Bændablaðið - 07.04.2022, Qupperneq 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. apríl 202256
KORNHORN
Bygg er mikilvægasta korn-
tegundin sem ræktuð er hér
á landi.
Um áratuga skeið var bygg
kynbætt fyrir íslenskar aðstæður
með áherslu á strástyrk, flýti og
aukna uppskeru. Árangurinn lét
ekki á sér standa, en umfang
ræktunarinnar hér á landi óx
ekki í takt við umræðuna um
þörfina á aukinni ræktun. Nefna
má margar ástæður þess hve
búgreinin hefur vaxið hægt og
líklega er innviðauppbygging
stærsti þátturinn. Það sem
mest við kemur hlutverki LbhÍ
er annað viðfangsefni, það er
gæðaþátturinn. Tvær mælingar
hafa verið viðamiklar í íslenska
byggkynbótaverkefninu, rúm-
þyngd og þúsundkornaþyngd
en þessir eiginleikar hafa ekki
aukist jafn mikið og uppskeran.
Rúmþyngd og þúsund korna-
þyngd eru eiginleikar sem eru
tengdir gæðum uppskerunnar.
Byggkorn hefur það einkenni
að fræið er verndað með hýði,
en það þarf alls ekki að vera
þannig. Hveiti og rúgur eru
hýðislaus eftir þreskingu, eða
nakin eins og sagt er. Til eru
arfgerðir af byggi sem einnig
eru nakin. Þegar byggplantan
þroskar fræ myndar hún korn
sem er hulið hýði, það er límt
fast með lípíðlagi sem stjórnað
er af einu víkjandi geni. Einföld
stökkbreyting í fyrndinni varð
til þess að genið er ekki tjáð og
límið myndast ekki lengur.
Þessi eiginleiki gerir það að
verkum að fræið er illa varið
fyrir bökun sólarinnar á sléttum
frjósama hálfmánans þaðan sem
bygg er upprunnið. Svo að öllum
líkindum hefur stökkbreytingin
varðveist um árþúsundin í
samlífi við manninn. Nakið
bygg tók svo að víkja fyrir hveiti
í ræktun manna í Evrópu löngu
fyrir kristsburð.
Við Landbúnaðarháskóla
Íslands voru gerðar tilraunir með
nakið bygg fyrir rúmum áratug.
Rykið var svo dustað af þessum
rannsóknum nýlega. Þegar
fyrrum bygg-kynbótamaður
LbhÍ fór á eftirlaun skildi
hann eftir sig stórt safn
erfðaauðlinda. Þar af voru þrír
stofnar af nöktu byggi, þar sem
geninu sem veldur nektinni var
víxlað inn í þekkt yrki með
endurteknum bakvíxlunum. Úr
varð samansafn þriggja stofna
sem sáð var út í stórreiti 2019.
Úr þessum stofnum voru valdir
60 álitlegir einstaklingar, löng
og búsmamikil öx, og lagðir
út í tilraun ásamt 39 nöktum
arfgerðum úr genabanka
banda ríska landbúnaðarráðsins
(USDA). Árið eftir, eða
2021, voru 17 álitlegustu
arfgerðirnar lagðar út í einfalda
uppskerutilraun. Niðurstöður
þessara tilrauna sýndu að á
meðan uppskeran var ekki til
jafns við uppskeruhæstu yrki
var rúmþyngdin há. Einnig að
erlendar arfgerðir sem ekki hafa
verið kynbættar fyrir íslenskar
aðstæður stóðu sig óvænt
merkilega vel.
Hýði byggs hefur lítið sem
ekkert fóðurgildi og inniheldur
sílíköt sem eru illmeltanleg
og óboðleg mannfólki. Því
mætti halda fram að eitt kíló
af nöktu byggi innihaldi fleiri
meltanlegar fóðureiningar
en eitt kíló af ónöktu byggi.
Samkvæmt því mætti fórna
uppskerukröfum í tonnum á
hektara fyrir fóðureiningar
á hektara, sem þetta snýst nú
allt saman um. Einnig, að
uppskera, þurrka og keyra korn,
sem hefur verið ræktað fyrir
uppskerumagn umfram gæði,
er líka kostnaðarsamt ferli.
Möguleikar á nýtingu nak-
ins byggs gæti náð út fyrir
kjarnfóðurgjöf í mjólkur-
fram leiðslu. Sérstaklega svína-
rækt, einnig til manneldis og
kannski fyrir kjúklingarækt og
eggjaframleiðslu. Því er full
ástæða til þess að halda áfram
rannsóknum með nakið bygg og
tilefni til öflugra kynbóta nakins
byggs til hliðar við hýðisbygg.
Að því sögðu er nú tími til að
bygg komi fram nakið.
Hrannar Smári Hilmarsson,
tilraunastjóri í jarðrækt
hjá Landbúnaðarháskóla
Íslands.
Hrannar Smári Hilmarsson.
UTAN ÚR HEIMI
Bandaríska verðbréfaeftirlitið
(SEC) íhugar nýja reglugerð
sem krefst þess að tískufyrirtæki
þarlendis veiti upplýsingar um
losun gróðurhúsalofttegunda
og loftslagsmarkmið en stöðluð
upplýsingagjöf myndi auðvelda
fjárfestum að meta stöðu fjár-
hagslegrar áhættu þeirra fyrir-
tækja er þeir hafa augastað á.
„Ef þessi reglugerð verður
samþykkt veitir hún fjárfestum sam-
ræmdar, sambærilegar og gagnlegar
upplýsingar til að taka fjárfestingar-
ákvarðanir sínar,“ sagði Gary Gensler,
stjórnarformaður Verðbréfaeftirlits
Bandaríkjanna, í yfirlýsingu.
Samkvæmt vefsíðum Vouge
kemur fram að ef reglugerðin
verður samþykkt munu fyrirtæki
á borð við bandarísku tískuveldin
Ralph Lauren, Capri Holdings,
(sem á m.a. Michael Kors, Jimmy
Choo og Versace) og Tapestry, Inc.
(eigandi Coach NY, Kate Spade
NY og Stuart Weitzman) þurfa
að gefa upp umfang er viðkemur
losun gróðurhúsalofttegunda –
(eða SCOPE 1-3, sjá töflu) – auk
upplýsinga varðandi loftslagstengda
áhættu og breytingar á viðskiptalíkani
fyrirtækis ef von er á slíku í kjölfarið.
Endurmat á viðskiptalíkani
fyrirtækis felur oftar en ekki í sér
endurmótun á eldri rekstri og með
tilliti til reglugerðarinnar tilvonandi
má gera ráð fyrir slíku. Að auki er
vænst til þess að fyrirtæki er falla
undir reglugerðina móti tímaramma
yfir markmið auk viðeigandi gagna
um framvinduna sem þá einnig birtist
opinberlega.
Ekki ber á öðru en þessar áætlanir
hljóti jákvæða svörun. Tískumerki
jafnt sem aðgerðasinnar hafa í
nokkurn tíma kallað eftir opinberum
upplýsingum, skýrari stefnumálum
og fastari ramma er kemur að iðnaði
tískunnar, sérstaklega með tilliti til
yfirlýsinga Sameinuðu þjóðanna
hvað varða loftslagsbreytingar.
Í kjölfar áætlaðrar reglugerðar
sér Alríkisviðskiptastofnun Banda-
ríkjanna (FTC) fram á að endur-
skoða svokallaða „Green Guides“
eða leiðbeiningar ætlaðar markaðs-
fulltrúum er kemur að því að upplýsa
neytendur um slík málefni.
Kröftug stefna virðist vera í
þessum geira en nú í september
síðastliðnum samþykkti öldungadeild
Kaliforníu frumvarp er tryggir
lágmarkslaun vinnuafls í tískuiðnaði,
auk þess sem tískuvörumerki eru
dregin til ábyrgðar ef brot koma upp
í framleiðsluferli vöru.
Ekki falla þó öll fyrirtæki undir
hatt fyrirhugaðrar reglugerðar
verðbréfaeftirlitsins, en fyrirtæki
sem velta undir 75 milljónum
Bandaríkjadala árlega þurfa
m.a. ekki að gefa upplýsingar
um umfang/scope 3: „Öll önnur
losun gróðurhúsalofttegunda
utan borgarmarka sem verður
vegna starfsemi sem á sér stað
innan borgarmarka, þ.e.a.s. óbein
losun sem verður ofar eða neðar í
virðiskeðjunni.“
Vitað er að mörg fyrirtæki deila
nú þegar þeim upplýsingum er
bandaríska verðbréfaeftirlitið áætlar
að festa í sessi en upplýsingagjöf
þeirra er sundurleit og ósamræmd
og því kominn tími til að taka á
þeim efnum. /SP
Tískuveldi Bandaríkjanna:
Upplýsingaveita verðbréfaeftirlitsins
Ný reglugerð krefst þess að bandarísk tískufyrirtæki veiti upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda og
loftslagsmarkmið.
Umfang losun gróðurhúsalofttegunda, 1-3
1 Losun gróðurhúsalofttegunda frá uppsprettum sem eru innan borgarmarka
2 Losun gróðurhúsalofttegunda sem verður vegna rafmagns, hita, gufu eða
kælingar sem notuð er innan borgarmarka og er dreift með veitu- eða dreifikerfi
3 Öll önnur losun gróðurhúsalofttegunda utan borgarmarka sem verður vegna
starfsemi sem á sér stað innan borgarmarka, þ.e.a.s. óbein losun sem verður
ofar eða neðar í virðiskeðjunni.
Nakið bygg
Frjókornaofnæmi er eitt algengasta
ofnæmi öndunarfæranna og talið
er að árlega glími tveir af hverjum
tíu Íslendingum við slíkt en allt að
30 prósent jarðarbúa.
Ofnæmið, sem er genatengt,
líkist hvað helst kvefi, þar sem
þrútin slímhúð, mikið rennsli úr
nefi og kláði í augum eru mest
áberandi. Samkvæmt mælingum
Náttúrustofnunar Íslands nú í ár,
er áætlað að vegna kulda hefjist
frjókornatímabilið hérlendis
ekki fyrr en seint í apríl – en
frjókorn hafa mismunandi áhrif á
einstaklinga eftir alvarleika ofnæmis
og almennum heilsufarslegum
aðstæðum og nauðsynlegt að hafa
í huga að þau geta valdið slæmum
astmaeinkennum.
Frjókornatímabilið gæti byrjað
fjörutíu dögum fyrr
Í Bandaríkjunum var nýverið
gerð rannsókn samkvæmt vefsíðu
New Scientist þar sem áhrif
loftslagsbreytinga voru tekin
fyrir og þá hvernig aukinn lofthiti
veldur breytingum á því hvenær
frjókornatímabil hefst. Vísindamenn
sem að rannsókninni stóðu vildu
komast að því hver möguleg staða
yrði í lok aldarinnar og byrjuðu á því
að taka saman gögn frá árunum 1995
til 2014 frá landsvæðum víðs vegar
um Bandaríkin er varða tölulegt
magn nokkurra algengustu tegunda
frjókorna og þá til að spá fyrir um
hverju við mætti búast á árunum frá
1981 til 2100.
Áhrif loftslagsbreytinga:
Frjókornatímabil lengist um
fjörutíu daga í Bandaríkjunum
Algengustu frjókornaofnæmisvaldar á Íslandi koma frá ýmsum grastegundum,
svo sem hundasúru, birki og túnfíflum.
Íslenskt nakið bygg. Mynd/ Jónína Svavarsdóttir