á þessum tímapunkti skammtað
og fólk hefur látist úr ofþurrkun í
biðröðum eftir nauðsynjavörum.
Fýluferð Hippo Spirit
Þegar ömurlegar afleiðingar inn-
flutningsbannsins voru bersýnilegar,
sá Rajapaksa forseti að sér og sneri
ákvörðuninni um miðjan nóvember.
Takmarkanir voru afléttar að
einhverju leyti því tiltekin varnarefni
voru leyfð.
Ekki nóg með það, heldur
verslaði hið opinbera 200.000 tonna
skipsfarm af lífrænum búfjáráburði
frá Kína, sem þegar var á leiðinni
með flutningaskipinu Hippo Spirit
er ríkisstjórnin tilkynnti gjörninginn.
Kraumaði þá aftur í talsmönnum
landbúnaðar og upphófust mótmæli.
Jarðvísindamenn vöruðu við
innflutningnum og sögðu að dreifing
áburðarins gæti haft óafturkræf áhrif
á vistkerfi eyjunnar.
Við formlegt eftirlit NPQS
(Eftirlitsstofnun Sri Lanka) á sýnum
úr áburðinum reyndist hann nefnilega
innihalda bakteríuna Elwinia sem
getur valdið sjúkdómum í plöntum.
Dr. Janendra Decosta, prófessor
í jarðrækt hjá Háskólanum í
Peradeniya, sagði m.a. í viðtali:
„Ef örverur í áburðinum reynast
skaðlegar þá getum við ekki snúið
við, tekið til baka ferlið sem þá
þegar verður farið í gang. Sem
vísindamaður myndi ég mæla gegn
því að taka við þessari sendingu af
lífrænum áburði.“
Eftirlitsstofnunin veitti farminum
því ekki innflutningsleyfi og Hippo
Spirit fékk ekki að leggjast við
bryggju til affermingar.
Hippo Spirit var því
snúið við og sent aftur til
Kína.
Afleidd þróun
Innflutningshöftin og bann
við notkun viðurkenndra
varnarefna hefur leitt
til stóraukins ólöglegs
innflutnings á alls kyns
varnarefnum. Þar sem
opinberu eftirliti sleppir
aukast líkur á notkun
á óæskilegum efnum
sem leiðir til þess að
landbúnaðarframleiðslan
í Sri Lanka og sú ímynd
sem hún hafði, lífræn eður
ei, kann að skaðast því nú
hafa eftirlitsstofnanir ekki
eingöngu verri yfirsýn yfir
notkun á íðefnum, heldur
getur það einnig leitt til
verri gæða á afurðum.
Bætur til bænda
Ríkisstjórnin hefur þurft
að játa ýmis mistök
vegna ákvörðunar um skyndilega
yfirfærslu landbúnaðarframleiðslu
eyjunnar til lífrænnar.
Í lok janúar boðaði hún
skaðabætur til handa bændum sem
urðu fyrir uppskerubresti vegna
þessa. Að minnsta kosti milljón
hrísgrjónabændur fengu 4.000
rúpíur sem kostaði ríkiskassann
sem nemur 200 milljónum
bandarískra dollara. Ekki nóg með
það heldur lofaði Mahindananda
Aluthgamage landbúnaðarráðherra
fjármagni sem samsvaraði öðrum
150 milljón bandaríkjadollurum til
stuðnings bændum sem sitja uppi
með langvarandi skaða á framleiðslu
sinni.
Þótt bændur geti aftur farið að
rækta jörð sína á hefðbundinn hátt
eru afleiðingar röskunarinnar enn að
koma fram. Það mun taka tíma að
koma aftur á jafnvægi í framleiðslu.
Sögunni er heldur ekki
lokið. Daglega berast fregnir af
afleiðingum efnahagshruns á Sri
Lanka sem er á barmi gjaldþrots.
Gjaldeyrisforðinn er uppurinn og
eldsneyti af skornum skammti.
Nauðsynlegum innflutningsvörum
er úthlutað til fólks sem bíður
klukkustundum saman í röðum.
Rafmagni er einnig skammtað
sem hefur orðið til þess að fólk þarf
að gera tilraun til að sækja vinnu sem
krefst fjarskipta og tölvutengingar,
á tilsettum rafmagnstíma – stundum
um miðja nótt.
Á meðan er rafmagn óheft í þeim
hverfum sem Rajapaksa fjölskyldan
dvelur og einhverra hluta vegna
virðast þeir geta rúntað að vild
um láð og lendur eyju sinnar með
farteski og föruneyti.
Þolinmæði íbúa Sri Lanka er
þó þrotin og mótmælin ágerast.
Föstudaginn 1. apríl stormuðu
mótmælendur að heimili forsetans
sem var svarað af hörku.
Útgöngubann var sett á, sem mót-
mælendur skelltu skollaeyrum
við og héldu mótmælin áfram. Í
byrjun vikunnar höfðu svo nokkrir
forystumenn sagt af sér í ljósi
aðstæðna, þar á meðal fyrrnefndur
Namal og seðlabankastjóri landsins.
Landbúnaður er vísindi
Í viðtali við landbúnaðarhlaðvarpið
BuissnessLine segir Buddhi
Marambe, prófessor í jarðrækt hjá
Peradeniya háskóla, þessa viðburði
sýna glögglega slæm áhrif þess
að horfa á landbúnað sem hugsjón
eða rómantík.
„Landbúnaður er lífsviðurværi
fólks. Lönd eins og okkar byggja á
landbúnaðarnýtingu og búa yfir langri
sögu þróunar landbúnaðaraðferða
og tækni. Landbúnaður er vísindi
svo ég bið ykkur að snúa honum
ekki upp í rómantík. Notið
fagkunnáttu og stundið landbúnað
sem byggður er á sérfræðiþekkingu
og takið ákvarðanir út frá þeim
sönnunum sem eru til staðar. Þessar
staðreyndir ættu að vera byggðar
á vísindarannsóknum – það er
það mikilvægasta.“
Marambe minnir þó á að lífrænn
búskapur sé á engan hátt alslæmur,
heldur sértækt mengi sem á sína
sérstöku hillu bæði þegar kemur
að umhverfis- og markaðsmálum.
Halda ætti áfram lífrænni hreyfingu
og þróun enda geti afurðir lífrænnar
ræktunar fært Sri Lanka mjög
þarfar aukatekjur.
Enn um sinn er mannkynið hins
vegar brauðfætt með hefðbundinni
landbúnaðartækni. Aðeins 1,5%
af landbúnaðarsvæði heimsins
er lífrænt, sem þýðir að 98,5% af
því er ræktað með hefðbundnum
landbúnaðaraðferðum. Það eru þær
sem tryggja fæðuöryggi.
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Landbúnaðurinn, sem telur til 7,4% hlutfalls af vergri landsframleiðslu, byggir á um 1,8 milljón fjölskyldubúum en
talið er að 30% íbúar landsins starfi við landbúnað. Hrísgrjón er meginafurð ræktarjarðarinnar. Mynd / Daniel Klein
Frá markaði í Sri Lanka í byrjun áratugsins. Þrátt fyrir að vera gjöfult
landbúnaðarland treysta íbúar Sri Lanka á innfluttar matvörur í stórum stíl
og bíða nú í röðum eftir að fá nauðsynjum skammtað. Mynd / VH
Mikil mómæli hafa átt sér stað í Sri Lanka
undanfarnar vikur vegna efnahagsástandsins
Þau náðu hámarki sl. föstudag þegar ráðist var
á heimili forsetans. Mynd / NewsFirstSL